16. apríl 2022

Fyrirtækin okkar og framtíðin: Hringferð SA 2022

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fyrirtækin okkar og framtíðin: Hringferð SA 2022

Í maí fundum við með félagsfólki SA um allt land. Ræðum efnahagsmálin, komandi kjaraviðræður og það sem félasmönnum okkar finnst skipta máli.

Skráning á fundina verður opnuð á vinnumarkaðsvef Samtakanna á næstu dögum og auglýst með tölvupósti á félagsmenn.

Dagskrá funda:

Fyrri hluti: Sérfræðingar SA kynna stöðu efnahagsmála og eiga vinnufund með félagsmönnum til að fá þeirra innlegg í komandi kjaraviðræður.

Síðari hluti: Fræðsla til félagsmanna um starfsmanna- og kjaramál. Sérfræðingar vinnumarkaðssviðs SA fara yfir starfsmanna- og kjaramál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir og skipta fyrirtækin okkar máli.

Staðsetningar funda:

5 . maí → Borgarnes

11 . maí → Ísafjörður

12 . maí → Akureyri

17 . maí → Vestmannaeyjar

18 . maí → Selfoss

25 . maí → Egilsstaðir

31 . maí → Reykjavík

Skráning á fundina opnar á vinnumarkaðsvef SA á næstu dögum.

Samtök atvinnulífsins