Fundir um samband atvinnulífs og byggðaþróunarsjóða ESB 6. og 7. febrúar
Samtök atvinnulífsins og utanríkisráðuneytið efna til tveggja opinna funda þann 6. og 7. febrúar í Reykjavík og á Akureyri þar sem fjallað verður um byggðaþróunarsjóði ESB og áhrif þeirra. Veli-Pekka Ihanus, finnskur sérfræðingur í byggðamálum, mun halda erindi um hvernig sjóðirnir hafa verið nýttir til nýsköpunar og fjármögnunar verkefna í Finnlandi auk þess að fjalla um hvernig þeir geta styrkt atvinnulíf innan ESB og möguleika fyrirtækja á styrkjum.
Fyrri fundurinn fer fram í Reykjavík, í Húsi atvinnulífsins á 6. hæð, Borgartúni 35 kl. 13-15. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU
Seinni fundurinn fer fram í samstarfi við Háskólann á Akureyri þriðjudaginn 7. febrúar. Fundurinn fer fram í stofu M203 (í nýju byggingu HA á 2. hæð) kl. 10-12. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan.