Finnur Geirsson endurkjörinn formaður SA (1)
Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu
formanns samtakanna. Finnur Geirsson, sitjandi formaður, hlaut
98,7% greiddra atkvæða og er hann því réttkjörinn formaður SA
starfsárið 2002 til 2003. Kosningaþátttaka var 54,6%.