EDI-bikarinn til Mjólkursamsölunnar í Reykjavík
Hin árlegu EDI-verðlaun ICEPRO fyrir markvissa og árangursríka
stefnu á sviði staðlaðra rafrænna viðskipta voru í gær
veitt Mjólkursamsölunni í Reykjavík m.a. fyrir markvissa
innleiðingu staðlaðra rafrænna viðskipta með skjalasendingum milli
tölva við birgja og smásöluverslanir. ICEPRO er samráðsvettvangur
samtaka viðskiptalífsins, um 70 fyrirtækja og hins opinbera um
stöðluð rafræn viðskipti og einföldun í viðskiptháttum. Nefndin
mótar stefnu í þessum málum sem samræmist hagsmunum íslensks
atvinnulífs og opinberra aðila. Sjá nánar á heimasíðu ICEPRO.