Christoffer Taxell á aðalfundi SA 18. apríl
Christoffer Taxell, forystumaður í finnsku atvinnulífi og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands verður meðal ræðumanna á opinni dagskrá aðalfundar Samtaka atvinnulífsins sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 18. apríl kl. 14-16. Christoffer hefur víðtæka reynslu úr finnskum stjórnmálum og athafnalífi en hann var formaður erlends sérfræðingahóps sem íslensk stjórnvöld fengu til að gera úttekt á menntakerfi, rannsóknum og nýsköpun í kjölfar bankahrunsins.
Meginskilaboð hópsins birtust í skýrslu sem skilað
var í maí 2009 og voru þau að tryggja yrði sem best fjármagn til
menntunar á öllum stigum, endurskipuleggja þyrfti mennta- og
rannsóknakerfið, leggja áherslu á nýsköpun og hrinda ákveðnum
skipulagsbreytingum hratt í framkvæmd.
Meðal fjölmargra tillagna má nefna að stefnt skyldi að því að háskólarnir yrðu einungis tveir og aukin áhersla yrði lögð á gæði og árangur. Þá skyldi auka samvinnu við atvinnulífið við að móta áherslur í nýsköpun og að efling nýsköpunar yrði sérstakt forgangsverkefni stjórnvalda.
Sjá nánar:
Education, Research and Innovation policy A new direction for Iceland (PDF)