Fréttir - 

21. febrúar 2017

Auglýst eftir stjórnarmönnum í lífeyrissjóði

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Auglýst eftir stjórnarmönnum í lífeyrissjóði

Samtök atvinnulífsins óska eftir umsóknum frá hæfum einstaklingum til að taka að sér stjórnarstörf í lífeyrissjóðum. Í auglýsingu SA sem birt var í dag kemur fram að samkvæmt kjarasamningi SA og ASÍ skipa samtökin helming stjórnarmanna í þeim sjö lífeyrissjóðum sem eru á samningssviði aðila og er framkvæmdastjórn SA falin tilnefning stjórnarmanna.

Samkvæmt reglum sem gilda frá janúar 2017 skulu SA óska með áberandi hætti eftir því að hæfir einstaklingar, sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum SA eða hagsmunasamtökum þeirra, gefi kost á sér til starfa í stjórnum lífeyrissjóða.

Leitað er eftir einstaklingum með fjölbreytta reynslu og þekkingu m.a. á lífeyrismálum, stjórnun, stefnumótun, áætlanagerð og reikningshaldi, lögfræðilegum málefnum og fjármálamarkaði.

Úr þeim hópi sem gefur kost á sér til stjórnarstarfa verða tilnefndir þeir sem metnir eru hæfastir í ljósi þeirra eiginleika sem sóst er eftir í viðkomandi stjórn.

Sérstök hæfisnefnd fjallar um einstaklinga sem gefið hafa kost á sér til stjórnarstarfa. Nefndin leggur mat á þekkingu og reynslu umsækjenda með hliðsjón af þeim eiginleikum sem nauðsynlegt er að viðkomandi stjórn sem heild búi yfir. Að mati loknu leggur hæfisnefndin tillögu fyrir framkvæmdastjórn SA.

Umsóknir sendist í tölvupósti á stjornarseta@sa.is

Um er að ræða eftirfarandi lífeyrissjóði:

Birta lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Gildi - lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Rangæinga, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Stapi lífeyrissjóður.

Auglýsing SA (PDF)

Reglur um tilnefningar Samtaka atvinnulífsins í stjórnir lífeyrissjóða (PDF)

Samtök atvinnulífsins