3,9% atvinnuleysi (1)
Í dag, fimmtudaginn 6. mars eru 6.327
einstaklingar á atvinnuleysisskrá opinberra vinnumiðlana. Miðað við
fjölda starfandi skv. vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar í nóvember
sl. nemur þessi fjöldi 3,88% af mannafla. Fjölgunin frá síðasta
föstudegi nemur 36 einstaklingum. Fleiri eru atvinnulausir nú í
byrjun mars en í lok janúar sem er gegn árstíðasveiflu þar sem
venjulega dregur úr atvinnuleysi í febrúar. Árstíðaleiðrétt
atvinnuleysi fer því vaxandi. Hlutfallslegt atvinnuleysi er svipað
hjá körlum (3,9%) og konum (3,8%). Línuritið sýnir þróunina frá
áramótum, þegar atvinnuleysi mældist 3,1%.
(Smellið á myndina)