Vilhjálmur Egilsson
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Netfang: vilhjalmur@sa.is
Vilhjálmur er fæddur 18. desember 1952
Maki er Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir
Menntun
Vilhjálmur lauk cand. oecon prófi frá Háskóla Íslands árið 1977, M.A. prófi í hagfræði frá University of Southern California árið 1980 og lauk doktorsgráðu í hagfræði frá sama skóla árið 1982.
Starfsferill
Vilhjálmur hefur verið framkvæmdastjórri Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2006.
Ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu frá ársbyrjun 2004 til 2006.
Starfaði fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn á árunum 2003-2004.
Framkvæmdastjóri Verzlunarráðs Íslands á árunum 1987-2003.
Sat á Alþingi á árunum 1991-2003.
Starfaði hjá Vinnuveitendasambandi Íslands, eins af forverum Samtaka atvinnulífsins, á árunum 1982-1987.








