Beint á leiðarkerfi vefsins

Hver eru markmið og tilgangur Samtaka atvinnulífsins?

Markmið SA
Meginmarkmið SA er að skapa fyrirtækjum hagstæð skilyrði til að vaxa, þróast og bera arð. Samtökin kappkosta að veita félögum góða þjónustu og að vera öflugur málsvari atvinnulífsins í landinu.

SA veitir öfluga sérfræðiþjónustu í einstökum málaflokkum.

Helstu þættir hennar eru eftirtaldir:

  • Kjaramál og vinnuréttur
  • Efnahagsmál og hagfræðilegar upplýsingar
  • Skattamál
  • Samkeppnismál
  • Umhverfismál
  • Vinnuverndarmál
  • Menntamál
  • Gerð fyrirtækjasaminga
  • Evrópumál

Fjögur meginatriði í starfi SA

  • Að vera heildarsamtök íslenskra atvinnurekenda og málsvari þeirra í almennum hagsmunamálum atvinnulífsins.

  • Að hafa mótandi áhrif á starfsumhverfi atvinnulífsins og stuðla að samkeppnishæfum og arðsömum atvinnurekstri.

  • Að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi atvinnurekenda að sameiginlegum hagsmunamálum.

  • Að annast samskipti við stéttarfélög og gera kjarasamninga fyrir hönd aðildarfyrirtækja sem falið hafa samtökunum umboð til þess. Jafnframt að leiðbeina aðildarfyrirtækjum um framkvæmd kjarasamninga og önnur vinnumarkaðsmál.



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english