Þetta eru Samtök atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslenskra atvinnurekenda sem hafa það meginmarkmið að skapa fyrirtækjum hagstæð skilyrði til að vaxa, þróast og bera arð. Samtökin eru stofnuð til þess að halda fram sjónarmiðum atvinnurekenda og veita fyrirtækjum á Íslandi margvíslega þjónustu. Samtökin kappkosta að veita félögum góða þjónustu og að vera öflugur málsvari atvinnulífsins í landinu.
Það er mikilvægt að sem allra flest fyrirtæki landsins séu innan vébanda Samtaka atvinnulífsins til þess að þau endurspegli vilja og viðhorf atvinnulífsins alls. Frá sjónarhóli stjórnenda og eigenda hvers fyrirtækis er ekki síður áríðandi að SA séu öflug og einhuga samtök. Verkefni Samtaka atvinnulífins, sem m.a. lúta að kjarasamningum og ákvörðunum stjórnvalda, hafa bein áhrif á afkomu fyrirtækja, jafnt á innlendum sem erlendum vettvangi.
Samtökin hafa innan sinna vébanda átta aðildarfélög og um 2000 smá og stór fyrirtæki þar sem starfa um 55.000 starfsmenn.
Sjá nánari upplýsingar:
Hvert er markmið og tilgangur SA?
Hvernig gerast fyrirtæki aðilar að SA?








