Hér eru sjö góðar ástæður fyrir aðild
Fyrirtæki velja þátttöku í Samtökum atvinnulífsins af mörgum ástæðum. Mjög góð ástæða fyrir aðild fyrirtækja að SA er þátttaka þeirra í einu af átta aðildarfélögum SA en þau sinna sérhagsmunum einstakra atvinnugreina og veita fyrirtækjum margvíslega þjónustu.
Aðrar sjö góðar ástæður fyrir aðild fyrirtækja að SA:
-
Málsvari
SA eru öflugur málsvari löggjafar og atvinnustefnu sem stuðlar að góðum starfsskilyrðum fyrirtækja. Samtökin láta sig varða sérstaklega stefnumörkun og aðgerðir í vinnuverndar- og vinnuréttarmálum, efnahagsstjórnun, skatta- og samkeppnismálum, umhverfis- og jafnréttismálum, rannsóknar-, þróunar- og menntamálum. -
Aukin samkeppnishæfni
SA hafa forgöngu um umfjöllun sem miðar að því að auka samkeppnishæfni, bæta afkomu og stuðla að vaxandi alþjóðavæðingu fyrirtækja á Íslandi. -
Gerð kjarasamninga og samskipti við stéttarfélög
SA gera kjarasamninga fyrir hönd aðildarfyrirtækja, veita aðstoð við gerð fyrirtækja- og ráðningarsamninga og annast samskipti við stéttarfélög í ágreiningsmálum. -
Upplýsingaþjónusta
SA veita aðildarsamtökum og fyrirtækjum sérhæfða ráðgjöf og upplýsingaþjónustu á mörgum þýðingarmiklum sviðum, m.a. í gegnum vefsíðu samtakanna og sérstakan vinnumarkaðsvef SA sem opinn er öllum félagsmönnum, með útgáfu fréttabréfs og upplýsingarita og með ráðstefnu- og námskeiðahaldi. -
Erlent samstarf
SA sinna fjölþættu erlendu samstarfi og gæta hagsmuna íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegri samvinnu atvinnurekenda, m.a. innan Evrópusambandsins. -
Málflutningur
SA annast málflutning fyrir dómstólum í þýðingarmiklum málum sem snerta heildarhagsmuni og réttindi félagsmanna. -
Bætur vegna verkfallstjóns
SA veita atvinnurekendum einstæðar tryggingar í vinnudeilum. Aðildarfyrirtækin eiga rétt á bótum úr sérstökum vinnudeilusjóði SA ef stöðvun verður á atvinnurekstri þeirra að hluta eða öllu leyti af völdum verkfalls sem boðað er af stéttarfélögum starfsmanna.








