Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 var haldinn á síðasta degi vetrar
21. apríl 2010 - á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hófst með venjulegum aðalfundarstörfum kl. 14.
Fundarstjóri var Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Opin dagskrá: ÍSLAND AF STAÐ
Opin dagskrá hófst kl. 15:00 með ræðu Vilmundar Jósefssonar, nýkjörins formanns SA, en að því loknu ávarpaði fundinn Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Þá fluttu fjórir stjórnendur úr atvinnulífinu erindi um hvernig hægt er að koma Íslandi af stað, þau Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka og formaður Samtaka fjármálafyrirtækja, Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja og Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja.
Ræður frummælenda má nálgast hér að neðan:
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
Jóhönna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka og formaður Samtaka fjármálafyrirtækja
Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja
Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja
Foyrsta SA
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins 21. apríl 2010 var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., endurkjörinn varaformaður SA og ný framkvæmdastjórn SA skipuð fyrir starfsárið 2010-2011 - sjá hér að neðan.
Grímur Sæmundsen endurkjörinn varaformaður SA
Ný framkvæmdastjórn SA skipuð 2010-2011
Vefsjónvarp SA
Í tilefni af aðalfundi Samtaka atvinnulífsins 2010 heimsóttu SA félagsmenn og frumkvöðla víðs vegar um landið til að skoða fjölbreytta framleiðslu og verðmætasköpun í öllum regnbogans litum. Afraksturinn má sjá á vef SA í fjölbreyttum sjónvarpsinnslögum.
Slóðin á vefsjónvarp SA er www.sa.is/tv








