Aðalfundur
SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2006
Niðurstöður stjórnarkjörs SA
Í samræmi við 27. grein samþykkta SA gerði kjörstjórn tillögu um 20 menn til setu í stjórn samtakanna fyrir starfsárið 2006 - 2007. Aðrar tillögur bárust ekki og var tilaga kjörstjórnar samþykkt á aðalfundinum 25. apríl 2006.
Nýir í stjórn SA eru þeir Jón Karl Ólafsson Icelandair, Helgi Magnússon Flugger HarpaSjöfn ehf., Bjarni Ármannsson Glitni hf., Helgi Bjarnason Sjóvá Almennum tryggingum hf. og Gunnar Karl Guðmundsson Skeljungi hf.
Úr stjórninni ganga þau Ragnhildur Geirsdóttir FL Group, Þorgeir Baldursson Odda hf. prentsmiðju, Óskar Magnússon Tryggingamiðstöðinni hf., Hreiðar Már Sigurðsson KB banka hf. og Hjörleifur Jakobsson Olíufélaginu ehf.
Eftirtaldir skipa því stjórn SA starfsárið 2006 – 2007 – auk formanns;
| Arnar Sigurmundsson | Samtök fiskvinnslustöðva |
| Bjarni Ármannsson | Glitnir hf. |
| Björgólfur Jóhannsson | Icelandic Group |
| Brynjólfur Bjarnason | Síminn hf. |
| Eiríkur Tómasson | Þorbjörn-Fiskanes hf. |
| Friðrik Jón Arngrímsson | Landssamband ísl. útvegsmanna |
| Gunnar Karl Guðmundsson | Skeljungur hf. |
| Gunnar Sverrisson | Íslenskir aðalverktakar hf. |
| Grímur Sæmundsen | Bláa lónið hf. |
| Guðmundur Ásgeirsson | Nesskip hf. |
| Helgi Bjarnason | Sjóvá Almennar tryggingar hf. |
| Helgi Magnússon | Flugger HarpaSjöfn ehf. |
| Hrund Rudolfsdóttir | Lyf og heilsa hf. |
| Jens Pétur Jóhannsson | Rafmagnsverkstæði Jens Péturs. |
| Jón Karl Ólafsson | Icelandair |
| Kristín Jóhannesdóttir | Baugur Group hf. |
| Loftur Árnason | Ístak hf. |
| Rannveig Rist | Alcan á Íslandi hf. |
| Sveinn Hannesson | Samtök iðnaðarins |
| Vilmundur Jósefsson | Gæðafæði ehf. |








