Aðalfundur
SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2007
Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður SA
Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni rafrænni kosningu formanns samtakanna. Ingimundur Sigurpálsson, sitjandi formaður, hlaut 97,4% greiddra atkvæða og er því réttkjörinn formaður SA starfsárið 2007 til 2008. Kosningaþátttaka var 59%.








