Aðalfundur
SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2007
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins var haldinn á Hótel Nordica þriðjudaginn 17. apríl 2007. Fundurinn hófst kl. 13:00 með venjulegum aðalfundarstörfum.
Fundarstjóri var Kristín Jóhannesdóttir
- Kjör formanns
- Kjör stjórnar
- Kjör endurskoðanda
- Erindi og gögn úr opinni dagskrá
- Dagskrá aðalfundar (pdf-skjal)
- Ársskýrsla SA 2006-2007
- Eldri aðalfundir SA
Opin dagskrá hófst kl. 14:00 - Ísland 2050 - TVEIR Á MÓTI EINUM
Opin dagskrá hófst kl. 14:00 með ræðu nýkjörins formanns SA, en að því loknu ávarpaði fundinn Geir H. Haarde forsætisráðherra. Eftir kaffihlé kynnti Guðbjörg Andrea Jónsdóttir nýja könnun Capacent Gallup á viðhorfum Íslendinga til framtíðarinnar. Fundinum lauk með pallborðsumræðum þar sem þátt tóku; Guðfinna Bjarnadóttir, fv. rektor HR, Karl Wernersson, Milestone, Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvá, Þóra Helgadóttir, hagfræðingur í greiningardeild Kaupþings, Þórður Friðjónsson, forstjóri Nordic Exchange á Íslandi undir stjórn Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Á fundinum var lagt fram nýtt rit SA: Ísland 2050. Fundarlok voru kl. 16:30.








