Beint á leiðarkerfi vefsins

Heildarsamtök atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslenskra atvinnurekenda sem hafa það meginmarkmið að skapa fyrirtækjum hagstæð skilyrði til að vaxa, þróast og bera arð. Samtökin kappkosta að veita félögum góða þjónustu og að vera öflugur málsvari atvinnulífsins í landinu.

Það er mikilvægt að sem allra flest fyrirtæki landsins séu innan vébanda samtakanna til þess að þau endurspegli vilja og viðhorf atvinnulífsins alls. Frá sjónarhóli stjórnenda og eigenda hvers fyrirtækis er ekki síður áríðandi að SA séu öflug og einhuga samtök. Verkefni samtakanna, sem m.a. lúta að kjarasamningum og ákvörðunum stjórnvalda, hafa bein áhrif á afkomu fyrirtækja, jafnt á innlendum sem erlendum vettvangi.

Aðildarfyrirtæki SA eru nú um 2000. Innan þeirra starfa um 50% launamanna á almenna vinnumarkaðinum á Íslandi.

Störf og skipulag SA

Á vef SA eru meðfylgjandi nánari upplýsingar um störf og skipulag SA:

Almenn kynning á starfsemi SA
Hvert er hlutverk SA? Hvað gera samtökin? Hvernig eru þau skipulögð o.s.frv.

Skipulag SA
Stutt lýsing á skipulagi SA og skrifstofum samtakanna sem eru tvær. Hér er umfjöllun um aðalfund, formennsku, framkvæmdastjórn og sambandsstjórn.

Samþykktir SA
eða lög kveða nánar á um skipulag samtakanna.

 Starfsfólk SA
Almennar upplýsingar um starfsfólk samtakanna, starfssvið þeirra og netföng.

Hverjir eru helstu kostir aðildar að SA?
Hér eru sjö ástæður fyrir því að fyrirtæki ættu að eiga aðild að SA.

 Átta aðildarfélög SA
Nánari upplýsingar um aðildarfélög samtakanna og stjórnir þeirra.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english