RÖDD ATVINNULÍFSINS - HORFÐU & HLUSTAÐU
Á vef SA má nú horfa á sjónvarpsinnslög undir yfirskriftinni Rödd atvinnulífsins. SA brugðu sér nýverið af bæ og heimsóttu félagsmenn og frumkvöðla víðs vegar um landið til að skoða fjölbreytta framleiðslu og verðmætasköpun í öllum regnbogans litum. Afraksturinn má sjá hér að neðan en innslögin voru birt dagana fyrir og eftir aðalfund SA sem fram fór þann 21. apríl á Hótel Nordica. Yfirskrift fundarins var ÍSLAND AF STAÐ!
Viðtöl tók Hörður Vilberg, Hreiðar Þór Björnsson sá um myndatöku og Filmus um kvikmyndagerð.
![]() Hvernig geta Þingeyingar nýtt orkuna til atvinnusköpunar? |
![]() Öflugt markaðsstarf mikilvægt í fiskeldi Samherja |
Verðmæti útflutnings Alcoa-Fjarðaáls rúmlega 200 milljónir á dag |
|
|






















