![]() |
||||||||
|
ISSN 1670-2220, 9. tbl. 2003
|
||||||||
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni hér. |
||||||||
|
Launakostnađur hefur aukist tvöfalt á viđ viđskiptalöndin
Á síðustu sex árum hafa laun á almennum
markaði hér á landi hækkað um 45% mælt
í erlendum gjaldmiðli, samanborið við 18% hækkun
að meðaltali í viðskiptalöndum okkar. Hækkunin
hér á landi var því ríflega tvöföld
á þessu tímabili. Launin aldrei veriđ hćrra hlutfall verđmćtasköpunarinnar Lægstu launin hafa hækkað mest
Frá ársbyrjun 1997 hefur kaupmáttur lægstu
launa hækkað um 40%, sem er ríflega tvöfalt meiri
kaupmáttaraukning en átt hefur sér stað hjá
launafólki á almennum vinnumarkaði. Við núverandi
aðstæður er næsta víst að sérstakar
hækkanir lægstu launa myndu færast upp allan launastigann. |
||||||||
|
Í aðdraganda samningalotu |
||||||||
|
Samkeppnin ađ aukast í íslensku atvinnulífi
Flest bendir til að samkeppni hafi aukist mikið í íslensku
atvinnulífi, þótt rannsóknir séu af
skornum skammti, sagði Guðrún Johnsen, hagfræðingur
hjá SA, á morgunfundi Viðskipta- og hagfræðideildar
HÍ. Bæði milljónamæringum og fyrirtækjum
hefur fjölgað gífurlega undanfarin ár og verðlagsþróun
styður ekki kenningar um neikvæð áhrif af fákeppni. Samneyslan hćkkar hér en lćkkar á Norđurlöndum |
||||||||
|
Starfsmenntaverđlaunin til Eimskips, Eftirmenntunar vélstjóra og Verkmenntaskólans
á Akureyri
Starfsmenntaverðlaunin í ár hljóta Eimskip í
flokki fyrirtækja, Eftirmenntun vélstjóra í
flokki skóla og fræðsluaðila og Verkmenntaskólinn
á Akureyri í opnum flokki.
Stytting náms til stúdentsprófs |
||||||||
Ađalfundur Samtaka fiskvinnslustöđva 3. október
Aðalfundur LÍÚ 30.-31. október |
||||||||
|
Kaupmáttur jókst um 3,2%
Á tímabilinu frá 2. ársfjórðungi
2002 til 2. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg
laun að meðaltali um 5,2%, samkvæmt niðurstöðum
launakönnunar Kjararannsóknarnefndar (KRN). Á sama
tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,0%
og samkvæmt því jókst kaupmáttur að
meðaltali um 3,2%. Vaxandi hlutfall langtíma atvinnuleysis |
||||||||
|
Nýsköpunarstyrkir Starfsafls fyrir fyrirtæki Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Ertu í
samstarfi við aðra evrópska aðila í starfs-
menntamálum? Landsskrifstofa Leonardó á Íslandi
lýsir eftir umsóknum um styrki í mannaskipta- og
tilraunaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB.
Umsóknar- frestur er til 3. október 2003. Evrópustyrkir vegna nýsköpunar |
||||||||
|
Heimsviðskiptin misstu af tækifæri í Cancun
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, lýsa yfir
miklum vonbrigðum með að fundur WTO í Cancun skuli
hafa farið út um þúfur. Samtökin lýsa
áhyggjum af mögulegum áhrifum á framtíð
WTO og hvetja öll aðildarríkin til að leggja sitt
af mörkum til að framhald verði á Doha-samningalotu
WTO um aukið frelsi í viðskiptum. Frakkar hætta við styttingu vinnuvikunnar |
||||||||
| Launamunur kynjanna 3-7% í Danmörku Samkvæmt nýlegri könnun dönsku aðila vinnumarkaðarins nemur sá launamunur sem ekki næst að útskýra með öðrum þáttum en kyni 3,4 til 7,4%. Byggt var á aðferð sem horfir ekki á kyn sem skýringarbreytu heldur gerir heildstæðar aðskildar rannsóknir á launum kynjanna og ber þau síðan saman. Aðferðinni hefur einu sinni verið beitt hérlendis og var niðurstaðan þá 7,5-11% óútskýrður munur. Ýmis gögn eru þó ófullkomnari hér. |
||||||||
|
Hönnun og forritun: Vefur.is
|