9. tbl. 2002
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Vöxtur færist til jaðarsvæða höfuðborgarsvæðisins

 

Margt bendir til að framleiðslufyrirtæki muni í auknum mæli flytjast frá höfuðborgarsvæðinu til nærliggjandi sveitarfélaga á komandi árum. Lægri launakostnaður og húsnæðisverð skipta þar miklu auk bættra samgangna. Þetta er niðurstaða lokaverkefnis í hagfræði við Háskóla Íslands.
Sjá nánar

Hvenær er starfsmaður veikur?
Starfsmenn sem tilkynna veikindaforföll verða að upplýsa vinnuveitanda sinn um hvaða verkefnum þeir geti sinnt og hverjum ekki vegna veikindanna, að höfðu samráði við lækni. Þetta er efni þríhliða samkomulags ríkis og aðila vinnumarkaðar í Noregi.
Sjá nánar

Ábyrgt fjárlagafrumvarp
Fjárlagafrumvarp næsta árs einkennist frekar af langtímahugsun en af kosningaári, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Hann telur jafnframt að forsenda útgjaldaáætlana sé að það takist að hemja vöxtinn í heilbrigðiskerfinu.
Sjá nánar

Góðar horfur fyrir atvinnulífið

 

Ef vextir halda áfram að lækka, bæði til skamms og langs tíma, jafnvægi ríkir á vinnumarkaðnum og gengi krónunnar hækkar ekki frá því sem nú er má gera ráð fyrir að afkoma fyrirtækjanna í landinu verði góð á næsta ári.
Sjá nánar




Ódýr húsnæðislán, hærra húsnæðisverð
Íslensk heimili eru einhver þau skuldsettustu í heimi og um helmingur skuldanna eru húsnæðislán, sem m.a. má rekja til skuldhvetjandi húsnæðislánakerfis. Á sama tíma fer húsnæðisverð hækkandi, en vísitala neysluverðs án húsnæðis var sú sama í september og í janúar.
Sjá nánar

Tímasetningin góð, en áskorun fyrir hagstjórn

 

Á opnum fundi SA var það sameiginlegt mat manna að lítill hagvöxtur væri framundan á næstu árum ef ekki kæmi til stóriðju- framkvæmda. Ekki væri því veruleg hætta á ofþenslu vegna þeirra, að því tilskildu að gripið yrði til tiltækra mótvægisaðgerða í opinberri hagstjórn. Stærð framkvæmdanna væri slík að ella væri hætta á óæskilegum „ruðnings- áhrifum.“
Sjá nánar

Breyta þarf samkeppnislögum

 

Það er bráðnauðsynlegt að ráðast í frekari breytingar á samkeppnislögunum og það þarf að gerast á þessu þingi, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir réttarfarsþáttinn ekki síst knýja á um breytingar.
Sjá nánar


Setja þarf reglur um framkvæmd húsleitar
Á fundi Verslunarráðs um húsleit hjá fyrirtækjum var rík samstaða um að brýn nauðsyn væri á setningu skýrari reglna um framkvæmd húsleitar á vegum Samkeppnisstofnunar, t.d. í anda viðmiðunarreglna embættis skattrannsóknarstjóra.
Sjá nánar

Nýr Hæstaréttardómur um launafrádrátt á uppsagnarfresti

 

Hæstiréttur hefur staðfest að ef ekki er óskað vinnuframlags á uppsagnarfresti er vinnuveitanda heimilt að draga frá launum starfsmanns það sem hann vinnur sér inn annars staðar, á þeim tíma sem hann hefði að öðrum kosti verið í vinnu hjá fyrirtækinu.
Sjá nánar

Starfsdagar í skólum valda áhyggjum

 

Starfsdagar í skólum og leikskólum valda oft mikilli röskun og óþægindum fyrir foreldra og vinnustaði þeirra. SA hefur að undanförnu borist fjöldi erinda þar sem fyrirtæki lýsa áhyggjum sínum vegna þessa og spyrja hvort ekki sé hægt að skipuleggja þá með skilvirkari hætti.
Sjá nánar

Upplýsingavefur um námsframboð
Mennt.is, upplýsingavefur um námsframboð, var formlega opnaður í dag, en hann á að hýsa upplýsingar um allt nám sem í boði er á Íslandi eftir að grunnskólanámi lýkur. Það voru Finnur Geirsson, formaður SA, og Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, sem opnuðu vefinn.
Sjá nánar

Starfsmenntaverðlaunin til ÚA, MFA og Iðan.is

 

Starfsmenntaverðlaunin í ár hljóta Útgerðarfélag Akureyringa í flokki fyrirtækja, Menningar- og fræðslusamband alþýðu í flokki skóla og fræðsluaðila og Iðan, upplýsingavefur Samtaka iðnaðarins í opnum flokki.
Sjá nánar



Yfirlit yfir starfsmenntamál
Ýmsir aðilar koma að menntamálum atvinnulífsins, veita fyrirtækjum og launafólki upplýsingar og styrki og sjá um kennslu og aðra þjónustu. Samtök atvinnulífsins hafa nú tekið saman aðgengilegt heildaryfirlit yfir þennan málaflokk á heimasíðu sinni.
Sjá nánar

 

Alþjóðleg fagsýning þekkingariðnaðarins 10.-12. október

Námskeiðaröð Jafnréttisstofu í október

„Forysta og fyrirtækjarekstur í stækkaðri Evrópu“ 31. okt.

Málstofur í haust um starfsmenntasjóðinn Starfsafl

ESB virði hefðir aðildarríkjanna
Aðilar vinnumarkaðarins í Danmörku leggja í sameiningu áherslu á mikilvægi þess að ESB virði hefðir hvers aðildarríkis á vinnumarkaði og vilja sjá einföldun á Evrópusamstarfinu, en Danir fara nú með formennsku í ESB. Þá skuli ESB leggja áherslu á samkeppnishæfni.
Sjá nánar

ESB hafnar erindi SVÞ

 

ESB hafnar því að viðbrögð þess við tollum Bandaríkjamanna á innflutt stál sé brot á EES samningnum. SVÞ fengu Evrópusamtök verslunarinnar til að taka málið upp við framkvæmdastjórn ESB.
Sjá nánar

Gott sumar í ferðaþjónustu
Sumarið virðist víðast hvar hafa verið gott ferðasumar, herbergjanýting ágæt og bílaleigur og rútufyrirtæki ánægð. Athygli vekur að bandarískum ferðamönnum fór aftur að fjölga í sumar, eftir nokkurn samdrátt í kjölfar 11. september 2001.
Sjá nánar í féttabréfi SAF

Hönnun og forritun: Vefur.is