![]() |
||||||||
|
ISSN 1670-2220, 8. tbl. 2003
|
||||||||
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni hér. |
||||||||
|
Íslensk fyrirtæki með í mótun Evrópulöggjafar
Íslensk fyrirtæki munu taka þátt í nýju
rafrænu umsagnarkerfi ESB um mótun nýrrar Evrópu-
löggjafar, fyrir milligöngu SA og aðildarfélaga.
Þannig fá íslensk fyrirtæki tækifæri
til að tjá sig á frumstigi um Evrópulöggjöf
sem getur haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi þeirra
eftir að hún er tekin upp í íslenska löggjöf
í gegnun EES-samninginn. Bætt réttaröryggi fólks og fyrirtækja |
||||||||
|
Lifi samkeppnin |
||||||||
|
Ábyrgð nýs rekstraraðila gagnvart starfsmönnum
Við kaup á fyrirtæki eða hluta þess og samruna
fyrirtækja geta starfsmenn átt rétt á að
flytjast yfir til hins nýja rekstraraðila með óbreyttum
kjörum og nýji rekstraraðilinn jafnvel verið ábyrgur
fyrir ógreiddum launaskuldum fyrri vinnuveitanda gagnvart þeim
starfsmönnum sem hefja störf hjá honum. Réttur til orlofstöku, ekki orlofslauna Fá atvinnu- og dvalarleyfi með flýtimeðferð
Sérstakt fyrirkomulag er í gildi varðandi ráðningu
erlends starfsfólks úr starfsgreinum þar sem skortur
ríkir í Danmörku. Danska útlendingastofan heldur
lista yfir umræddar starfsgreinar og veitir starfsfólki úr
þeim, frá löndum utan EES, atvinnu- og dvalarleyfi með
flýtimeðferð. |
||||||||
|
SA og samkeppnismálin
Undanfarin ár hafa SA ítrekað bent á ýmsa
ágalla á samkeppnislöggjöfinni og framkvæmd
hennar og sett fram ýmsar tillögur til úrbóta,
m.a. í ítarlegri skýrslu. Nú hafa öll
þau skrif sem SA hafa sent frá sér um samkeppnismál,
ýmis viðtöl sem birst hafa í fjölmiðlum
o.fl. verið tekin saman á einum stað á heimasíðu
samtakanna.
Nýir starfsmenn til SA
Tveir nýir starfsmenn hafa tekið til starfa hjá Samtökum
atvinnulífsins. Guðrún Johnsen hefur hafið störf
á hagdeild samtakanna og Auður Guðmundsdóttir hefur
hafið störf sem móttökuritari. |
||||||||
| Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl. Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Ertu í
samstarfi við aðra evrópska aðila í starfsmenntamálum?
Landsskrifstofa Leonardó á Íslandi lýsir eftir
umsóknum um styrki í mannaskipta- og tilraunaverkefni Leonardo
da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur
er til 3. október 2003. Vika símenntunar 7.-13. september
Vika símenntunar verður haldin dagana 7.-13. september nk.
Málþing, sérstakur símennta- dagur í
fyrirtækjum o.fl. er meðal þess sem verður á
döfinni, en þema vikunnar að þessu sinni er fjarnámog
aðrar óhefðbundnar leiðir til náms. |
||||||||
|
Opinn fundur um samstarf menningar- og atvinnulífs
Föstudaginn 5. september nk. gangast Listahátíð
í Reykjavík og Höfuðborgarstofa, í samvinnu
við SA, fyrir opnum fundi í Listasafni Reykjavíkur um
samstarf menningar- og atvinnulífs. Aðalfyrirlesari verður
Mikael Strandänger, framkvæmdastjóri alþjóðlegu
samtakanna Arts and Business. Vika símenntunar 7.-13. september Klasar og samkeppnishæfni fyrirtækja og svæða,
9.-10. sept. |
||||||||
|
Launahækkanir nær tvöfalt meiri hérlendis Sérkjarasamningur vegna jarðgangagerðar undirritaður
Í júlí var undirritaður sérkjarasamningur
milli SA og hlutaðeigandi verkalýðsfélaga vegna
vinnu við gerð jarðganga milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Samningurinn fjallar um skipulegar 10 daga vinnulotur, fyrirkomulag vakta,
ferðir til og frá vinnustað, tryggingar og öryggismál,
og hefur sama gildistíma og aðalkjarasamningar samningsaðila,
þ.e. til næstu áramóta. |
||||||||
|
Þörf á hagræðingu í heilbrigðiskerfinu
Hægt er að nýta kosti samkeppni og einka- rekstrar til
hagræðingar í heilbrigðiskerfinu, án þess
að hlutur hins opinbera í kostnaði við hvern sjúkling
minnki, né heldur gæði þjón- ustunnar, sagði
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, m.a. í erindi á
málþingi LSH um rekstur sjúkrahúsa o.fl. Óhagkvæmt fyrirkomulag frítöku Önnur verkefni í stað veikindafjarvistar? |
||||||||
|
Hönnun og forritun: Vefur.is
|