![]() |
||||
|
8. tbl. 2002
|
||||
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni hér. |
||||
|
Litlar veikindafjarvistir á Íslandi? Veikindafjarvistir virðast vera talsvert minni hér á
landi en á öðrum Norðurlöndum, en hérlend
gögn eru reyndar mjög takmörkuð. Erlendis eru þær
meiri hjá hinu opinbera en í einkageiranum og vísbendingar
eru um það sama hér á landi. Ætla má
að beinn kostnaður vegna veikindafjarvista sé um 20-25
milljarðar króna á ári.
Nýlegar breytingarnar á dönsku samkeppnislögunum
miða að því að skerpa og herða ákvæði
laganna. Þrátt fyrir þessar breytingar í Danmörku
verður að telja að samkeppnislög og framkvæmd þeirra
sé í ýmsum atriðum mun harðari og þrengri
hér á landi en þar. |
||||
|
Væntanlegar stóriðjuframkvæmdir Brýnt að endurskoða samkeppnislög |
||||
|
Stöðugleiki og stóriðjuframkvæmdir 11. september
Miðvikudaginn 11. september standa SA fyrir morgunverðarfundi
undir yfirskriftinni Stöðugleiki og stóriðjuframkvæmdir
- er hætta á ofþenslu? Frummælendur verða
Ari Edwald frá SA, Bolli Þór Bollason, fjármálaráðuneyti
og Þórarinn G. Pétursson, Seðlabanka Íslands. Ráðstefna um Evrópumál 12.-13. september |
||||
|
Vika símenntunar 8.-14. september
Vika símenntunar verður haldin 8.-14. september í ár
og er yfirskriftin Símenntun í atvinnulífinu. Málþing,
fræðsluhátíð og símenntunardagurinn
eru meðal þess sem á döfinni verður. |
||||
|
Nýr Evrópusamningur um fjarvinnu Telja eldra starfsfólk verðmætara
Um helmingur danskra fyrirtækja í verslun og þjónustu
telur eldra starfsfólk verðmætara en það yngra,
en tæp 20% fyrirtækjanna eru því ósammála.
Þekking, stöðugleiki og ábyrgðartilfinning eru
sagðir helstu kostir eldra starfsfólks. |
||||
|
198 tillögur til minnkunar á reglubyrði
Danska ríkisstjórnin hefur kynnt áætlun um
að einfalda lög og reglur, einfalda opinbera stjórnsýslu,
afnema óþarfa reglur og minnka skriffinskubyrði fólks
og fyrirtækja. Í ítarlegri aðgerðaáætlun
eru lagðar fram 198 tillögur í þessu skyni. |
||||
|
Aukið hlutverk einkageirans í t.d. heilbrigðiskerfinu Svigrúm fyrir stórframkvæmdir
Stjórn Samtaka iðnaðarins telur að vegna framleiðsluslaka
í hagkerfinu standi verðstöðugleika ekki ógn
af fyrirhuguðum framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun
og álver í Reyðarfirði. |
||||
|
Meirihluti launamunar skýrður |
||||
|
ESB auki samráð við aðila vinnumarkaðarins
Framkvæmdastjórn ESB hvetur til aukins samráðs
ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins
við aðila vinnumarkaðarins, sem hún telur best fallna
til þess að ná skynsamlegu jafnvægi á milli
sveiganlegri vinnumarkaðar og traustra félagslegra réttinda.
SA eiga m.a. aðild að Evrópusamtökum atvinnulífsins. 6. rannsóknaáætlun ESB að hefjast |
||||
|
Ríkið hætti verslunarrekstri
SVÞ krefjast þess að stjórnvöld láti
af áformum sínum um að viðhalda sölu á
snyrtivörum, rafmagnstækjum, sælgæti og tóbaki
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, svo og í öðrum
flughöfnum, þegar breytingar verða gerðar á
rekstri flugstöðvarinnar um næstu áramót. Átta íslensk fyrirtæki meðal 500 framsæknustu |
||||
|
Hönnun og forritun: Vefur.is
|