![]() |
||||||||
|
ISSN 1670-2220, 7. tbl. 2003
|
||||||||
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni hér. |
||||||||
|
Višsnśningur į vinnumarkaši 77% fyrirtækja hyggjast halda óbreyttum fjölda starfsfólks
næstu 3-4 mánuði, skv. könnun SA. 13% hyggjast fjölga
starfsfólki en 10% hyggjast fækka því. Þetta
er töluverður viðsnúningur frá í desember,
en þá hugðist 21% fyrirtækja fækka starfsfólki
og 8% fjölga því. Nokkur starfsmanna- fækkun virðist
framundan í fiskvinnslu, útgerð og fjármálaþjónustu,
en fjölgun í iðnaði og ferðaþjónustu. Hagræði af tilfærslu fimmtudagsfrídaga
Forsvarsmenn 82% fyrirtækja telja að tilfærsla einhverra
fimmtudagsfrídaganna á vorin yfir á heppilegri tíma
myndi stuðla að hagræði í rekstri. Helst hefur
verið rætt um sumardaginn fyrsta og uppstigningardag í
þessu sambandi. |
||||||||
|
Greiðari leið fyrir erlent starfsfólk |
||||||||
|
Félagsdómur túlkar útkallsákvæði
kjarasamninga Tekjulækkun á ári sem svarar mánaðarveltu
Gengishækkun krónunnar kemur illa við allar útflutningsgreinar
og greinar í erlendri samkeppni. Á fundi Samtaka fiskvinnslustöðva
á dögunum var fjallað um sérstaka erfiðleika
rækjuvinnslunnar, en á einu og hálfu ári hafa
tekjur greinarinnar dregist saman um sem svarar eins mánaðar
veltu á ári. Mjög brýnt að samkeppnislögin verði endurskoðuð Mæla með auknum hlut einkaaðila
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir
gagnlegt að auka hlut einkaaðila við að veita almannaþjónustu
og efla tengsl þjónustugjalda og raunverulegs kostnaðar
við þjónustuna. Í samtali við Fréttablaðið
segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður
hjá SA, þetta að mestu í anda þess sem SA
hafi boðað, en undanskilur þjónustugjöld í
heilbrigðiskerfi. |
||||||||
|
3,2% kaupmáttaraukning launa
Á tímabilinu frá 1. ársfjórðungi
2002 til 1. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg
laun að meðaltali um 5,1%. Á sama tíma hækkaði
vísitala neysluverðs um 1,9% og samkvæmt því
jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 3,2% á
tímabilinu. Minnkandi atvinnuleysi Vaxandi hlutfall langtímaatvinnulausra
Í lok maí hafði 1.601 einstaklingur verið á
atvinnuleysisskrá í 6 mánuði eða lengur,
eða 27,6% af heildarfjölda atvinnulausra. Þetta hlutfall
var 20,3% í lok maí 2002. |
||||||||
Starfsmenntaverðlaunin 2003
Starfsmenntaverðlaunin verða afhent í fjórða
skiptið í september nk og er óskað eftir tilnefningum
í flokkum fyrirtækja og félaga- samtaka, skóla
og fræðsluaðila og í opnum flokki. Frestur til þess
að tilnefna rennur út 10. ágúst.
Íslendingar reiðubúnari að taka þátt
í kostnaði við menntun sem tryggt getur þeim störf |
||||||||
|
Náið verði fylgst með áhrifum á EES-samninginn
Í áliti sínu til ráðherraráðs
EFTA leggur ráðgjafarnefnd samtakanna áherslu á
mikilvægi þess að EFTA fylgist grannt með áhrifum
væntanlegrar stjórnarskrár ESB á EES-samninginn
og hefji sem fyrst undirbúning viðbragða, til að sem
best verði áfram staðinn vörður um hagsmuni EFTA-ríkjanna. Stuðningur við stjórnarskrárdrög ESB Forsetaskipti hjá UNICE
Þann 1. júlí verða forsetaskipti hjá UNICE,
Evrópusamtökum atvinnulífsins, en þá lætur
George Jacobs af embætti og við tekur Jürgen F. Strube.
Strube er doktor í lögum og er m.a. stjórnarformaður
þýsku viðskiptasamsteypunnar BASF. |
||||||||
|
Handbók um gæðastaðla gefin út á
íslensku Góð reynsla af einkarekstri fangelsa
Samkeppni milli fangelsa, í opinberum rekstri og í einkarekstri,
hefur leitt til betri þjónustu og lægri kostnaðar,
auk þess að vinna gegn almennri andstöðu kerfisins
við breytingar, að sögn yfirmanns fangelsismála í
breska innanríkisráðuneytinu. Hann segir einkareknu
fangelsin meðal þeirra bestu í landinu. Ráðstefna um vinnuvistfræði Af vettvangi kemur næst út 4. september |
||||||||
|
Hönnun og forritun: Vefur.is
|