7. tbl. 2002
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Fyrirtęki hyggjast fękka fólki

 

Að meðaltali hyggjast fyrirtæki fækka starfsfólki um 0,8%, samkvæmt könnun SA. Þetta er talsvert hærri tala en mælst hefur að undanförnu. Einkum hyggjast stærri fyrirtæki fækka fólki. Mestur samdráttur er framundan í ferðaþjónustu og meiri á landsbyggð en á höfuðborgarsvæði.
Sjį nįnar


Umsvif ríkisins í atvinnulífinu jukust - en hlutur þess minnkaði
Frá árinu 1991 hefur ríkið selt hlut sinn í 27 fyrirtækjum fyrir 30 milljarða króna. Á tímabilinu 1993-99 jókst eigið fé ríkisfyrirtækja að raungildi um 12%, en hlutfall þeirra af eigin fé íslenskra fyrirtækja minnkaði úr 26% í 17%. Ríkið er mjög umsvifamikið í rekstri orku-, fjarskipta- og fjármálafyrirtækja.
Sjį nįnar

Lengra skólaár ekki erfitt fyrir atvinnulífið

 

Þrjú af hverjum fjórum fyrirtækjum telja að lenging skólaársins um t.d. einn mánuð myndi ekki hafa veruleg áhrif á starfsmannahald þeirra, samkvæmt könnun SA. Einungis innan ferðaþjónustunnar telur meirihluti svo vera, eða 56% fyrirtækja.
Sjį nįnar

Stytting námstímans
Lengri námstími en í nágrannalöndunum felur í sér kostnað fyrir þjóðfélagið jafnt sem nemendur. SA leggja til styttingu grunn- og framhaldsskólastigs um eitt ár hvort, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs SA.
Sjį nįnar

Styrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði
Fyrirtæki geta sótt um styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði til sérstakra verkefna á vegum svæðisvinnumiðlana, t.d. tímabundinna verkefna. Vinnumálastofnun vill vekja athygli fyrirtækja og stofnana á höfuðborgarsvæðinu á þessum möguleika.
Sjá nánar

Samdráttur á vinnumarkaði skv. skýrslu Vinnumálastofnunar

 

Atvinnurekendur vilja fækka starfsfólki um 4-500, sem eru 0,4% af mannafla á vinnumarkaði, samkvæmt nýlegri skýrslu Vinnumálastofnunar. Talsverður munur er á landsbyggð og höfuðborgarsvæði. Atvinnuleysi í ár verður 2,3%, sem er talsvert hærra en undanfarin ár.
Sjá nánar

Enginn tekjuskattur fyrirtækja á Mön 2006?
Fjármálaráðuneyti Manar hefur boðað frumvarp til skattalaga sem gerir ráð fyrir að fyrirtæki greiði engan tekjuskatt frá og með 2006. Stefnan er að gera eyjuna að fyrirmyndar skattlögsögu, þar sem saman fara vandað skattkerfi, virkt skatteftirlit og lægstu skattstigar.
Sjá nánar

Mat lagt á jákvæð áhrif minni reglubyrði

 

Sænska ríkisstjórnin hefur beðið tvær rannsóknarstofnanir um að undirbúa framkvæmd vandaðrar úttektar á jákvæðum áhrifum þess fyrir sænskt atvinnulíf að dregið verði úr reglubyrði af hálfu hins opinbera. Reiknað er með að úttektin verði gerð árið 2003.
Sjá nánar

Af þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO)
Barnavinna, þríhliða samvinna aðila vinnumarkaðar og ríkisstjórna, framkvæmd aðildarríkjanna á alþjóðasamþykktum ILO, skráning atvinnusjúkdóma og neðanjarðar hagkerfið í þróunarríkjunum voru meðal umfjöllunarefna á 90. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO).
Sjá nánar

Stjórnarformaður BASF kjörinn forseti UNICE

 

Dr. Jürgen Straube, stjórnarformaður BASF AG, hefur verið kjörinn nýr forseti UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins. Hann tekur þó ekki við embætti fyrr en í júlí 2003 en þangað til gegnir sitjandi forseti, Georges Jacobs stjórnarformaður UCB SA, embættinu áfram.
Sjį fréttatilkynningu UNICE (pdf-skjal)

Mikil þátttaka feðra í fæðingarorlofi
Frá gildistöku nýrra laga um fæðingarorlof hafa umsóknir feðra verið um 80% af umsóknum mæðra. Kostnaður var 2,8 milljarðar árið 2001 en verður líklega 4,5 til 5 milljarðar í ár og um 5,5 milljarðar 2003. Það er um 45% meiri kostnaður en reiknað var með í frumvarpi til laganna.
Sjį nánar

Aldur hefur ekki áhrif á atvinnumöguleika

 

Möguleikar atvinnulausra á að fá starf hafa ekkert með aldur þeirra að gera. Meðal þess fólks sem danskar atvinnumiðlanir hafa vísað í atvinnuviðtöl hafa eldri aldurshóparnir komið svipað út og aðrir, að þeim allra yngstu undanskildum.
Sjį nánar

Fiskur og stækkun ESB: ekki sömu lausn og síðast
Við stækkun ESB falla fríverslunarsamningar nýju aðildarríkjanna við EFTA-ríkin úr gildi, m.a. fríverslun með fisk. Ráðgjafarnefnd EES hvetur til þess að horft sé fram á við í leit að lausn, fremur en að einfaldlega sé byggt á útreikningum á viðskiptum síðustu ára.
Sjá nánar

Áhersla á aukna samkeppnishæfni ESB

 

Samtök iðnaðarins í Danmörku leggja megináherslu á að Danir nýti formennskutíð sína til að efla samkeppnishæfni ESB. Þau vilja m.a. aukinn sveigjanleika á vinnumarkaði, lægri landbúnaðarstyrki og aukið fé til rannsókna. Þá hafna þau samræmdum skatti á fyrirtæki.
Sjá nánar

Lækkun landbúnaðarstyrkja myndi auka velferð

 

Helmings lækkun landbúnaðarstyrkja ESB myndi auka velferð innan sambandsins um yfir þúsund milljarða króna á ári. Þetta er niðurstaða skýrslu sem von er á frá rannsóknarstofnun danska landbúnaðarráðuneytisins í matvælahagfræði.
Sjá nánar

Af vettvangi kemur næst út 5. september
Vegna sumarleyfa mun fréttabréfið Af vettvangi ekki koma út í ágústmánuði. Það kemur næst út fimmtudaginn 5. september.

Hönnun og forritun: Vefur.is