6. tbl. 2002
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Rķkiš greišir 15-20% hśsnęšisveršs

 


Styrkur ríkisins við húseigendur nemur samtals 10-15 milljörðum króna á ári, eða um 15-20% af kaupverðinu. Ríkistryggð lán til húseigenda hafa aukist um rúm 50% frá 1995 og sterk rök hníga að því að útlán sjóðsins eigi mikinn þátt í þenslu undanfarinna ára.
Sjį nįnar


Áhrif félagsmálastefnu ESB á Íslandi
Margar tilskipanir ESB á félagsmálasviðinu hafa áhrif til minnkunar á sveigjanleika á vinnumarkaði, en flestar þeirra gilda á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Það eru eingöngu þær reglur sem byggja á nýjum samstarfssviðum sem Ísland er óbundið af að taka upp.
Sjį nįnar

Einkavætt á ný
„Með þessari leið getur kjölfestufjárfestir einfaldlega litið dagsins ljós á eftirmarkaði“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann segir það skemmtilega tilraun að bjóða bréfin í Landsbanka Íslands ekki á tilteknu lágmarksverði, heldur selja í gegnum viðskiptakerfi Verðbréfaþings Íslands.
Sjį nįnar

SA flutt ķ Borgartśn 35

 
Samtök atvinnulífsins hafa flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði við Borgartún 35, hús atvinnulífsins, þar sem samtökin og aðildarfélög þeirra sjö verða öll til húsa. Nýtt símanúmer SA er 591-0000 og bréfsími er 591-0050.





Jón Sigurðsson til SA
Jón Sigurðsson rekstrarhagfræðingur hefur verið ráðinn verkefnisstjóri á stefnumótunar- og samskiptasviði Samtaka atvinnulífsins. Hann hóf störf í byrjun júní. Verkefni Jóns hjá SA munu m.a. snúa að mennta-, samkeppnis- og skattamálum.
Sjá nánar

Finnur Geirsson endurkjörinn formaður SA

 

Á aðalfundi SA þann 7. maí var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu formanns samtakanna. Finnur Geirsson, sitjandi formaður, hlaut 98,7% greiddra atkvæða og er hann því réttkjörinn formaður SA starfsárið 2002 til 2003. Kosningaþátttaka var 54,6%.


Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins
Á aðalfundi SA var lýst kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2002-2003. Nýir koma inn í stjórnina þeir Bjarni H. Matthíasson, Raflögnum Íslands, Guðlaugur Adolfsson, Fagtak, Gunnar Felixsson, Tryggingamiðstöðinni og Jón Helgi Guðmundsson, BYKO.
Sjá nánar

Opinberir aðilar mega ekki leiða launaþróunina
Hið opinbera hefur um margra ára skeið leitt launaþróun í landinu. Í erindi sínu á aðalfundi SA sagði Finnur Geirsson, formaður samtakanna, það útilokað að þetta gæti gengið. Hann sagði einkavæðingu og rekstrarútboð raunhæfustu lausnina.
Sjá nánar

Samkeppnishæf samkeppnislög

 

SA leggja fram tíu tillögur til úrbóta á samkeppnislöggjöfinni. Á aðalfundi samtakanna kynnti Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, skýrslu samkeppnislagahóps samtakanna. Hann sagði brýnt að hér gildi sambærilegar samkeppnisreglur og annars staðar.
Sjá nánar

Rauða strikið stóðst

 

Vísitala neysluverðs er 221,8 stig í maí og því ljóst að rauða strikið stóðst. Í sameiginlegri fréttatilkynningu SA og ASÍ er áhersla lögð á mikilvægi áframhaldandi aðhalds að verðlagi, lækkun vaxta og ráðdeild í fjármálum ríkis og sveitarfélaga.
Sjį nánar

Upplýsta umræðu um Evrópumálin

 

Í ávarpi sínu á aðalfundi SA lagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra, áherslu á mikilvægi upplýstrar umræðu um Evrópumálin og fjallaði um fórnarkostnað aðildar. Þá sagði hann væntingar standa til að vextir héldu áfram að lækka á næstu vikum, mánuðum og misserum.
Sjá nánar á heimasíðu forsætisráðuneytis

SVÞ andmæla skerðingu á viðskiptafrelsi verslana
SVÞ andmæla drögum Samkeppnisstofnunar að leiðbeinandi reglum um viðskipti birgja og matvöruverslana, þar sem kveðið sé á um að matvöruverslunum beri að skipta við hérlenda birgja nema þær geti sannað að með eigin innflutningi fáist hagstæðari kjör.
Sjá nánar

Bregðast þarf við minnkandi vægi EFTA

 

Bregðast þarf við minnkandi vægi EFTA-stoðar EES, sagði Siri Bjerke, forstöðumaður hjá NHO og fyrrverandi umhverfisráðherra Noregs í erindi á aðalfundi SA. Samtökin leggja áherslu á nauðsyn samkeppnishæfra starfsskilyrða, m.a. til að vega upp á móti evrunni.
Sjá nánar

Atvinnulífið og Evrópumálin
Í umræðum fimm forstjóra um atvinnulífið og Evrópumálin á aðalfundi SA komu m.a. fram þau sjónarmið að krónan væri óhjákvæmilega á útleið, að EES-samningurinn tryggði starfsumhverfið almennt vel, að hérlendis væri erfitt að fjárfesta, hagstjórn væri möguleg við evruaðild og sjávarútvegsstefna ESB óásættanleg.
Sjá nánar

Viðbótarframlag í séreignarsjóð frá 1. júlí 2002
Frá og með 1. júlí 2002 ber atvinnurekanda að greiða 1% framlag í séreignarsjóð starfsmanns. Breytingin nær til þeirra starfsmanna sem ekki nýta sér heimild til viðbótarlífeyrissparnaðar, en tekur ekki til fiskimanna.
Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA (opinn félagsmönnum)

Ísland sker sig úr

 

Ólíkt flestum öðrum þjóðum er það hið opinbera sem leiðir launaþróunina hérlendis. Þetta er þvert á þá yfirlýstu stefnu stjórnvalda að það sé á almennum vinnumarkaði sem svigrúm til launakostnaðarhækkana sé ákvarðað.
Sjį nįnar


Minnkandi eftirspurn á vinnumarkaði
Eftirspurn á vinnumarkaði fer minnkandi, skv. atvinnukönnun Þjóðhagsstofnunar. Í fyrsta sinn síðan 1996 vilja atvinnurekendur fækka við sig starfsfólki í aprílmánuði, alls um 0,5% af mannafla á vinnumarkaði.
Sjá nánar á heimasíðu Þjóðhagsstofnunar

Samkeppnishæf samkeppnislög
Skýrsla samkeppnislagahóps SA sem kynnt var á aðalfundi samtakanna 7. maí. Í skýrslunni er að finna samanburð á íslenskri og erlendri samkeppnislöggjöf og tillögur til úrbóta.
Sjá skýrsluna (pdf-snið)

Įrsskżrsla SA

 

Įrsskżrsla Samtaka atvinnulķfsins fyrir starfsįriš 2001-2002, sem dreift var į ašalfundi samtakanna 7. maķ. Ķ skżrslunni er aš finna ķtarlega umfjöllun um starfsemi SA, efnahagsmįl, kjaramįl o.fl.
Sjį įrsskżrslu SA (pdf-sniš)








Sveigjanleiki á vinnumarkaði og upptaka evrunnar
Skýrsla sem Ásgeir Jónsson og Sigurður Jóhannesson unnu að beiðni SA og dreift var á aðalfundi samtakanna 7. maí, þar sem m.a. er rannsakaður sveigjanleiki launakostnaðar á Íslandi.
Sjá skýrsluna (pdf-snið)

Samkomulag um starfsmenntamál sjómanna

 

Fulltrúar SA, LÍÚ og Sjómannasambands Íslands hafa ásamt félagsmálaráðherra undirritað samkomulag um starfsmenntamál sjómanna. Verkefninu verða tryggðar 45 milljónir króna frá Atvinnuleysistryggingasjóði á þriggja ára samningstíma.
Sjį nįnar

Mikið jafnræði í starfsmenntun á Íslandi
Jafnræði vegna þátttöku í starfsmenntun er meira á Íslandi en í flestum öðrum löndum, bæði á milli ólíkra aldurshópa og á milli hópa með mismikla menntun. Þetta er niðurstaða alþjóðlegrar samanburðarrannsóknar
Sjį nįnar

Starfsmenntaverðlaunin 2002 - tilnefningar óskast

 

Starfsmenntaráð og Mennt óska eftir tilnefningum til starfsmenntaverðlaunanna 2002, en markmið þeirra er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi. Frestur til að senda inn tilnefningar er til 30. júní.
Sjį nįnar á heimasíðu Menntar

Viðskiptatækifæri í Póllandi?

 

Í lok júní efnir Útflutningsráð til viðskiptasendinefndar til Gdansk og Gdynia. Lögð verður áhersla á að finna íslensku fyrirtækjunum sem þátt taka í viðskiptasendinefndinni viðskiptaaðila ytra.
Sjá nánar á vef Útflutningsráðs



Fjölskylduábyrgð í vegi kvenna

Lágt hlutfall kvenna í stjórnunarstöðum skýrist fyrst og fremst af minni sveigjanleika þeirra á vinnustað, sem þýðir m.a. að þær eru oft fjarverandi þegar mest krefjandi verkefnunum er útdeilt. Þetta kemur fram í rannsókn Árósarháskóla fyrir danska fjármálaráðuneytið.
Sjá nánar

Hönnun og forritun: Vefur.is