 |
|
5. tbl. 2002
|
Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni hér.
|
 |
|
Sveigjanleiki į vinnumarkaši
og upptaka evrunnar
Ef Íslendingar taka upp evru verður ekki hægt að
bregðast við hagsveiflum með peninga-
prentun og verðbólgu. Sveigjanleiki í launum gæti
þá skipt miklu, en samkvæmt nýrri skýrslu
sem unnin var fyrir SA er launakostnaður á Íslandi sveigjanlegur
ef á móti blæs.
Sjį nįnar
Višurlagaįkvęši samkeppnislaga ströngust hérlendis
Samkvæmt íslenskum samkeppnislögum skal leggja á
sektir ef bannákvæði laganna hafa verið brotin, á
meðan löggjöf annars staðar kveður á um heimild
til að leggja á sektir. Þá hafa hérlend
samkeppnisyfirvöld sjálfstæða heimild til ákvörðunar
sekta ólíkt öðrum. Þetta er meðal þess
sem fram kemur í nýrri skýrslu SA.
Sjį nįnar
|
 |
|
Þjóðfélagslýsing 1. maí!
Gamaldags gífuryrði um örbirgð og neyð eru ekki
viðeigandi lýsing á íslensku þjóðfélagi,
þegar kaupmáttur er í hámarki og full atvinna
ríkir, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri
SA.
Sjį nįnar
|
 |
Aðalfundur SA 7. maí
Samtök atvinnulífsins halda aðalfund sinn 7. maí
á Grand hótel Reykjavík. Auk ávarpa formanns
SA og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra verður
kynnt ný skýrsla SA um samkeppnislög. Þá
verður flutt erindi um Evrópustefnu norsku samtaka atvinnulífsins
og fimm forstjórar ræða um atvinnulífið og Evrópumálin.
Sjį nįnar
Aðalfundur SART 10. maí
Sjá nánar
European Business Summit, Brussel 6.-8. júní
Sjį nįnar
|
 |
|
Aukið atvinnuleysi, færra ungt fólk á vinnumarkaði
Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar mælist
atvinnuleysi nú 3,2% en var 2,1% í apríl 2001. Starfandi
fólki fækkar um 1.300 milli ára og er fækkunin
bundin við yngsta aldurshópinn, sem er athyglisvert í
ljósi umræðu um stöðu eldra fólks á
vinnumarkaði.
Sjá nánar
Enn miklar launahækkanir í opinbera geiranum
Laun opinberra starfsmanna hækkuðu að meðaltali um 14,1%
á 1. ársfjórðungi þessa árs m.v.
sama tíma í fyrra. Á almennum markaði hækkuðu
laun á sama tíma um 6,4%. Í heild hækkaði
launavísitala Hagstofunnar um 9,5%.
Sjá nánar
|
 |
|
Greinilega komið ferli vaxtalækkana
Þar sem rétt rúmur mánuður er liðinn
frá síðustu vaxtalækkun Seðlabankans er greinilega
komið ferli vaxtalækkana, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA, í samtali við Morgunblaðið. Í ljósi
viðsnúnings í verðlagsþróun hefði
hann getað búist við meiri vaxtalækkun.
Sjá nánar
Samkeppnishæfni Íslands
Ísland er í 12. sæti yfir samkeppnishæfni landa
og hækkar um eitt sæti frá fyrra ári, samkvæmt
nýrri skýrslu IMD stofnunarinnar í Sviss. Í
nýlegri skýrslu annarrar stofnunar, WEF, var Ísland
í 16. sæti. Á báðum listum eru flest helstu
samkeppnislöndin hins vegar ofar Íslandi.
Sjá nánar
Ekki miklar undirliggjandi verðlagsbreytingar
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,04% milli mars
og apríl. Í samtali við Mbl.is segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA, líkurnar hafa aukist á að verðlagsmarkmiðin
náist í maí. Þá staðfesti þessi
mæling heilt yfir að undirliggjandi verðlagsbreytingar séu
ekki miklar.
Sjá nánar
|
 |
|
Ríkið keppi ekki við hugbúnaðarfyrirtæki
Fjöldi opinberra stofnana og fyrirtækja starfrækir sína
eigin hugbúnaðarþjónustu. Í setningarræðu
á ráðstefnu TölvuMynda sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA, að gera yrði þá kröfu til hins opinbera
að það keppti ekki við einkafyrirtæki á
þessu sviði.
Sjá nánar
Í prinsippinu á móti ríkisábyrgðum
Við erum í prinsippinu á móti ríkisábyrgðum
segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við
DV um frumvarp um ríkisábyrgð til Íslenskrar
erfðagreiningar. Hann segir samtökin ekki geta stutt þessa
nálgun, þótt þau vilji veg fyrirtækisins
sem mestan.
Sjį nánar
Aðilum verði ekki mismunað
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við
Morgunblaðið að sér sé ekki kunnugt um hvernig
ASÍ sé ætlað aukið hlutverk verði Þjóðhagsstofnun
lögð niður. Hann segist ganga út frá því
að stjórnvöld ætli ekki að mismuna aðilum
vinnumarkaðarins að þessu leyti.
Sjį nánar

|
 |
Kínverska sendiráðið kaupir Garðastræti
41
Gengið hefur verið frá sölu Samtaka atvinnulífsins
á Garðastræti 41, en eins og kunnugt er flytja samtökin
og aðildarsamtök þeirra sjö innan skamms í nýtt
húsnæði við Borgartún 35. Kaupandi að Garðastræti
41 er kínverska sendiráðið. |
 |
|
LÍÚ ályktar gegn ESB-aðild
Stjórn LÍÚ segir aðild að ESB ekki koma til
álita, útilokað sé að Íslendingar
gangist undir hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB.
Samkvæmt nýrri könnun PWC fyrir LÍÚ er
ekki marktækur munur á fjölda stuðningsmanna og
andstæðinga aðildar að ESB.
Sjá nánar
Áhrif gildistöku evrunnar á finnsk fyrirtæki
Gildistaka evrunnar leiddi ekki til verðhækkana í Finnlandi,
en fyrirtækin þurftu að fjárfesta talsvert í
uppfærslu hugbúnaðar. Þetta kemur fram í
nýrri skýrslu sem sænsku samtök atvinnulífsins
hafa unnið, m.a. á grundvelli könnunar meðal rúmlega
200 finnskra fyrirtækja.
Sjá nánar 
|
 |
|
SAF ályktar um aukin framlög til landkynningar
Í ályktun aðalfundar SAF er framlagi ríkisstjórnar
til markaðs- og landkynningarmála í kjölfar hryðjuverkanna
í Bandaríkjunum fagnað, en jafnframt skorað á
samgönguráðherra að beita sér fyrir stórauknum
framlögum til landkynningarmála.
Sjį nįnar
Eldra starfsfólki síður sagt upp en yngra
Fyrirtæki sem þurfa að fækka starfsfólki
segja frekar upp yngra starfsfólki en því eldra. Þetta
kemur fram í athugun sem danska hagstofan gerði fyrir dönsku
samtök atvinnulífsins og staðfestir niðurstöður
tveggja annarra rannsókna samtakanna.
Sjį nįnar
|
 |
|
|