ISSN 1670-2220, 4. tbl. 2003
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Konur sækjast síður eftir stjórnunarstörfum

 

Konur eru almennt jafn góðir eða ívið betri stjórnendur en karlar en sækjast mun síður eftir stjórnunarstörfum. Þær eru samviskusamari og liprari í samskiptum en bundnari af fjölskyldu og heimili. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun SA á viðhorfi til kynjanna sem stjórnenda.
Sjá nánar

Kvartað undan íþyngjandi reglubyrði
Um 40% fyrirtækja kvarta undan opinberri reglubyrði og segja hana íþyngjandi í sínum rekstri, samkvæmt niðurstöðum könnunar SA. Einkum eru það fyrirtæki í ferðaþjónustu, útgerð og fiskvinnslu sem kvarta sáran. Mörg fyrirtæki segja heilbrigðisnefndir sveitarfélaga rukka fyrir eftirlit sem aldrei fari fram.
Sjá nánar

Átak á sviði starfsmennta
Víðtækt samkomulag hefur náðst um starfsfræðslu- og menntaátak Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins ehf. Mjög miklu máli skiptir, bæði fyrir einstaklingana og allt atvinnulífið, að góður árangur náist, segir Jón Sigurðsson, verkefnisstjóri hjá SA.
Sjá nánar

Formannsskipti hjá SA

 

Finnur Geirsson, formaður Samtaka atvinnulífsins frá stofnun samtakanna árið 1999, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs nú í vor, en aðalfundur SA verður haldinn 29. apríl. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Eimskipafélags Íslands hf., hefur gefið kost á sér til formennsku.
Sjá nánar

Aðalfundur SA 29. apríl

 

Samtök atvinnulífsins halda aðalfund sinn þriðjudaginn 29. apríl nk. Auk ávarpa formanns SA og Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, verður kynnt ný skýrsla SA um leiðir til lífskjarabóta. Þá mun stjórnarmaður þýsku samtaka atvinnulífsins fjalla um þýska efnahagsvandann.
Sjá nánar


Aðalfundur SART 9. maí

Þróun atvinnuleysis eftir fyrri störfum
Vinnumálastofnun hefur nú hafið flokkun atvinnulausra eftir fyrra starfi viðkomandi. Verkafólk er fjölmennast í hópi atvinnulausra, en undanfarin tvö ár er hlutfallsleg aukning mest hjá iðnaðarmönnum, eða fjórföldun. Alls hefur atvinnulausum á skrá fjölgað um 140% á þeim tíma.
Sjá nánar

Vaxandi langtímaatvinnuleysi

 

Í lok febrúar höfðu 1.239 einstaklingar verið skráðir atvinnulausir í sex mánuði eða lengur, eða 19,9% af heildarfjölda atvinnulausra. Þetta hlutfall var 12,7% í lok febrúar 2002. Einnig hefur hlutfall yngsta aldurshópsins hækkað.
Sjá nánar

 

Hátt hlutfall eldra fólks á vinnumarkaði
Hátt hlutfall eldra fólks á íslenskum vinnumarkaði er til umfjöllunar í norsku vefriti. Í greininni er m.a. rætt við Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóra SA, sem segir það mjög óæskilega þróun fyrir íslenskt atvinnulíf að fólk hætti yngra þátttöku á vinnumarkaði.
Sjá nánar

ESB - þríhliða samráð

 

Á dögunum var haldinn fyrsti formlegi fundur fulltrúa aðila vinnumarkaðarins á Evrópu- vettvangi með forseta ráðherraráðsins og æðstu embættismönnum ESB. Nauðsyn þess að bæta samkeppnishæfni ESB-ríkja var í brennidepli á fundinum.
Sjá nánar

 

Bæta ber skertan markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir
Bæta ber EFTA-ríkjunum skertan markaðsaðgang með sjávarafurðir vegna stækkunar ESB og skoða möguleikann á tollalækkunum í stað kvóta í því sambandi, segir í ályktun ráðgjafarnefndar EES um stækkun svæðisins. Nefndin segir enga lagalega stoð fyrir kröfum ESB um aukin fjárframlög EFTA-ríkjanna.
Sjá nánar

Forgangsatriði að draga úr reglubyrði

 

Ráðgjafarnefnd EES telur vandséð hvernig ná eigi svonefndu Lissabon-markmiði ESB um að sambandið verði samkeppnishæfasta hagkerfi veraldar árið 2010. Í ályktun sinni segir nefndin það vera forgangsatriði að draga úr reglubyrði atvinnulífsins.
Sjá nánar

Tekjuskatturinn er stighækkandi
Tekjuskattur er stighækkandi. Á átta árum hækkaði t.d. kaupmáttur lægstu mánaðarlauna um 65%. Þau báru ekki tekjuskatt árið 1995 en bera nú 10,5% skatt, vegna aukins kaupmáttar. Eftir skatt hefur hann vaxið um 47%. Þetta kemur fram í innleggi Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, í skattaumfjöllun Fréttablaðsins.
Sjá nánar

Vantar samstillingu í efnahagsstjórnina

 

Á sama tíma og opinberir aðilar boða stóraukin framlög til framkvæmda og flýta öðrum sem mest má verða, heldur Seðlabankinn uppi stífu aðhaldi með háum vöxtum. Það vantar greinilega samstillingu í efnahagsstjórnina, segir í ályktun Iðnþings SI.
Sjá nánar


Hætta á efnahagslegri stöðnun innan ESB
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, hafa gefið út skýrslu um horfur í efnahagsmálum ESB-ríkja, þar sem fyrirtæki innan ESB spá 1,4% hagvexti á árinu. Varað er við hættu á efnahagslegri stöðnun verði ekkert að gert til að bæta rekstrarumhverfið.
Sjá nánar

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

 

Undirritaður hefur verið þjónustusamningur SA og ASÍ við menntamálaráðuneytið um rekstur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem ætlað er að stuðla að „öðru tækifæri“til náms fyrir þá sem standa höllum fæti á vinnumarkaði, auk vottunar o.fl. FA mun þó ekki standa sjálf fyrir námskeiðahaldi.
Sjá nánar

Aukin útgjöld gætu hækkað tryggingagjald
SA taka ekki undir þá túlkun félagsmálaráðuneytisins að Fæðingar- orlofssjóður eigi að greiða orlofslaun. Í samtali við Morgunblaðið bendir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, á að veruleg útgjaldaaukning sjóðsins, sem fjármagnaður er með tryggingagjaldi, kalli beint á skattahækkun á atvinnulífið.
Sjá nánar

Smásöluverslun - afl til atvinnusköpunar

 



SVÞ hafa gefið út 30 síðna fræðslurit, Smásöluverslun - afl til atvinnusköpunar, sem fjallar um mikilvægi smásöluverslunar sem atvinnugreinar á Íslandi og í Evrópu. Ritið er m.a. ætlað að nota við kennslu í framhaldsskólum. Sjá nánar í fréttapósti SVÞ.
Sjá nánar

 





Frumkvöðlastarfsemi mikil en skortir fjármagn
Mjög margir stunda frumkvöðlastarfsemi á Íslandi miðað við önnur lönd, en hins vegar virðist sú starfsemi líða fyrir skort á fjármagni og menntun. Þetta er meðal þess sem kemur fram í íslensku GEM-rannsókninni, sem Háskólinn í Reykjavík framkvæmdi með stuðningi SA o.fl.
Sjá nánar

Vefsvæði hins gullna jafnvægis

 

Opnað hefur verið vefsvæði hins gullna jafnvægis, sem ætlað er öllum þeim sem starfs síns vegna geta stuðlað að bættu starfsumhverfi, auknum sveigjanleika og samhæfingu vinnu og einkalífs á íslenskum vinnumarkaði. SA eru meðal hollvina verkefnisins.
Sjá nánar

Samstarf við umboðsmenn erlendis
Dagana 14. og 15. apríl nk. stendur Útflutningsráð Íslands fyrir námskeiði í leit að bestu mögulegu umboðsmönnum erlendis, vali á réttum dreifiaðilum og farsælu samstarfi við umboðsmenn/dreifiaðila erlendis.
Sjá nánar á vef Útflutningsráðs

Hönnun og forritun: Vefur.is