4. tbl. 2002
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Ķsland borgar mest meš landbśnaši

 

Meðalstuðningur til hvers bónda er hæstur hér á landi af löndum OECD, hátt í þrjár milljónir króna á ári, en hefur þó farið minnkandi. Að meðaltali nemur stuðningurinn um 900 þúsund krónum í löndunum, eða tæpum þriðjungi þess sem hann er hér.
Sjį nįnar

Fjórðungs skuldaaukning stærstu sveitarfélaga
Skuldir, lífeyrisskuldbindingar og ábyrgðir fjögurra stærstu sveitarfélaga landsins og stofnana þeirra jukust um fjórðung að raungildi á íbúa frá 1996 til 2000. Mest jukust skuldir og ábyrgðir í Hafnarfirði, eða um tvo þriðju hluta. Þær jukust um þriðjung í Reykjavík, en stóðu í stað á Akureyri og lækkuðu um fjórðung í Kópavogi.
Sjį nįnar

Furðulegur málflutningur heimilislækna
Það blasir við að sjálftaka heilsugæslulækna vegna útgáfu vottorða hefur aldrei verið heimil og minnir á löngu horfna tíma, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann segir fróðlegt að bera málið saman við nýleg mál forstöðumanna Þjóðmenningarhúss og Þjóðskjalasafns.
Sjį nįnar

Útspil Ögmundar
Þetta útspil minnir á þann fleyg sem rekinn var í þríhliða samstarf aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda að sameiginlegum markmiðum í febrúar árið 1991, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Samlíking við 1980 sé hins vegar illa til fundin.
Sjį nįnar

Aðalfundur SA 7. maí

 
Samtök atvinnulífsins halda aðalfund sinn 7. maí. Auk ávarpa formanns SA og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra verður kynnt ný skýrsla SA um samkeppnislög. Þá verður flutt erindi um Evrópustefnu norsku samtaka atvinnulífsins og forsvarsmenn fyrirtækja ræða um atvinnulífið og Evrópumálin.
Sjį nįnar



Aðalfundur SAF á Akureyri 10.-11. apríl

Sjá nánar

European Business Summit, Brussel 6.-8. júní
Sjį nįnar

Heilsugæslulæknum skylt að gefa út vottorð

 
Lögfræðingar SA og ASÍ eru sammála um að heilsugæslulæknum beri samkvæmt lögum að gefa út læknisvottorð, en heilsugæslulæknar neita að gefa út vottorð til atvinnurekenda og fleiri í kjölfar úrskurðar kjaranefndar um að þeim sé ekki heimilt að taka fyrir það sérstaka þóknun.
Sjá nánar





Staða eldra fólks á vinnumarkaði
Lagasetning til að sporna við uppsögnum vegna aldurs væri bjarnargreiði, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hún kynni að draga úr líkum á ráðningu eldra fólks. Ari segir ástæðu til að skapa um það umræðu ef almennir fordómar séu gegn eldra starfsfólki.
Sjá nánar

Launabreytingar nálgast nágrannalöndin

 

Flest síðustu ár hafa laun í nágrannalöndunum verið að hækka á bilinu 3-4% árlega, en um 5,5-6,5% hér á landi. Munurinn náði hámarki fyrri hluta 2001 með 14% launahækkun hérlendis. Eftir það dró hratt úr þessari launabólgu og nú eru launabreytingar á Íslandi að nálgast nágrannalöndin.
Sjá nánar

Aukið atvinnuleysi
Atvinnulausir voru 67,4% fleiri nú í febrúar en í fyrra. Skráðir atvinnuleysisdagar jafngilda því að um 3.556 manns hafi að meðaltali verið á skrá, eða um 2,6% fólks á vinnumarkaði.
Sjá nánar á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Markmiðin að nást
„Það stendur upp úr að við erum að ná þessum markmiðum sem við settum okkur með samkomulagi í desember,“segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Vísi.is eftir fund með ASÍ og stjórnvöldum um hið svonefnda rauða strik. Svigrúmið sé þó lítið og mjög mikilvægt að allir sem áhrif hafi á verðlag styðji við bak þessara markmiða.
Sjá nánar

Stöðnun framundan hjá iðnfyrirtækjum

 

Samkvæmt könnun sem Samtök iðnaðarins gerðu í febrúar er útlit fyrir að velta iðnfyrirtækja dragist lítillega saman í ár að raunvirði. Útlit er fyrir áberandi mestan samdrátt fjárfestinga í plast- og veiðarfæraiðnaði.
Sjá nánar á heimasíðu SI

Ferli vaxtalækkana
Seðlabankinn hefur ákveðið að lækka stýrivexti sína um hálft prósent. Aukið atvinnuleysi, hækkandi gengi krónunnar og lækkandi verðbólga eru meðal forsendna þess. Samtök atvinnulífsins fagna þessari vaxtalækkun og telja allar forsendur fyrir frekari lækkun vaxta á næstunni.

Samkeppnishugsun í menntakerfið

 

Nýtt meistaranám í lögfræði, viðræður um einkaskóla fyrir sex ára bekk og spá um breytt rekstrarform deilda við Háskóla Íslands. Þetta er meðal þess sem fram kom á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins: „Samkeppnishugsun í menntakerfið: þjónusta, nýjungar, skólagjöld.“
Sjá nánar

Mánuður á leikskóla = ár við Háskóla Íslands
Einn mánuður á leikskóla kostar álíka mikið og eitt ár við Háskóla Íslands. Á þetta benti Gylfi Magnússon, dósent við HÍ, á fundi SA um samkeppnishugsun í menntakerfið. Hann sagði skólagjöld við HÍ ekki eiga að vera brottgangssök.
Sjį frásögn af fundinum

Umhverfisviðurkenning - beiðni um tilnefningar

 
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki til að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins fyrir árið 2001. Tilnefningar berist eigi síðar en 12. apríl.
Sjá nánar


Ríkið rekur stærstu snyrtivöruverslun landsins

 

Það skekkir samkeppnisstöðu verslunarinnar að ríkið stundi samkeppni við einkarekstur í verslun. Þannig er óeðlilegt að ríkið skuli reka stærstu snyrtivöruverslun landsins. Þetta kom fram í máli Tryggva Jónssonar, formanns SVÞ, á aðalfundi samtakanna.
Sjá nánar

Efla þarf samkeppnishæfni Evrópu

 

Evrópusamtök atvinnulífsins segja lítið hafa þokast í átt að settum markmiðum um að ESB verði samkeppnishæfasta hagkerfi veraldar árið 2010. Fulltrúar samtakanna afhentu formanni ráðherraráðsins nýja skýrslu með tillögum til úrbóta.
Sjį nįnar


Læknisvottorðum hafnað og stéttarfélag dæmt
Í dönskum dómi er læknisvottorðum þriggja manna hafnað og fjarvera þeirra frá vinnu úrskurðuð vinnustöðvun sem brjóti gegn kjarasamningi. Þá var stéttarfélag þeirra dæmt til bótagreiðslu. Læknisvottorð eru ekki alltaf neinn „endanlegur sannleikur“að sögn talsmanns lækna.
Sjį nįnar

Skert samkeppnishæfni utan evrunnar?

 

„Stóra spurningin er hvort Ísland þoli til lengdar þá skertu samkeppnishæfni sem kann að fylgja því að standa utan evrunnar,“sagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra m.a. í ávarpi sínu á iðnþingi. Ný könnun Gallup sýnir yfirgnæfandi stuðning við að hafnar verði viðræður um aðild að ESB.
Sjį nįnar


Hægt að sættast á sjávarútvegsstefnu ESB?
Í erindi um íslensk utanríkismál sagðist Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra telja að hægt væri að framkvæma sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB með þeim hætti að Íslendingar sem gætu sætt sig við hana sem aðildarríki.
Sjį nįnar


Samræmdar gæðastjórnunarkröfur útboðslýsinga
Samtök iðnaðarins hafa tekið höndum saman við alla helstu verkkaupa landsins um að samræma kröfur um gæðastjórnun við verklegar framkvæmdir. Slíkar kröfur hafa verið að koma fram í vaxandi mæli, en verið settar fram með misjöfnum hætti.
Sjį nįnar heimasíðu SI

Veruleg tekjuaukning af erlendum ferðamönnum

 
Veruleg tekjuaukning varð af erlendum ferðamönnum á síðasta ári og voru heildartekjur þjóðarinnar af komu þeirra 37,7 milljarðar króna, samanborið við 30,5 milljarða árið 2000. Þá er aftur hafin talning erlendra ferðamanna í Leifsstöð eftir þjóðernum.
Sjį nįnar
Hönnun og forritun: Vefur.is