ISSN 1670-2220, 3. tbl. 2003
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Mest aukning kaupmáttar á Íslandi

 

Á tímabilinu 1995-2003 eykst kaupmáttur mest hérlendis af ríkjum OECD, eða um 27%. Meðaltal OECD-ríkja er 12% og innan við 1% á evrusvæðinu. Tölur OECD sýna breytingar á almennum vinnumarkaði. Hérlendis er hækkunin enn meiri hjá hinu opinbera. Hlutur launa í verðmætasköpuninni er að öllum líkindum orðinn hærri en staðist fær til lengdar.
Sjá nánar

Evrópsk samkeppnisyfirvöld bæta sig
Framkvæmd samkeppnislaga er nú til endurskoðunar hjá ESB, m.a. í ljósi ítrekaðra ósigra samkeppnisyfirvalda fyrir dómstólum. Meðal væntanlegra breytinga má nefna herta sönnunarbyrði samkeppnisyfirvalda og sveigjanlegri viðmiðanir vegna samruna fyrirtækja.
Sjá nánar

Langir samningar bera ávöxt
Innsiglað hefur verið lengsta samningstímabil í samskiptasögu á vinnumarkaði og ávinningur almennings hefur verið mikill, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Hann varar hins vegar við blikum á lofti í efnahagsmálum og bendir á að meginverkefni nýrrar ríkisstjórnar verði sveiflujöfnun vegna stóriðjuframkvæmda.
Sjá nánar

Húsfyllir á opnum fundi SA um áhrif hágengis

 

Ferðaþjónustan er að tapa viðskiptum úr landi vegna hás gengis krónunnar, landvinnsla á fiski mun að óbreyttu gefa eftir, fyrirtæki sem flytja starfsemi úr landi sökum slæmra samkeppnis- skilyrða koma yfirleitt ekki aftur, launaþróun er vanmetin í forsendum Seðlabankans og kallað er eftir þríhliða samráði. Þetta er meðal þess sem fram kom á opnum fundi SA.
Sjá nánar

SA styðja tillögu um samstarf
Á fundi SA um áhrif hágengis á þjóðarhag lagði framkvæmdastjóri ASÍ til að komið yrði á formlegu samstarfi stjórnvalda, Seðlabanka Íslands og aðila vinnumarkaðarins til að samræma viðbrögð hagstjórnar. Í samtali við Morgunblaðið tekur Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, heilshugar undir með Gylfa.
Sjá nánar

Markaðsvæðing húsnæðisfjármögnunar á Íslandi

 

Samtök banka og verðbréfafyrirtækja telja tímabært að færa húsnæðislánamarkað á Íslandi í sambærilegt horf og almennt gerist í nágrannalöndunum. Samtökin kynna áherslur sínar í nýrri skýrslu um markaðsvæðingu húsnæðisfjármögnunar á Íslandi.
Sjá nánar

Styrkir vegna starfsmenntunar 2003

 

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu. Til úthlutunar eru 50 milljónir króna og rétt til að sækja um styrk eiga m.a. einstök fyrirtæki og samtök atvinnurekenda. Umsóknarfrestur er til 12. mars.
Sjá nánar

Verkefnastyrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði
Fyrirtæki, stofnanir o.fl. geta sótt um styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði til sérstakra verkefna á vegum svæðisvinnumiðlana. Styrkfjárhæðir nema hálfum eða heilum atvinnuleysisbótum og hámarkstími eru sex mánuðir.
Sjá nánar

Fjöldi þingmála til umsagnar

 

Samtökum atvinnulífsins berst á hverju þingi mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Á heimasíðunni er að finna yfirlit yfir þessi mál. Félagsmönnum SA er bent á að hafa samband og koma með ábendingar vegna þingmála sem til umsagnar eru.
Sjá yfirlit yfir þingmál til umsagnar

Afnám stimpilgjalda
Í frumvarpi til laga um stimpilgjöld er gert ráð fyrir afnámi þeirra í áföngum til ársins 2007. SA taka undir þá stefnumörkun sem í frumvarpinu felst en spyrja hvort ekki sé gert ráð fyrir of löngum tíma, í ljósi þess tjóns sem skatturinn veldur.
Sjá nánar

Beinir sjónum að íslenskri fyrirtækjaskattalöggjöf

 

SA og SI gera ekki athugasemdir við að Alcoa séu veittar mikilvægar undanþágur frá íslenskum skattalögum. Samningurinn beinir hins vegar sjónum að þáttum í íslenskri fyrirtækjaskattalöggjöf sem ekki tíðkast í nágrannalöndum, svo sem eignarsköttum, stimpilgjöldum og vörugjöldum.
Sjá nánar

Skylt að tilkynna um störf útlendinga

 

Íslenskum atvinnurekendum er skylt að tilkynna Útlendingastofnun um erlenda starfsmenn sem þeir hafa í þjónustu sinni. Þeim ber einnig að tilkynna um erlenda verktaka sem starfa hér á landi á þeirra vegum.
Sjá nánar

 

3,9% atvinnuleysi
Í dag, fimmtudaginn 6. mars eru 6.327 einstaklingar á atvinnuleysisskrá opinberra vinnumiðlana. Miðað við fjölda starfandi skv. vinnumarkaðs- könnun Hagstofunnar í nóvember sl. nemur þessi fjöldi 3,88% af mannafla.
Sjá nánar

Kjarasamningar halda

 

Niðurstaða launanefndar ASÍ og SA er að ekki sé tilefni til uppsagnar launaliðar kjarasamninga.
Sjá nánar

 


Kjarasamningar verslunarmanna halda
Niðurstaða launanefndar SA og VR/LÍV er að ekki sé tilefni til uppsagnar launaliðar kjarasamninga.
Sjá nánar

 

Ráðstefna SVÞ um viðskiptasérleyfi 10. mars
Sjá nánar

Iðnþing SI 14. mars
Sjá nánar

Aðalfundur SVÞ 20. mars
Sjá nánar

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 29. apríl
Sjá nánar

SA fagna útspili ríkisstjórnarinnar

 

SA fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar um flýtingu ýmissa opinberra framkvæmda og fjármögnun þeirra með frekari einkavæðingu. Flýting sumra þessara framkvæmda er liður í að skapa rými fyrir væntanlegar virkjunar- og álversframkvæmdir. Áhersla er þó lögð á mikilvægi aðhalds í opinberum útgjöldum þegar stóriðjuframkvæmdirnar verða í hámarki.
Sjá nánar

Nýjar innkaupareglur Reykjavíkurborgar
Nýjar reglur hafa tekið gildi um innkaup Reykjavíkurborgar. M.a. er sú meginregla tekin upp að beitt skuli útboðum ef áætluð fjárhæð verklegrar framkvæmdar fer yfir 20 m.kr., kaup á þjónustu yfir 10 m.kr. og kaup á vöru yfir 5 m.kr.
Sjá nánar á vef SI

Samræming vetrarfrídaga

 

Samræming starfsdaga grunn- og leikskóla innan hverfa er algert lágmarkstillit við fjölskyldur og atvinnulíf og því fagnaðarefni. Samræming vetrarfrís grunnskóla borgarinnar getur einnig orðið til bóta. Vetrarfríin munu þó áfram valda röskun, en ákvörðun um þau var tekin án nokkurs samráðs við umhverfi skólanna.
Sjá nánar

Karlar og konur ráða eins í störf
Það er enginn munur á því hvernig karlar og konur ráða kynin í störf, samkvæmt nýrri könnun meðal danskra stjórnenda. Formaður samtaka þeirra segir þetta bera vitni um að fagleg sjónarmið ráði ferðinni, óháð því hvort karlar eða konur fari með mannaráðningar.
Sjá nánar

SAF mótmæla skatti á gistinætur

 

Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla harðlega hugmynd nefndar á vegum umhverfisráðuneytisins um að tekið verði upp gistináttagjald til uppbyggingar fjölsóttra ferðamannastaða á Íslandi.
Sjá nánar í fréttabréfi SAF

 

Eimskip fær ICEPRO bikarinn öðru sinni
Á aðalfundi ICEPRO, nefndar um rafræn viðskipti, hlaut Eimskip ICEPRO bikarinn, sem veittur er því fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr í rafrænum viðskiptum árið 2002. Þetta er í annað sinn sem Eimskip hlýtur bikarinn.
Sjá nánar

Hönnun og forritun: Vefur.is