3. tbl. 2002
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Fyrirtęki hyggjast draga śr fjįrfestingum

 

Helmingur fyrirtækja hyggst fjárfesta minna í ár en árið 2001, en um 17% hyggjast auka fjárfestingar sínar, samkvæmt könnun SA. Samdrátturinn er meiri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni og af einstökum greinum er hann mestur í ferðaþjónustu en minnstur í sjávarútvegi.
Sjį nįnar

„Rauša strikiš“ heldur
Forsvarsmenn ríflega þriggja af hverjum fjórum fyrirtækjum telja að verðlagsmarkmið náist í maí, en tæpur fjórðungur telur að svo verði ekki, samkvæmt könnun SA.
Sjį nįnar

3% veršbólga!
Flest bendir til að varanlegt jafnvægi sé að skapast sem er forsenda frekari sóknar í íslensku efnahagslífi, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann telur að færa megi rök fyrir því að raunstýrivextir Seðlabankans séu nær 7% en 0,7%, um þessar mundir.
Sjį nįnar

Um launakönnun VR 2001

 

Í árlegri launakönnun VR er margt fróðlegra upplýsinga. Sem fyrr má þó gera ýmsar aðferðarfræðilegar athugasemdir við könnun VR, sem sumra er reyndar getið í fyrirvörum skýrslunnar. Sjį nįnar



Fyrirtækin vilja fækka starfsfólki

Fyrirtæki telja æskilegt að fækka starfsfólki um sem nemur 0,4%, skv. vinnumarkaðskönnun Þjóðhagsstofnunar. Í fyrsta sinn frá árinu 1997 sýnir janúarkönnun ÞHS að fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu vilji fækka fólki. Þetta eru nánast sömu niðurstöður og í könnun SA í desember sl.
Sjá nánar á vef Þjóðhagsstofnunar.

Kaupmáttarrýrnun 2001 en hækkun á samningstíma

 

Samkvæmt launakönnun KRN hækkuðu dagvinnulaun að meðaltali um 5,9% á tímabilinu frá 4. ársfj. 2000 til 4. ársfj. 2001, en vísitala neysluverðs um 8,4% á sama tíma. Samkvæmt því rýrnaði kaupmáttur dagvinnulauna að meðaltali um 2,3%, en hann hefur hækkað um 4% á samningstímanum.
Sjį nįnar

Námskeið um gerð jafnréttisáætlana

 
Námskeið um gerð jafnréttisáætlana verður haldið miðvikudaginn 13. mars nk. kl. 10:00 -12:00 í húsakynnum SA að Garðastræti 41. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum SA.
Sjá nánar




Iðnþing Samtaka iðnaðarins
Samtök iðnaðarins halda iðnþing sitt föstudaginn 15. mars. Nánari upplýsingar á vef SI.

Samkeppnishugsun í menntakerfið
Morgunverðarfundur SA miðvikudaginn 20. mars, undir yfirskriftinni „Samkeppnishugsun í menntakerfið: þjónusta, nýjungar, skólagjöld.“
Sjá dagskrá og nánari upplýsingar.

Aðalfundur SVÞ
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu halda aðalfund sinn fimmtudaginn 21. mars nk. Sjá nánar á vef SV.

Starfsmenntastyrkir til umsóknar

 

Starfsmenntaráð hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til starfsmenntunar. Úthlutað verður 65 millj. kr. í styrki til fyrirtækja, samtaka, einkaaðila o.fl. Umsóknarfrestur er til 17. mars nk. Í ár verður lögð áhersla á upplýsingatækni, þjálfun leiðbeinenda í starfsmenntun og starfsmenntun fatlaðra.
Sjá nánar

Upplýsingaveita um námsframboð
Opnuð hefur verið upplýsingaveita um námsframboð á vefnum. Upplýsingaveitan verður fyrst um sinn aðeins opin fyrir fræðsluaðila, en kynning til almennings mun eiga sér stað á vormánuðum.
Sjá nánar á heimasíðu Menntar

Skylduáskrift að RÚV falli niður
Í umsögn um frumvarp um breytingu á útvarpslögum telja SA rétt að skylduáskrift að RÚV falli niður og eðlilegt að allar útvarpsstöðvar fái jafnt færi á að sinna því hlutverki sem RÚV gegnir nú skv. útvarpslögum. Þá telja SA nauðsynlegt að breyta RÚV í hlutafélag.
Sjá nánar

Hagstjórnarþáttur samgönguframkvæmda

 

Í umsögn um frumvarp til laga um samgönguáætlun segja SA eðlilegt að dregið sé úr framkvæmdum þegar umsvif eru mikil í hagkerfinu og að þær séu auknar þegar slaki er mikill. Samgönguframkvæmdir hljóti t.d. að dragast saman þegar miklar virkjanir eru í gangi.
Sjį nįnar


Óeðlilegir viðskiptahættir lögleiddir hjá ÁTVR
Að mati SVÞ brýtur frumvarp til laga um innheimtu ríkisins á tryggingargjaldi og skráningargjaldi vegna sölu á áfengi í bága við eðlilega viðskiptahætti og leiðir til misnotkunar á einkasöluleyfi ríkisins á áfengi með gróflegum hætti.
Sjá nánar fréttatilkynningu SVÞ

Pólland, Ungverjaland, Marokkó, WTO o.fl.

 

Fyrirhugaðir eru EFTA-fundir um fríverslunarmál við Pólland, Ungverjaland, Marokkó, Ísrael og Palestínu. Þá hefst senn undirbúningur nýrrar lotu WTO-viðræðna. Þetta eru kjörin tækifæri til að koma á framfæri upplýsingum um vandræði í viðskiptum erlendis.
Sjá nánar

Ašstoš viš markašssetningu erlendis
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Útflutningsráð Íslands hafa gert með sér samstarfssamning fyrir árið 2002 um verkefni sem ætlað er að aðstoða fyrirtæki við markaðssetningu erlendis.
Sjá nánar


Lissabon-ferlið og stækkun EES

 

Ráðgjafarnefnd EFTA kallar eftir aðlögun EES samningsins að sumum þeirra breytinga sem orðið hafa á Rómarsáttmála ESB, og kynningu hans fyrir væntanlegum aðildarríkjum. Þá kallar hún eftir að EFTA EES ríkin setji sér skýrari markmið gagnvart svonefndu Lissabon-ferli ESB.
Sjá nánar

EDI-bikarinn til Mjólkursamsölunnar í Reykjavík
Hin árlegu EDI-verðlaun ICEPRO-nefndarinnar fyrir markvissa og árangursríka stefnu á sviði staðlaðra rafrænna viðskipta voru í gær veitt Mjólkursamsölunni í Reykjavík.
Sjį nįnar

Hönnun og forritun: Vefur.is