3. tbl. 2001
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Kaupmáttur lágmarkslauna aldrei hærri
Kaupmáttur lágmarkslauna hefur aldrei verið hærri en um þessar mundir og hefur hann vaxið um þriðjung frá miðjum síðasta áratug. Miðað við fyrirliggjandi verðbólguspá Seðlabankans mun kaupmáttur lágmarkslauna halda áfram að vaxa og verða 42% hærri á árinu 2002 en um miðjan síðasta áratug.
Sjá nánar

Hagnaður fyrirtækja þriðjungur fyrra árs
Hagnaður tuttugu og fjögurra fyrirtækja sem birt hafa uppgjör á Verðbréfaþingi var samtals um 3 milljarðar árið 2000, af reglulegri starfsemi fyrir skatta. Árið á undan var hagnaður sömu fyrirtækja rúmir 9 milljarðar og fellur hagnaðurinn úr 10% af veltu í 3%.
Sjá nánar

Samkeppnislög þarf að endurskoða
Úrskurður áfrýjunarnefndarinnar í prentsmiðjumálinu er mikið fagnaðarefni, og vekur menn til umhugsunar um hver afstaða nefndarinnar hefði verið í bankamálinu. Samkeppnisráð hefur verið á rangri leið í áherslu sinni á
markaðsráðandi stöðu og í þröngri skilgreiningu markaða. Þörf er á nýrri endurskoðun samkeppnislaga, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA.
Sjá nánar

Ábyrgð vinnuveitenda á öryggi og heilsu
Í væntanlegu frumvarpi til breytinga á vinnuverndarlögunum er gert ráð fyrir skriflegu mati atvinnurekenda á öllum þáttum í vinnuumhverfinu sem geta skapað áhættu fyrir öryggi og heilsu starfsmanna. Slíkar reglur gilda þegar um réttindi barnshafandi kvenna og kvenna sem nýlega hafa alið börn eða eru með börn á brjósti.
Sjá nánar

Villandi meðaltalstölur í launakönnun VR
Bornar eru saman ósambærilegar tölur og háum prósentutölum skartað í krafti stóraukins vægis stjórnenda og sérfræðinga meðal svarenda, segir Gústaf Adolf Skúlason í grein í Morgunblaðinu 22. febrúar
Sjá nánar

Samið við blaðamenn o.fl.
Í febrúar voru m.a. undirritaðir samningar vegna ISAL og Kísiliðjunnar. Þá var undirritaður og samþykktur kjarasamningur milli SA og Blaðamannafélags Íslands. Samningurinn gildir til 30. október 2004.
Sjá nánar

 

Málþing um Evrópuvinnurétt og jafnréttislöggjöf
Dagana 9.-10. mars standa Samtök atvinnulífsins að málþingi um Evrópuvinnurétt og jafnréttislöggjöf, í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina. Fyrri daginn verður almenn umfjöllun um Evrópuvinnuréttinn og áhrif hans, m.a. hvort réttarþróunin dragi úr sérstöðu og sveigjanleika íslensks vinnuréttar.

Seinni dagur málþingsins, sem jafnframt er liður í framlagi SA til ráðstefnunnar Konur og lýðræði, er helgaður jafnréttismálum og ætti að höfða jafnt til lögfræðinga, þeirra sem starfa að starfsmannamálum í fyrirtækjum og annarra áhugamanna um jafnréttislöggjöf.
Sjá nánar

Á döfinni
"Á döfinni" á fréttavef Samtaka atvinnulífsins er samantekt um fundi og ráðstefnur framundan, sem tengjast atvinnulífinu og starfsumhverfi fyrirtækja. Lesendur fréttabréfsins eru eindregið hvattir til að senda upplýsingar um fundi eða ráðstefnur framundan á netfangið sa@sa.is.
Sjá nánar: Á döfinni

Lítil áhrif stækkunar ESB á lítil og meðalstór fyrirtæki
Stækkun ESB mun almennt hafa lítil áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki innan sambandsins. Þó mun áhrifanna gæta meira en annars staðar innan t.d. ferðaþjónustu og ýmissa hefðbundnari framleiðslugreina, og á þeim svæðum sem næst eru væntanlegum aðildarríkjum.
Sjá nánar


Sænskt atvinnulíf opnar evruvef
Samtök atvinnulífsins í Svíþjóð hafa opnað nýjan vef um Myntbandalag Evrópu og evruna. Þar er m.a. að finna fréttir, almennar upplýsingar og fylgst með þróun sænskra skoðanakannana, auk þess sem svarað er fyrirspurnum til sérfræðinga.
Sjá nánar

Kynnt stefna starfsmenntasjóðs
Árið 2001 mun starfsmenntasjóður styrkja verkefni sem tengjast notkun internetsins í starfsmenntun, verkefni sem stuðla að auknum gæðum starfsmenntunar og starfsmenntun erlends vinnuafls.
Sjá nánar


Hönnun og forritun: Vefur.is