![]() |
||||||||
|
ISSN 1670-2220, 2. tbl. 2003
|
||||||||
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni hér. |
||||||||
|
Opinberir ašilar ķ vanskilum Opinberir aðilar eru eða hafa nýlega verið í
vanskilum við um fimmtung fyrirtækja, samkvæmt könnun
SA. Ljóst er að a.m.k. helmingur fyrir- tækjanna í
úrtakinu er ekki í teljandi viðskiptum við opinbera
aðila og því má gera að því skóna
að þegar um veruleg viðskipti sé að ræða
séu opinberir aðilar í vanskilum í um 40-50%
tilvika. Alvarlegra er þó að í yfir 60% tilfella
neita opinberir aðilar að greiða dráttarvexti. Fyrirtæki hyggjast draga úr fjárfestingum
Tæp 40% fyrirtækja hyggjast fjárfesta minna í
ár en 2002, en tæp 20% hyggjast fjárfesta meira, samkvæmt
könnun SA. Samdrátturinn virðist nokkuð almennur milli
greina, en algengari á landsbyggðinni en á höfuðborgar-
svæðinu. |
||||||||
|
Óvænta vaxtalækkun! |
||||||||
|
3,7% atvinnuleysi
Nú eru 6.059 einstaklingar á atvinnuleysisskrá opinberra
vinnumiðlana. Miðað við fjölda starfandi skv. vinnumarkaðskönnun
Hagstofunnar í nóvember sl. nemur þessi fjöldi
3,7% af mannafla. Þetta er fjölgun um 144 einstaklinga á
tæpri viku.
Ört vaxandi atvinnuleysi háskólagenginna Hverjir eru atvinnulausir? Enn meiri launahækkanir í opinbera geiranum
Laun opinberra starfsmanna og bankamanna hækkuðu að meðaltali
um 7,3% á 4. árs- fjórðungi 2002 árs miðað
við sama tíma árið 2001. Á almennum markaði
hækkuðu laun á sama tíma um 4,6%. Í heild
hækkaði launa- vísitala Hagstofunnar um 5,8%. |
||||||||
|
Vaxandi áhyggjur af þróun peningamála Ekki trú á frekari gengishækkun
Gengishækkun undanfarinna mánaða er byggð á
væntingum sem ekki eru byggðar á nægilega traustum
forsendum, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri
SA, í samtali við Viðskiptablaðið. Hann hefur ekki
trú á að gengið hækki frekar, nema þá
sem tímabundið flökt. |
||||||||
Námskeið SA í starfsmannamálum í Stykkishólmi
og á Selfossi Ráðstefna SVÞ um rýrnun í verslunum
10. febrúar Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 29. apríl |
||||||||
|
Heimilt að skoða tölvupóst, ef farið er varlega
Lögmætir hagsmunir geta heimilað fyrirtækjum að
skoða tölvupóst starfsmanna. Hins vegar þarf slík
vöktun að vera gerð í skýrum og málefnalegum
tilgangi, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur
SA, í samtali við Morgunblaðið. Hún segir reglur
fullnægjandi hérlendis. |
||||||||
|
Efla þarf samkeppnishæfni Evrópu
Á fundi UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, með
forseta ráðherraráðs ESB lýstu samtökin
áhyggjum af samkeppnis- hæfni Evrópu. Í nýrri
skýrslu samtakanna er m.a. fjallað um háan launakostnað,
háa skatta og mikla reglubyrði evrópskra fyrirtækja,
og lagðar fram tillögur til úrbóta. |
||||||||
|
Úttekt á vörustjórnun til að lækka
vöruverð Viðskiptasendinefndir til Kanada, Íran, Lettlands...
Útflutningsráð skipuleggur ferð viðskiptasendinefndar
til Kanada 9.-14. febrúar. Á árinu eru m.a. ráðgerðar
slíkar ferðir til Íran, Katar, Lettlands, Bretlands
og Noregs, ef áhugi reynist til staðar.
Gistinóttum fækkar milli ára |
||||||||
|
Hönnun og forritun: Vefur.is
|