 |
|
2. tbl. 2001
|
Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni hér.
|
 |
|
Fyrirtæki hyggjast draga úr fjárfestingum
Samkvæmt
könnun Samtaka atvinnulífsins verður samdráttur
í fjárfestingum fyrirtækja á árinu.
Nálægt helmingi fyrirtækja hyggst draga úr fjárfestingum
sínum árið 2001 samanborið við árið
2000, eða 44% þeirra er svöruðu könnuninni. Tæpur
fjórðungur fyrirtækja hyggst auka fjárfestingar
sínar á árinu en tæpur þriðjungur
þeirra gerir ráð fyrir að fjárfesta álíka
mikið og á liðnu ári. Samdrátturinn virðist
vera mestur í útgerð.
Sjá nánar
Laun hækka mest á Íslandi
Samanburður á launaþróun leiðir í ljós
að laun landverkafólks hér á landi hækkuðu
mun meira en í samanburðarlöndum, frá 3. ársfjórðungi
1999 til 3. ársfjórðungs 2000. Hér hækkuðu
launin um 8,3% á sama tíma og þau hækkuðu
t.d. um 3,5-5% á hinum Norðurlöndunum
Sjá nánar 
|
 |
Vaxtalækkun í kortunum
Hvergi í sambærilegum löndum eru vextir eins háir
og hér á landi og fer vaxtamunurinn hratt vaxandi. Í
ljósi þeirrar þróunar, tafa á áhrifum
vaxtalækkunar og þess hve skammt er enn liðið frá
síðustu vaxtahækkun verður að teljast varfærið
að lækka forvexti um 0,5 prósentustig. Það væri
skref í rétta átt, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA.
Sjá nánar
|
 |
|
Nýir kjarasamningar
Í
janúarmánuði voru undirritaðir kjarasamningar við
nokkur félög, m.a. við Rafiðnaðarsambandið
vegna starfsmanna hjá Landssímanum. Einnig var gerður
nýr heildarsamningur við Starfsgreinasamband Íslands
vegna hópbifreiðastjóra. Enn er ólokið samningum
við marga hópa, s.s. fiskimenn, blaðamenn og starfsmenn
ISAL og Járnblendifélagsins, en viðræðum miðar
vel við flesta hópa.
Ný kaupgjaldsskrá Samtaka atvinnulífsins
Kaupgjaldsskrá SA er komin á vefinn. Hér er um að
ræða launataxta verkafólks, verslunarmanna og iðnaðarmanna.
Laun hækkuðu um áramótin almennt um 3,0% en kauptaxtar
taka þó meiri hækkun. Skráin er birt á
vefnum á pdf-sniði. Pappírsútgáfan er
send öllum aðildarfyrirtækjum SA
Sjá nánar
|
 |
|
"Á
döfinni" á fréttavef Samtaka atvinnulífsins
er samantekt um fundi og ráðstefnur framundan, sem tengjast
atvinnulífinu og starfsumhverfi fyrirtækja. Lesendur fréttabréfsins
eru eindregið hvattir til að senda upplýsingar um fundi
eða ráðstefnur framundan á netfangið sa@sa.is.
Sjá nánar:
Á döfinni
|
 |
|
Umhverfisstjórnunarkerfi fyrir lítil og meðalstór
fyrirtæki
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur SA við umhverfisráðuneytið,
Iðntæknistofnun og fyrirtækið Landmat ehf. um þróun
umhverfisstjórnunarkerfis á Internetinu. Kerfinu er ætlað
að auðvelda litlum og meðalstórum fyrirtækjum
að stilla upp grænu bókhaldi fyrir starfsemi sína
og marka sér umhverfisstefnu án óviðráðanlegs
kostnaðar.
Sjá nánar

|
 |
|
Eðlilegt að EES fái minni athygli, segir Patten
Chris
Patten, sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, sagði í ræðu sinni á
aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í Noregi (NHO) að
eðlilegt væri að EES-samningurinn fengi minni athygli hjá
ESB þegar ESB-ríkin yrðu orðin 27, með 480 milljónir
íbúa, en EFTA-ríkin þrjú, með 4,8
milljónir íbúa.
Sjá nánar
Gagnagrunnur um útboð á Evrópska efnahagssvæðinu
Sænska fyrirtækið Euro Business Link hefur sett á
fót gagnagrunn á Netinu um útboð og viðskiptatilboð
á Evrópska efnahagssvæðinu. Sem kunnugt er eru
opinberir aðilar á Evrópska efnahagssvæðinu
skyldugir að bjóða út verkefni yfir tiltekinni upphæð
á öllu svæðinu.
Sjá nánar
|
 |
|
Samráð um markaðsvænar lausnir í umhverfismálum
Finnur
Geirsson, formaður SA, lagði í ávarpi sínu
á umhverfisþingi megináherslu á mikilvægi
virks samráðs við atvinnurekendur um þróun
markaðsvænna lausna í umhverfismálum, þar
sem atvinnurekendum er gefinn kostur á að koma með frumkvæði
að útfærslunni og hugsanleg gjaldtaka einskorðast
við raunverulegan kostnað af förgun eða endurnýtingu
viðkomandi úrgangs. "Forðast ber þunglamalegt
eftirlit hins opinbera en treysta þeim mun meira á sjálfsmat
og innra eftirlit fyrirtækja" sagði Finnur.
Sjá nánar

|
 |
|
Nýr forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs
Gústaf Adolf Skúlason hefur verið ráðinn
forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs
hjá Samtökum atvinnulífsins. Hann tekur við starfinu
um nk. mánaðamót af Ólafi Þ. Stephensen
sem hefur verið ráðinn aðstoðarritstjóri
Morgunblaðsins
Sjá nánari
upplýsingar um Gústaf
Davíð Stefánsson til Vefur.is
Davíð Stefánsson stjórnsýslufræðingur
lét af störfum hjá Samtökum atvinnulífsins
í janúarlok og tók við starfi framkvæmdastjóra
hjá tölvu- og upplýsingafyrirtækinu Vef.is. Davíð
hefur starfað hjá Samtökum atvinnulífsins frá
stofnun þeirra árið 1999 og áður hjá
Vinnuveitendasambandi Íslands frá árinu 1997. Hjá
Samtökum atvinnulífsins hefur Davíð m.a. starfað
að Evrópu-, mennta-, vef-, útgáfu- og kynningarmálum.
Samtök atvinnulífsins þakka Davíð fyrir vel
unnin störf og óska honum velfarnaðar í nýju
starfi.
|
 |
|
|