![]() |
||||||||
|
ISSN 1670-2220, 1. tbl. 2003
|
||||||||
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni hér. |
||||||||
|
Fyrirtæki hyggjast fækka fólki
Að meðaltali hyggjast fyrirtæki fækka starfsfólki
um 1,55% á næstunni, samkvæmt könnun SA. Þetta
er talsvert hærri tala en mælst hefur að undanförnu.
Einkum hyggjast stærri fyrirtæki fækka fólki.
Hlutfallslega er mest fækkun framundan í sjávarútvegi
og meiri á landsbyggð en á höfuðborgarsvæði. Mikil aukning į višbótarsparnaši įriš 2002
Forsvarsmenn 35% fyrirtækja telja eldra starfsfólk verðmætara
en það yngra. Flestir, eða 62%, telja það jafn
verðmætt en 3% telja það ekki eins verðmætt.
Eldra fólkið þykir verðmætast meðal smæstu
fyrirtækjanna, en minni munur er á milli starfsgreina. |
||||||||
|
Stóriðjuframkvæmdir |
||||||||
|
Ný lög um atvinnuréttindi útlendinga
Um áramót tóku gildi ný lög um atvinnuréttindi
útlendinga. Þar er m.a. kveðið á um skyldu
atvinnurekenda til að sjúkratryggja erlenda starfsmenn fyrstu
sex mánuð dvalar á Íslandi. SA hafa tekið
saman nokkur atriði um nýju lögin. |
||||||||
|
65% kaupmáttaraukning lágmarkslauna frá 1995
Kaupmáttur lágmarkskauptaxta hefur aukist um 58% frá
því í janúar 1995. Á sama tíma
hefur kaupmáttur lágmarkstekjutryggingar aukist um 65%.
Kaupmáttur eykst um 1,6% |
||||||||
|
Stóriðjuframkvæmdir geta breytt útlitinu á
næsta ári
Stóriðjuframkvæmdir, ef af þeim verður,
munu geta breytt útlitinu umtalsvert og náð að draga
úr þeirri deyfð sem annars blasir við á næsta
ári,
segir Finnur Geirsson, formaður SA, í áramótaviðtali
við Morgunblaðið. Þar fjallar hann m.a. um hátt
launastig, vöxt samneyslunnar, einkavæðingu og mikilvægi
stöðugleikans. |
||||||||
|
Auknar tekjur ríkissjóðs af fyrirtækjum Vaxandi hlutur samneyslunnar
Hagvöxtur var neikvæður á þriðja ársfjórðungi
2002 um sem nemur 1,6%. Samfara minni verðmætasköpun jókst
hins vegar samneyslan um 6,5%. Hlutur opinbers rekstrar í efnahags-
lífinu, sem hefur aukist mikið undanfarin ár, hefur
nú náð nýju hámarki, eða rúmlega
25%. SA fagna hverju skrefi í vaxtalækkunum |
||||||||
|
Málefnastarf SA
Námskeið SA í starfsmannamálum í Stykkishólmi
og á Selfossi Leikreglur samkeppninnar 16. janúar Menntadagur iðnaðarins 16. janúar Námskeið í jarðlagnatækni |
||||||||
|
Alþjóðavæðingin og norrænir atvinnurekendur
Samtök atvinnu- og iðnrekenda á Norðurlöndum
hafa gefið út rit þar sem sett eru fram sameiginleg viðhorf
til alþjóðavæðingar og lýst í
stuttu máli hvaða verkefni er að þeirra mati brýnast
að takast á við á næstu árum. Áhyggjur af samkeppnishæfni Evrópu |
||||||||
|
Mikilvægt að samkeppni ríki milli háskóla
Æskilegt er að nám mótist á grundvelli
framboðs og eftirspurnar og mikilvægt að samkeppni ríki
á milli aðila, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA, í erindi um þróun háskólanáms.
Hann sagði kostnaðar- þátttöku nemenda vinna
á móti offjárfestingu á háskólasviðinu.
Samið um Stýrimannaskólann og Vélskólann |
||||||||
Varað við launum eftir kynferði
|
||||||||
|
Áhyggjur af atvinnuhorfum Nær 70% fleiri atvinnulausir en í fyrra
Samkvæmt gögnum vinnumiðlana voru 4.567 manns skráðir
atvinnulausir í lok nóvember 2002, samanborið við
2.716 í nóvember 2001. Þetta er fjölgun um rúm
68% milli ára. Óþægindi vegna starfsdaga í skólum |
||||||||
|
Hagnýt viðmið - stjórntæki í fyrirtækjum
Iðntæknistofnun hefur í samstarfi við SA o.fl. innleitt
aðferðafræði sem auðveldar íslenskum fyrirtækjum
að bera rekstur fyrirtækja sinna saman við önnur fyrirtæki
og taka upp það besta sem þar þekkist í stjórnun. Meirihluti vill léttvín og bjór í matvöruverslanir |
||||||||
|
Hönnun og forritun: Vefur.is
|