1. tbl. 2002
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Vinnumarkađur ađ róast

 

Samkvæmt könnun Samtaka atvinnulífsins ætla fyrirtæki að fækka starfsfólki um tæpt hálft prósent næstu tvo til þrjá mánuði. Í bili virðist sem þenslunni sé lokið á vinnumarkaði höfuðborgarsvæðisins. Eftirspurnin eykst hins vegar á landsbyggðinni.
Sjá nánar

Slćmar afkomuhorfur sveitarfélaga
Stórfelldur hallarekstur blasir við sveitarfélögunum bregðist þau ekki við í tíma. Mikil aukning á umsvifum þeirra undanfarin ár var að miklu leyti fjármögnuð með aukningu skatttekna sem rætur sínar átti í góðu árferði, sem nú fer hins vegar versnandi um sinn.
Sjá nánar

Betri horfur
Margt bendir til þess að betra jafnvægi sé að komast á í efnahagslífinu, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Allir verði að sýna aðhald og leggja sitt af mörkum gagnvart verðlagsmarkmiðum.
Sjá nánar

Harkaleg vinnubrögð Samkeppnisstofnunar
Nýlegar sektarákvarðanir Samkeppnisstofnunar og húsleitir hennar hjá olíufélögunum vekja upp alvarlegar spurningar um vinnubrögð stofnunarinnar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA.
Sjá nánar

Ný kaupgjaldsskrá Samtaka atvinnulífsins

 

Kaupgjaldsskrá SA fyrir árið 2002 er komin á vefinn. Hér er um að ræða launataxta verkafólks, verslunarmanna og iðnaðarmanna. Laun hækka um 3,0% en kauptaxtar verkafólks og verslunarmanna taka þó meiri hækkun. Skráin er birt á vefnum á pdf- sniði. Pappírsútgáfan er send öllum aðildarfyrirtækjum SA. Sjá nánar

Endurskođun og frestun á mati á samningsforsendum

 

Náðst hefur samkomulag aðila vinnumarkaðarins um að fresta tímasetningu mats á forsendum kjarasamninga frá febrúarmánuði 2002 til maímánaðar 2002.
Sjá nánar

 

Víđa samdráttur framundan
Samkvæmt nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar má vænta umtalsverðs samdráttar í byggingariðnaði og nokkurs samdráttar í iðnaði og verslun, en stöðugleika eða lítilsháttar vaxtar í fjármálaþjónustu og ýmissi annarri þjónustu. Atvinnuleysi fer vaxandi.
Sjá nánar

Lítiđ dregiđ úr árćđni og stórhug margra fyrirtćkja

 
Í áramótaviðtali Morgunblaðsins við Finn Geirsson, formann SA, segir hann m.a. ánægjulegt að sjá að þrátt fyrir ýmis vonbrigði og áföll á liðnu ári hafi lítið dregið úr áræðni og stórhug margra fyrirtækja. Hann segir brýnt að búa svo um hnúta að gengi krónunnar haldist sem stöðugast.
Sjá nánar

Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar vegna samkomulags SA og ASÍ
Ríkisstjórnin hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna samkomulags Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins.
Sjá nánar

Eftirlit međ tóbakssölu: börn notuđ sem tálbeitur
Eftir áramótin áforma Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og ÍTR að auka eftirlit með sölu tóbaks til yngri en 18 ára. Börn á þessum aldri verða notuð sem tálbeitur. Þetta kemur fram í fréttapósti SVÞ, sem segja þetta mjög ógeðfellda eftirlitsaðferð.
Sjá fréttapóst SVÞ.

Meirihluti Svía vill evru

 

Samkvæmt nýrri Gallup-könnun er meirihluti Svía hlynntur upptöku evrunnar, eða 51% aðspurðra, en 38% eru mótfallin. Þá telja 65% að Svíþjóð muni taka upp evruna innan þriggja ára.
Sjá nánar á evruvef sænsku samtaka atvinnulífsins

 

ESB hyggst minnka umfang löggjafar um 25%
Framkvæmdastjórn ESB hyggst bæta og einfalda laga- og reglugerðarumhverfið. Markmiðið er að skera umfang löggjafar niður um a.m.k. 25% fyrir janúar 2005. Þegar hafa um eitt hundrað tillögur til nýrra reglusetninga verið dregnar til baka.
Sjá nánar

SA segja sig úr Landvernd
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, hefur tilkynnt úrsögn samtakanna úr Landvernd, frá og með 1. janúar 2002. „Samtök atvinnulífsins geta ekki starfað með samtökum sem taka jafn einhliða afstöðu gegn nýtingu orkulinda landsins, eins og fram hefur komið að undanförnu," segir m.a. í bréfi Ara til formanns Landverndar.

Vel sóttur stofnfundur Vinnuréttarfélags Íslands

 

Stofnað hefur verið félag um vinnurétt á Íslandi. Starfsmannastjórar og aðrir sem fjalla um réttarstöðu starfsmanna gagnvart vinnuveitanda geta átt aðild að félaginu en tilgangur þess er að vinna að kynningu og umfjöllun á sviði vinnuréttar og stuðla að útgáfu rita um það efni.
Sjá nánar

Félagsdómur sýknar LÍÚ
Félagsdómur hefur sýknað LÍÚ í máli sem Sjómannasamband Íslands höfðaði vegna niðurstöðu gerðardóms um skiptakjör vegna fjölda í áhöfn. Niðurstaðan felur í sér óbreyttan hlut frá því sem gilti fyrir úrskurð gerðardómsins.
Sjá nánar á heimasíðu LÍÚ.

Meðal 500 framsæknustu frumkvöðla Evrópu?
Árlega birtir fyrirtækið GrowthPlus lista yfir 500 framsæknustu frumkvöðlafyrirtæki Evrópu. Árið 2001 komust sjö íslensk fyrirtæki á listann. Hafin er leit að ábendingum um fyrirtæki vegna lista ársins 2002.
Sjá nánar

Hönnun og forritun: Vefur.is