ISSN 1670-2220, 11. tbl. 2002
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Ķslendingar lengst į vinnumarkaši

 

Atvinnuþátttaka eldra fólks er mest hérlendis af öllum ríkjum OECD. Lækkandi eftirlaunaaldur er víða áhyggjuefni, en hérlendis a.m.k. er mikil eftirspurn eftir eldra fólki á vinnumarkaði. Áreiðanleiki, samviskusemi og rík ábyrgðar- tilfinning eru eiginleikar sem gjarnan eru nefndir, auk mikillar þekkingar og reynslu.
Sjį nįnar


Starfsemin śr landi vegna hįrra fyrirtękjaskatta
70-80% Svía telja líklegt að háir fyrirtækjaskattar leiði til þess að sænsk fyrirtæki flytji starfsemi sína úr landi og hamli gegn fjölgun starfa. Þá bendir ný sænsk rannsókn á 20 ríkjum til að eignarskattar hamli gegn hagvexti, en þeir eru enn innheimtir í Svíþjóð og á Íslandi.
Sjį nįnar

Heildarsamtökum mismunað
Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir 30 milljóna króna framlagi til ASÍ. Sú mismunun á opinberum framlögum sem hér er á ferðinni er alvarlegt brot á þeirri grundvallarreglu að jafnræði eigi að ríkja milli aðila vinnumarkaðarins, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA.
Sjį nįnar

Desemberuppbót

 

Desemberuppbót fyrir árið 2002 er kr. 36.000 fyrir verkafólk og iðnaðarmenn og kr. 41.000 fyrir skrifstofu- og verslunarfólk. Greiða á desemberuppbót í síðasta lagi 15. desember.
Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA

 

Viðauki við virkjunarsamning vegna Austurlands
Undirritaður hefur verið viðauki við virkjunarsamning SA við ASÍ og landssambönd þess, vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Austurlandi. Samningnum er ætlað að mæta þörf á sveigjanlegu vinnufyrirkomulagi og löngum vinnulotum vegna fjarlægðar frá stærstu þéttbýliskjörnum.
Sjį nánar

Útvegsmenn greiði 1% framlag í séreignasjóð

 

Útvegsmönnum ber skv. dómi Félagsdóms að greiða sjómönnum í aðildarfélögum SSÍ 1% framlag í séreignasjóð án framlags af hálfu starfsmannsins. SA og LÍÚ hafa gert útgerðarmönnum grein fyrir niðurstöðu dómsins, sjónarmiðum samtakanna í málinu og hvernig beri að bregðast við niðurstöðunni.
Sjį nánar į heimsķšu LĶŚ

Mikil þátttaka í námskeiðum um starfsmannamál

 

Hátt á fjórða hundrað manns hafa þegar tekið þátt eða skráð sig á námskeið SA um starfsmannamál. Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum og eru haldin bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni, jafnt almenn námskeið um túlkun kjarasamninga sem námskeið um nýjungar og áherslur í starfsmannamálum.
Sjá nánar um nįmskeišin

Nýtt starfsfólk SA

 

Christoph Kuhn hefur verið ráðinn til starfa á hagdeild SA og tekur hann við af Sigurði Jóhannessyni sem hafið hefur störf hjá Hagfræðistofnun HÍ. Þá hefur Helga Jóhannesdóttir verið ráðin í stöðu bókara hjá SA.
Sjá nánar

Lokanir leikskóla: áhersla SA á sveigjanleika

 

Þjónusta leikskólanna er mjög mikilvæg fyrir atvinnulífið og röskun sem kemur niður á foreldrum og börnum kemur óneitanlega einnig niður á atvinnulífinu, segir Ari Edwald, fram- kvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann leggur áherslu á mikilvægi sveigjanleika í framkvæmd sumarlokana til að draga úr röskuninni.
Sjį nánar

Leitað verði orsaka mismunandi matvælaverðs
SA taka undir tillögu til þingsályktunar þess efnis að leitað verði orsaka fyrir mismunandi matvælaverði á Norðurlöndum og í ESB. SA telja hins vegar skylda tillögu vekja nokkra furðu, en skv. henni þyrfti Hagstofa Íslands sjálf að afla gagna um matvælaverð í ríkjum ESB ársfjórðungslega.
Sjį nánar

Umsagnir SA um þingmál

 

Samtök atvinnulífsins gefa Alþingi umsögn um margvísleg þingmál. Aðildarfyrirtæki SA eru hvött til að hafa samband ef þau vilja koma ábendingum á framfæri um einstök mál. Sjá umsagnir SA og lista yfir mál sem bíða umsagnar.
Sjį nánar

Verkefnastyrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði

 

Fyrirtæki, stofnanir o.fl. geta sótt um styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði til sérstakra verkefna á vegum svæðisvinnumiðlana. Styrkfjárhæðir nema hálfum eða heilum atvinnuleysisbótum og hámarkstími eru sex mánuðir.
Sjį nánar

 


Atvinnuleysi 3,2% og starfandi fólki fækkar
Atvinnuleysi var 3,2% í nóvember sl., skv. vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar, en 2,4% á sama tíma í fyrra. Starfandi fólki fækkaði um 3.100 milli ára. Mest er atvinnuleysið meðal yngsta aldurshópsins og meira hjá körlum en konum.
Sjį nánar

Víðtækt þríhliða samkomulag

 
Undirritað hefur verið þríhliða samkomulag sem nær til 92% launafólks í Finnlandi. Eftir að samkomulagið náðist fengu aðilar tvær vikur til að fá það samþykkt innan sinna raða, áður en það var svo undirritað. Víðtæk sátt var þannig forsenda undirritunar. Samið var um 2,9% grunnkaupshækkun árið 2003 og 2,2% árið 2004.
Sjį nánar

Leit að umboðsmanni erlendis?

 

Útflutningsráð hefur hleypt af stokkunum verkefni til að auðvelda íslenskum fyrirtækjum val á umboðsmönnum erlendis. M.a. hefur verið komið á samstarfi við ýmsa erlenda aðila í þessu skyni.
Sjá nánar á heimasíðu Útflutningsráðs


Af vettvangi kemur næst út 9. janúar
Fréttabréfið Af vettvangi kemur næst út fimmtudaginn 9. janúar 2003.

Hönnun og forritun: Vefur.is