ISSN 1670-2220, 10. tbl. 2003
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Sérstök hękkun lęgstu launa fęri upp allan launastigann

 

„Sérstakar“ hækkanir lægstu launa myndu í raun leiða til samsvarandi hækkana upp allan launastigann, að mati 65% aðspurðra í könnun SA. Ef einungis eru skoðuð svör þeirra sem taka afstöðu og hafa starfsfólk á lægstu umsömdu töxtum svara 80% spurningunni játandi en 20% neitandi. Þessi viðhorf koma heim og saman við niðurstöður rannsóknar hagfræðings við Hagfræðistofnun HÍ.
Sjį nįnar

Afkomuvęntingar fyrirtękja óbreyttar milli įra
Afkomuvęntingar fyrirtękja eru nįnast óbreyttar frį žvķ fyrir įri sķšan, skv. könnun SA. Rśmur helmingur reiknar meš svipašri afkomu į nęstu mįnušum, eša 52%, samanboriš viš 55% fyrir įri sķšan. 30% reikna meš batnandi afkomu ķ staš 28% fyrir įri sķšan, og 16% meš versnandi afkomu, ķ staš 14%. Bjartsżnin er minni į landsbyggšinni en į höfušborgarsvęši og horfur dekkstar ķ sjįvarśtvegi.
Sjį nįnar

Kröfur á forsendum fortíðarinnar
Kröfur um gjaldfrjálst háskólanám byggja á forsendum fortíðarinnar en eru ekki í sambandi við það umhverfi óþrjótandi eftirspurnar sem þróast hefur og fagna ber, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Þá verði ekki skilið hvers vegna háskólanám ætti að vera mun ódýrara en t.d. vörubifreiða- réttindi, endurmenntunarnámskeið og leikskóladvöl.
Sjį nįnar

Heilbrigð viðhorf
Ánægjuleg tíðindi eru fólgin í stjórnmálaályktun landsfundar Samfylkingar- innar um heilbrigðismálin, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann vonar að ályktunin reynist innlegg í að skapa breiða pólitíska samstöðu um gagngera endurskoðun heilbrigðiskerfisins. Gríðarlegir hagsmunir séu í húfi.
Sjį nįnar

Hærri lán Íbúðalánasjóðs gætu ógnað stöðugleika

 

Nauðsynlegt er að fara afar gætilega í rýmkun lánareglna Íbúðalánasjóðs, sem gæti valdið miklum sviptingum á verði íbúðarhúsnæðis og ógnað stöðugleika í hagkerfinu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Hagfræði- stofnunar HÍ um áhrif aukinna lánveitinga Íbúðalánasjóðs á fasteignamarkað og efnahagslíf. Skýrslan var unnin að beiðni SA og SBV.
Sjį nánar

Hátt í 80% töldu sig fá hæfilegt lán
Nær átta af hverjum tíu töldu að lánið, sem þeir fengu síðast hjá Íbúðalánasjóði, hafi verið hæfilegt að því er kemur fram í könnun sem Gallup gerði fyrir Íbúðalánasjóð og félagsmálaráðuneytið. Á þetta bendir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfa- fyrirtækja, í samtali við Morgunblaðið.
Sjį nánar

Samræming vinnu og einkalífs

 

Þann 10. nóvember verður haldin ráðstefna um samræmingu vinnu og einkalífs á hótel Nordica, ætluð starfsmannastjórum, jafnréttisráðgjöfum o.fl. Skráning er til 6. nóvember. Veitt verður viðurkenning fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki. Óskað er eftir ábendingum vegna hennar.
Sjį nįnar į vef hins gullna jafnvęgis

Nýsköpunarstyrkir Starfsafls fyrir fyrirtæki
Starfsafl hefur ákveðið að veita tvo svokallaða nýsköpunarstyrki Starfsafls. Hvor um sig er að upphæð 500.000 kr. og er tilgangur þeirra að styðja við viðleitni fyrirtækja innan SA til að vinna að nýsköpun í símenntunarmálum starfsmanna sem aðild eiga að Flóabandalaginu. Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Sjį nįnar į vef Starfsafls

Dagur samkeppnishæfni 14. nóvember

 

UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir evrópskum samkeppnisdegi í Brussel föstudaginn 14. nóvember nk. Fjallað verður um nauðsyn bættrar samkeppnishæfni evrópsks starfsumhverfis. Fyrirtækjastjórnendur um alla álfu eru hvattir til að sýna samstöðu og taka þátt, en meðal þátttakenda verður Silvio Berlusconi, formaður leiðtográðs ESB.
Sjį nįnar

Heimsmet í opinberum umsvifum
Gjöld í fjárlagafrumvarpi 2004 eru 8% hærri en í frumvarpi fyrir þetta ár, en breytingin milli frumvarpa er ágætur mælikvarði á aukningu ríkisútgjalda. Hlutfall samneyslunnar, þ.e. rekstrar hins opinbera, af landsframleiðslunni hefur aukist tvöfalt meira en ráð var fyrir gert og er nú áætlað 26,4%, eða það hæsta sem þekkist.
Sjá nánar

Áhersla á mikilvægi aðhalds í ríkisfjármálum

 

Í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ fjallaði Kristján Ragnarsson, fráfarandi formaður samtakanna til 33 ára, m.a. um áhrif stóriðjuframkvæmda og mikilvægi aðhalds í ríkisfjármálum, sem hann sagði ekki birtast með nægilega skýrum hætti í fjárlagafrumvarpi næsta árs.
Sjá nánar

 

Áhersla á aðhald hins opinbera
Samtök fiskvinnslustöðva segja miklu skipta að ríki og sveitarfélög haldi að sér höndum í framkvæmdum og gæti ítrasta aðhalds í rekstri á fyrirsjáan- legum þenslutímum. Varðveita verði stöðugleikann í íslensku efnahagslífi og þar skiptir miklu að aðhaldasemi sé gætt í opinberum útgjöldum.
Sjá nánar

Færist fé á færri hendur?
Því er stundum haldið fram að fjármunir færist á sífellt færri hendur. Þegar skoðuð er þróunin með tilliti til eignarskattsstofns kemur hins vegar fram að á árunum 1996-2001 fækkaði þeim sem greiða engan eignarskatt um 10%, og hópurinn sem mest greiðir þrefaldaðist.
Sjá nánar

Skoðun á þingmáli?

 

SA berst mikill fjöldi þingmála til umsagnar og eru upplýsingar um umsagnarferlið birtar á vef samtak- anna, þ.e. hvenær mál barst samtökunum, hver sé ábyrgðarmaður málsins og hvenær það sé afgreitt. Félagsmenn SA sem vilja hafa áhrif á gerð umsagnar eru hvattir til að hafa samband við ábyrgðarmann.
Sjį lista yfir žingmįl til umsagnar

Fyrirtæki dæmdar bætur vegna brota starfsmanns á samkeppnisákvæði í ráðningarsamningi
Hæstiréttur hefur dæmt fyrrverandi starfsmann fyrirtækis til greiðslu 900.000 kr. févítis vegna brota á ákvæði í ráðningarsamningi um að hann skuldbindi sig til að ráða sig ekki hjá fjórum nafngreindum fyrirtækjum í tvö ár frá starfslokum sínum hjá fyrirtækinu.
Sjá nánar

LÍÚ sýknað af kröfum Sjómannasambands Íslands

 

Hæstaréttur Íslands hefur staðfest sýknudóm héraðsdóms í máli Sjómannasambands Íslands gegn LÍÚ. Með málssókninni gerði Sjómanna- sambandið kröfu um að felld yrðu úr gildi ákvæði í úrskurði gerðardóms í kjaradeilu fiskimanna um hvernig skuli skipta hlut sem sparast við fækkun í áhöfn vegna tækninýjunga eða hagræðingar.
Sjį nįnar į vef LĶŚ

Fjölgun starfandi fólks?
Starfandi fólki fjölgaði um 2.100 frá öðrum ársfjórðungi til þess þriðja. Fjölgunin markast mjög af afleysingastörfum sumarfólks og er einkum í aldurshópnum 16-24 ára. Hjá þeim sem eru eldri en 25 ára nam fjölgunin einungis 200 störfum. Starfandi körlum fækkaði um 500 og starfandi konum fjölgaði um 700.
Sjá nánar

Nauðsynlegt að auka sveigjanleika á vinnumarkaði

 

Mikið atvinnuleysi í mörgum aðildarríkja OECD stafar m.a. af stífri vinnumarkaðslöggjöf, háum óbeinum launakostnaði og óhóflega ríkri uppsagnarvernd, segir í yfirlýsingu ráðgjafa- nefndar stofnunarinnar. Nauðsynlegt sé að auka sveigjanleika á vinnumarkaði viðkomandi ríkja.
Sjá nánar

Krefjandi valkostir Dana
Danir verða sem fyrst að taka afstöðu til þess hvort þeir vilji kalla yfir sig stórfelldar skattahækkanir og/eða niðurskurð opinberra útgjalda, eða grípa til aðgerða nú þegar til að hækka hlutfall fólks á vinnumarkaði, m.a. með hækkun eftirlaunaaldurs og auknum fjölda útlendinga á dönskum vinnumarkaði. Þetta er niðurstaða skýrslu dönsku samtaka atvinnulífsins.
Sjá nánar

Lagalegar hindranir í rafrænum viðskiptum?

 

Hefur þú mætt lagalegum hindrunum við rafrænum viðskiptum? Sá lagarammi sem gildir á Íslandi byggir á tilskipunum ESB. Til að mæta betur þörfum atvinnulífsins að þessu leyti gengst ESB nú fyrir könnun á meðal fyrirtækja í Evrópu um lagalegar hindranir í rafrænum viðskiptum. Frestur til þátttöku er til 17. nóvember.
Sjá nánar

 

Atvinnulífið spáir 1,8% hagvexti í ESB
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, spá 1,8% hagvexti meðal núverandi aðildarríkja ESB árið 2004, og 1,7% hagvexti meðal evrulandanna. Á sama tíma er reiknað með 3,9% hagvexti Bandaríkjunum. Samtökin segja nauðsynlegt að efla samkeppnishæfni Evrópu, m.a. með sveigjanlegri reglum á vinnumarkaði.
Sjá nánar

Röskun vegna vetrarfría í grunnskólum
Vetrarfrí í grunnskólum valda mikilli röskun og óþægindum á mörgum vinnustöðum segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir ekkert samráð hafa verið haft við atvinnulífið um vetrarfríin. Þá sé ljóst að þau bitni því miður frekar á konum en körlum á vinnumarkaðnum.
Sjá nánar

Lækkun vörustjórnunarkostnaðar

 

Kostnaður við flutninga, birgðahald og stjórnun þessara liða fyrir dagvöru nemur 14,3% af smásöluveltu dagvöru, að því er fram kemur í nýrri úttekt á vörustjórnunarkostnaði á Íslandi sem IMG Deloitte og Byggðarannsóknastofnun Íslands framkvæmdu. Samkvæmt skýrslunni er hægt að lækka vörustjórnunarkostnað á ýmsan hátt.
Sjį nįnar į vef SVŽ

Skilar hagræðing verðhækkun?
Viðskiptablaðið fjallar nýlega um lokaritgerð nemenda í rekstrar- og viðskiptafræðum, þar sem fram kemur að matvörur hafi hækkað meira en aðrar vörur hérlendis og meira en matvörur erlendis, og orsakir síðan raktar til meintrar fákeppni. Þetta eru áhugaverðar spurningar, en skv. könnun SA er enginn marktækur munur á þeim verðbreytingum sem fjallað er um í ritgerðinni og kenningar um orsakir því án tilefnis.
Sjį nįnar

Hönnun og forritun: Vefur.is