UMHVERFISMÁL
- Mikilvægt er að fyrirtæki haldi áfram að bæta umhverfi sitt og nýtingu aðfanga og beiti til þess umhverfisstjórnun enda fylgir betri nýting auðlinda, minni mengun og aukið öryggi í kjölfarið.
- Hlúa þarf að stoðum sjálfbærrar þróunar þar sem jafnvægi ríkir milli efnahagslegra og félagslegra sjónarmiða og umhverfisins.
- SA styðja alþjóðasamvinnu sem ætlað er að draga úr mengun og áhrifum hennar og nær til allra sem menguninni valda.
- Nýta ber endurnýjanlegar auðlindir á sjálfbæran hátt, taka tillit til sérkenna náttúrunnar og leggja áherslu á að viðhalda þeim.
- Eðlilegt er að mengunarvaldar beri ábyrgð á því tjóni sem þeir valda.
- Nauðsynlegt er að endurskoða eftirlit og leyfisveitingar á þessu sviði og mikilvægt að samfara auknu innra gæðastarfi fyrirtækjanna verði dregið úr opinberu eftirliti og það markaðsvætt sem kostur er.
Umgengni fyrirtækja við náttúru landsins, auðlindir og umhverfi hefur tekið stakkaskiptum á síðustu áratugum. Umtalsverður árangur hefur náðst vegna frumkvæðis fyrirtækjanna sjálfra og vegna almennra viðhorfsbreytinga. Alþjóðlegar reglur og skuldbindingar hafa jafnframt hvatt til umbóta ásamt stefnumörkun stjórnvalda. Fyrirtækin hafa bætt umhverfi sitt og nýtingu aðfanga og njóta með því aukins efnahagslegs ávinnings og aukinnar velferðar sem kemur bæði starfsmönnum og samfélaginu í heild til góða.
Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að þessi þróun haldi áfram enda hefur hún í för með sér betri nýtingu auðlinda, minni mengun, aukið öryggi og meiri velmegun.
Sjálfbær þróun
Til að velferð sé tryggð í landinu þarf að hlúa að stoðum sjálfbærrar þróunar. Jafnvægi þarf að ríkja á milli efnahagslegra og félagslegra sjónarmiða og umhverfisins. Tryggja þarf samkeppnishæf starfsskilyrði fyrirtækja þegar horft er til skemmri tíma án þess þó að missa sjónar á langtímahagsmunum þjóðarinnar. Stefna ber að þessu marki í samstarfi við sveitarfélög, stjórnvöld og íbúa landsins.
Hvatt er til að við mikilvægar ákvarðanir verði horft til heildaráhrifa fyrirtækja á umhverfi sitt bæði hvað varðar framleiðslu og þjónustu. Mikilvægt er að höfð verði í huga hnattræn sýn og langtímahugsun. Atvinnulífið ber líkt og aðrir ríka samfélagslega ábyrgð.
Alþjóðleg mál
Umhverfismál í víðum skilningi eru í eðli sínu alþjóðleg og Ísland er aðili að fjölmörgum samningum sem er til dæmis ætlað að draga úr mengun vegna þrávirkra lífrænna efna, þungmálma, geislavirkra efna og ósoneyðandi efna. Ísland er auk þess aðili að samningum um varnir gegn mengun hafsins. Alþjóðleg þróun hefur mikil áhrif svo sem þegar dregur úr mengun frá samgöngum eða fundnar eru leiðir til að draga úr orkunotkun skipa.
Samtök atvinnulífsins styðja alþjóðasamvinnu sem miðar að því að draga úr eða koma í veg fyrir mengun láðs, lagar og lofts og eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum við undirbúning og framkvæmd samninga á þessu sviði og aðild Íslands að þeim.
Gróðurhúsalofttegundir
Á næstu áratugum verður lögð mikil áhersla á framleiðslu orku sem ekki hefur í för með sér losun gróðurhúsalofttegunda sem geta valdið hlýnun andrúmslofts jarðar. Íslenskar orkulindir gegna mikilvægu hlutverki í þessu samhengi og lykilatriði er að alþjóðlegir samningar heimili almenna nýtingu endurnýjanlegra orkulinda.
Samtök atvinnulífsins styðja aðild Íslands að alþjóðlegum samningum sem nái til allra þeirra ríkja sem losa mest af gróðurhúsalofttegundum. Áhersla verði á að ná sem víðtækastri samstöðu um að draga úr losun og áhrifum slíkra lofttegunda með aðgerðum sem byggja á rannsóknum, tækniþróun, aðlögun og fræðslu.
Umhverfisstjórnun
Undanfarin ár hefur áhugi á innra umhverfisstarfi fyrirtækja aukist. Talsverð reynsla er komin á ýmsar aðferðir sem nýtast við þetta innra starf, svo sem umhverfisstjórnkerfi, grænt bókhald, hreinni framleiðslutækni, umhverfisvæna hönnun og líftímagreiningu. Mörg fyrirtæki ganga mun lengra en kröfur hins opinbera gera ráð fyrir. Þannig hafa fjölmörg fyrirtæki markað sér umhverfisstefnu og nokkur hafa fengið umhverfisstjórnkerfi sín vottuð.
Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að unnið sé markvisst og meðvitað að því að samtvinna umhverfismál daglegum rekstri fyrirtækja. SA styðja þróun tækja sem nýtast við umhverfisstjórnun. Atvinnurekendur eru hvattir til að nýta sér þau stjórntæki sem bjóðast og til að leita eftir vottun gæða- og umhverfisstjórnkerfa. Skorað er á stjórnvöld að axla sína ábyrgð, að þau íþyngi ekki fyrirtækjum og að tryggt verði að kostnaður við eftirlit lækki í takt við aukið innra eftirlit og ábyrgð fyrirtækja.
Ábyrg nýting auðlinda
Atvinnulífið hefur í áranna rás tekið ábyrga afstöðu til sjálfbærrar nýtingar auðlinda og stuðlað að því að viðhalda jákvæðri ímynd Íslands um náttúru og hreinleika. Nýting fiskveiðiauðlindarinnar er gott dæmi um þetta. Nýting orkulinda hefur almennt tekist vel og sá iðjurekstur sem henni hefur fylgt hefur fallið vel að annarri starfsemi. Miklir möguleikar liggja í ferðaþjónustu sem byggir fyrst og fremst á náttúru landsins og fjölbreyttu landslagi.
Samtök atvinnulífsins vilja að endurnýjanlegar auðlindir verði nýttar á sjálfbæran hátt þar sem tekið er tillit til síbreytilegrar náttúru. Við nýtingu annarra auðlinda og landgæða, svo sem við töku jarðefnis og þjónustu við ferðamenn, verði tekið tillit til sérkenna íslenskrar náttúru og áhersla lögð á að viðhalda þeim.
Umhverfisábyrgð
Atvinnulífið hefur átt frumkvæði að framförum og úrbótum í umhverfismálum og sýnt árangur í verki á mörgum sviðum. Ábyrg afstaða atvinnulífsins er undirstaða áframhaldandi framfara á þessu sviði.
SA styðja það grundvallarsjónarmið að mengunarvaldar beri ábyrgð á því tjóni sem þeir valda. Mikilvægt er að reglur um umhverfisábyrgð taki mið af aðstæðum hér á landi. Meta þarf vandlega þau áhrif sem slíkar reglur hafa í för með sér fyrir þau fyrirtæki sem undir þær falla. Mikilvægt er að þær skerði ekki samkeppnisskilyrði íslensks atvinnulífs og hagkerfisins í heild.
Endurvinnsla, endurnýting, úrgangur
SA er umhugað um að enn frekari árangur náist í bættri meðhöndlun úrgangs. Lögð er áhersla á að lágmarka þann úrgang sem til fellur hjá fyrirtækjum og að þau stundi endurnýtingu og endurvinnslu innan sinna veggja. Góð flokkun úrgangs sem fer frá fyrirtækjunum er síðan forsenda endurvinnslu utan þeirra.
Samtök atvinnulífsins vilja leggja sitt af mörkum í samvinnu við stjórnvöld og sveitarfélög til að ná stjórn á úrvinnslu þess úrgangs sem fellur til í landinu. Eðlilegt er að þar verði beitt markaðslausnum, meðal annars til að uppfylla ákvæði alþjóðasamninga sem við eigum aðild að. SA leggja áherslu á að atvinnulífið taki frumkvæði í slíkum málum.
Samskipti við stjórnvöld
Atvinnulífið vill eiga góð samskipti við stjórnvöld og opinbera eftirlitsaðila. Úrbætur í umhverfismálum haldast í hendur við efnahagslega og tæknilega framþróun í fyrirtækjunum en eiga ekki uppsprettu sína í opinberum reglugerðum eða tilskipunum, heldur taka mið af þeim á hverjum tíma.
Samtök atvinnulífsins skora á stjórnvöld að hefja átak til að einfalda og fækka reglugerðum á sviði umhverfismála og gera þær gegnsærri. Auðvelda verður fyrirtækjum að átta sig á þeim kröfum sem gerðar eru til starfsemi þeirra og nauðsynlegt er að ferill við leyfisveitingar sé einfaldur og skýr - að starfsleyfi séu veitt án tímamarka en verði háð endurskoðun. Það er grundvallaratriði að hér sé einn og óskiptur vinnumarkaður þar sem sömu kröfur eru gerðar til fyrirtækja óháð staðsetningu þeirra og því þarf að samræma eftirlit og leyfisveitingar á landsvísu. Mikilvægt er að ekki séu gerðar meiri kröfur til fyrirtækja en umfang og eðli starfsemi þeirra gefur tilefni til.
Vinnuumhverfi
Á undanförnum áratugum hefur aðbúnaður starfsmanna á vinnustöðunum tekið stórstígum framförum. Fyrirtæki leggja sífellt meira á sig til að koma í veg fyrir slys og stuðla að heilbrigði og vellíðan starfsmanna. Nýlega tóku gildi breytingar á lögum sem leggja aukna ábyrgð á fyrirtæki á þessu sviði en þau þurfa nú öll að gera sérstakt áhættumat á sínum vinnustöðum.
Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að fyrirtæki haldi áfram forvarnarstarfi sínu og leggja áherslu á að dregið verði úr opinberu eftirliti samhliða því að fyrirtækin axla aukna ábyrgð.








