Um útgáfustarf SA
Meginhluti útgáfustarfs Samtaka atvinnulífsins felst í að uppfæra upplýsingar á vef samtakanna og útgáfu rafræns fréttabréfs. SA gefur út kjarasamninga, sem gilda fyrir fleiri en eitt fyrirtæki, í bókarformi. Þeir eru jafnframt aðgengilegir á Vinnumarkaðsvef SA. Kaupgjaldsskrá SA er að finna á Kjaramálavef SA sem opinn er félagsmönnum. Hér að neðan er yfirlit yfir aðra prentaða útgáfu.
Ársskýrslur Samtaka atvinnulífsins
Hér er að finna ársskýrslur SA frá stofnun samtakanna árið 1999.
Önnur rit
Hér er að finna yfirlit í tímaröð yfir fjölbreytt rit sem Samtök atvinnulífsins hafa gefið út ásamt stefnumörkun samtakanna í ýmsum málaflokkum. Í febrúar 2010 kom t.a.m. út aðgerðaáætlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins og í júní kom út rit um fjármál hins opinbera þar sem er að finna tillögur SA að því sem betur má fara í þeim efnum. Fjallað er um fjárlög ríkisins og umgjörð þeirra og í einstökum köflum er m.a. fjallað um heilbrigðis- mennta- og velferðarmál auk þess sem fjallað er um málefni sveitarfélaga.
Útgefnir kjarasamningar
SA gefur út kjarasamninga, sem gilda fyrir fleiri en eitt fyrirtæki, í bókarformi. Þeir eru jafnframt aðgengilegir á Vinnumarkaðsvef SA.
Kaupgjaldsskrá SA
Þegar breytingar verða á launatöxtum gefa Samtök atvinnulífsins út kaupgjaldsskrá þar sem almennir launataxtar sem SA hefur samið um við stéttarfélögin hafa verið uppfærðir.








