Beint á leiðarkerfi vefsins

Skoðun SA

31.1.2011

Hækkun launa í sjávarútvegi um tugi prósenta hefði áhrif á allar atvinnugreinar

Samtök atvinnulífsins hugsa um atvinnulífið í heild í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir. Í samtali við Fréttablaðið segir formaður SA, Vilmundur Jósefsson, að sjávarútvegurinn hafi fengið hörðustu kröfurnar í upphafi samningalotunnar, kröfur um 20 til 30 prósenta launahækkanir fyrir ákveðinn hóp fólks. „Við vitum alveg hvað gerist ef það verður gengið að þessu. Það leiðir út í allt samfélagið í formi verðbólgu og þar af leiðandi atvinnuleysi."

30.1.2011

Áhugaleysi ríkisstjórnar og ASÍ á atvinnuleysinu áhyggjuefni

„Við teljum að það sé útlátalaust fyrir ríkisstjórnina að girða sig í brók og fara að klára einhver mál svo við getum farið að koma okkur upp úr þessari djúpu holu sem við erum í en ekki halda áfram að moka á botninum." Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, í ítarlegu viðtali í helgarútgáfu Fréttablaðsins um atvinnumálin, yfirstandandi kjaraviðræður og stjórnmálin. Vilmundur segir að það hafi komið SA á óvart hvað ASÍ og ríkisstjórnin hafi litlar áhyggjur af atvinnuleysinu. „Það er eins og það sé bara sjálfsagt mál að það séu hér fjórtán þúsund manns atvinnulausir."

26.1.2011

Félagsdómur mun úrskurða um lögmæti verkfallsboðunar

Samtök atvinnulífsins munu láta reyna á lögmæti verkfallsboðunar sem starfsmenn í fiskimjölsverksmiðjum í starfsgreinasambandsfélögunum Afli á Austurlandi og Drífanda í Vestmannaeyjum hafa samþykkt. Málinu verður vísað til félagsdóms. SA líta svo á að samningur við félögin sé ekki sjálfstæður kjarasamningur sem fylgi verkfallsheimild heldur sé hann hluti af aðalkjarasamningi við viðkomandi félög.

21.1.2011

Vögguvísa yfir erlendum fjárfestingum og atvinnulífinu

Á síðasta ári var samdráttur á vinnumarkaði samkvæmt nýrri skýrslu Hagstofunnar. Það voru fleiri atvinnulausir en árið áður og vinnutíminn styttri. Um áramótin voru svo um 14.000 atvinnulausir samkvæmt Vinnumálastofnun. Fjárfestingar í hagkerfinu eru um þessar mundir minni en nokkru sinni síðustu 70 árin.

 

Samtök atvinnulífsins leggja á það megináherslu nú þegar unnið er að gerð nýrra kjarasamninga að stjórnvöld grípi til allra nauðsynlegra ráðstafana til að skapa skilyrði fyrir nýjar fjárfestingar og þá sérstaklega í útflutningsgreinum. Þar er átt við greinar sem nýta orku til framleiðslu sinnar, sjávarútveg, sprotafyrirtæki, ferðaþjónustu og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.

17.1.2011

Mikið atvinnuleysi áhyggjuefni

Um áramótin voru 13.972 án atvinnu og fjöldi þeirra sem hefur verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur fer vaxandi. Nýjar tölur Vinnumálastofnunar um þróun atvinnuleysis eru ekki uppörvandi og ef ný hagvaxtarspá AGS gengur eftir verður hér áfram mikið atvinnuleysi og áframhaldandi stöðunun. AGS hefur nú lækkað hagvaxtarspá sína fyrir Ísland úr 3% í 2% fyrir 2011 og segir eitt helsta verkefni þjóðarinnar að ná niður atvinnuleysinu þar sem fólk án atvinnu muni búa áfram við kreppu. Samtök atvinnulífsins taka undir þessi orð AGS en lágmarkshagvöxtur á árunum 2011-2015 þarf að vera 3,5% að meðaltali til þess að núverandi þróun snúist við.

14.1.2011

Stöðnun ekki boðleg

Samtök atvinnulífsins telja þá leið vænlegasta frá núverandi stöðnun að fjárfestingar og útflutningur aukist og þannig skapist atvinna í bráð og lengd. Slík leið er líklegri til árangurs en tímabundinn vöxtur byggður á aukinni einkaneyslu eða hallarekstri ríkissjóðs.

 

Óhugsandi er að hefja sókn þjóðarinnar til framfara og aukins útflutnings og fjárfestinga án þess að sjávarútvegurinn, ein helsta útflutningsgreinin og um leið ein helsta stoð samfélagsins, eigi þar öflugan hlut að máli.

13.1.2011

Samstaða um atvinnusókn

Skynsamlegir kjarasamningar eru ein af lykilforsendum fyrir hækkun á gengi íslensku krónunnar á næstu árum og þar með lágri verðbólgu og auknum kaupmætti. Kaupmáttur á næstu árum vex ekki aðeins með lágri verðbólgu heldur ekki síður vegna þess að ný störf skapast, meiri atvinna verður í boði og atvinnuleysi dregst saman. Nauðsynlegt er að ríkisstjórn og Alþingi komi að nokkrum mikilvægum málum til þess að ná fjárfestingum á skrið og styðji við stefnumörkun um framleiðsludrifinn hagvöxt sem leiðina út úr kreppunni.

 

Í leiðara nýs fréttabréfs SA fjallar Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA um kjarasamningana framundan og þá leið sem fara verði. Hann segir tvær leiðir hugsanlegar til að koma Íslandi út úr kreppunni.  „Annars vegar er að reikna með takmörkuðum hagvexti sem byggir á einkaneyslu og samneyslu. Hins vegar er að reiða sig á öflugan hagvöxt sem er drifinn áfram af framleiðsluhlið efnahagslífsins, þ.e.a.s. með fjárfestingum og auknum útflutningi."

12.1.2011

Meginmarkmið að þjóðin nái fyrri styrk

Viðræður aðila vinnumarkaðarins um nýja kjarasamninga eru nú komnar á skrið eftir að hafa legið niðri yfir jól og áramót. Í gær áttu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins fund með samninganefnd Alþýðusambands Íslands og í hádeginu í dag funduðu SA með leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Á fundum Samtaka atvinnulífsins með ASÍ og ríkisstjórninni lögðu SA fram samantekt vegna kjaraviðræðnanna þar sem sett eru fram meginmarkmið SA og yfirlit um þau mál sem samtökin vilja að ríkisstjórn og Alþingi taki til umfjöllunar og afgreiðslu samhliða gerð nýrra kjarasamninga.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english