Beint á leiđarkerfi vefsins

Skođun SA

29.12.2011

Ár glatađra tćkifćra

Viðskiptablað Morgunblaðsins fjallar í dag um árið sem er að líða og gerir upp þau mál sem snúa að atvinnulífinu. „Það sem stendur upp úr á árinu var að í maí tókst að ljúka kjarasamningum, að undangenginni langri fæðingu og löngum meðgöngutíma," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins m.a. í samtali við blaðið. „Samningarnir tryggðu vinnufrið, en kostuðu það líka að atvinnulífið teygði sig eins langt og mögulegt var og var sumt jafnvel alveg á jaðri skynseminnar. Útkoman mun líklega jafngilda að jafnaði 13% launahækkunum yfir þriggja ára tímabil."

27.12.2011

Stjórnmálamenn vinni fyrir laununum sínum

Mikilvægt er að stjórnmálamenn og stjórnvöld fari að vinna fyrir laununum sínum, með því að gefa atvinnulífinu tækifæri til að skapa þær tekjur sem þarf til að standa undir launum þeirra og annarra. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu RÚV í tilefni að því að kjararáð dró fyrir jól til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum í kjölfar efnahagshrunsins.

20.12.2011

Ađilar taki höndum saman um sköpun nýrra starfa

Gerðardómur hefur nú úrskurðað í ágreiningsmáli HS Orku og Norðuráls á þann veg að afhenda skuli alla umsamda orku til álversins að því gefnu að ákveðin skilyrði séu uppfyllt. Samtök atvinnulífsins fagna því að komin er niðurstaða í þetta mál og hvetja alla aðila sem að málum koma til að taka höndum saman um að ryðja burt þeim hindrunum sem enn standa í vegi þess að framkvæmdir við álverið í Helguvík og tengdar virkjanaframkvæmdir komist á fullt skrið.

14.12.2011

Formađur SA: Atvinnumálin verđi sett í forgang

Það er ótalmargt sem betur mætti fara í atvinnulífinu hér á landi og þess vegna beinum við því til Alþingis og alþingismanna að þeir vakni af þyrnirósarsvefni og geri sér grein fyrir stöðunni. Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. í samtali við Morgunblaðið í dag en Samtök atvinnulífsins sendu öllum alþingismönnum bréf í gær þar sem þeir eru hvattir til að setja atvinnumálin og baráttuna gegn atvinnuleysi í forgang. Vilmundur segir að verið sé að draga fyrirtæki niður í svaðið með óhóflegri skattheimtu en þar má t.d. nefna hækkun kolefnisgjalds, sérstakan launaskatt á banka, óhóflega hækkun veiðigjalds, framlengingu og hækkun auðlegðarskatts.

13.12.2011

Til Alţingis frá SA: Virkjum tćkifćrin og rjúfum kyrrstöđuna

Samtök atvinnulífsins sætta sig ekki við núverandi ástand og horfur í atvinnumálum. Með markvissum aðgerðum er hægt að koma efnahagslífinu á rétta braut. Efnahagsleg stöðnun er heimatilbúinn valkostur. Það er löngu tímabært að atvinnumálin fái forgang.

 

Lítill hagvöxtur, skortur á framkvæmdum og fjárfestingum, atvinnuleysi og brottflutningur fólks tefur endurreisn og rýrir lífskjör fólks í landinu. Árið 2011 er enn eitt ár vannýttra tækifæra. „Eitthvað annað" stefnan er fullreynd.

 

Samtök atvinnulífsins benda á atvinnuleiðina. Markvissa leið fjárfestinga og framkvæmda, sem dregur úr atvinnuleysi og eykur hagvöxt.

 

Samtök atvinnulífsins hvetja Alþingi að taka nú frumkvæði og láta framsæknar aðgerðir í atvinnumálum hafa algjöran forgang. Mörkum skýra stefnu, eyðum óvissu undirstöðuatvinnugreina. Leysum úr læðingi uppsafnaða fjárfestingarþörf og sköpum ný atvinnutækifæri í byggðum landsins.

 

Sækjum fram. Rjúfum kyrrstöðuna og virkjum þau tækifæri sem blasa við.

 

Sent til allra alþingismanna 13. desember 2011. 

12.12.2011

Veikar undirstöđur hagvaxtar rćddar á Sprengisandi

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 11. desember. Þar sagði hann m.a. að nýjar tölur Hagstofunnar um 3,7% hagvöxt á fyrstu 9 mánuðum ársins ekki gefa vísbendingar um að viðsnúningur til hins betra hafi orðið í atvinnulífinu. Hagvöxturinn skýrist af aukinni einkaneyslu vegna tímabundinna ástæðna og aukinnar makrílveiði sem hafi reynst þjóðarbúinu mikilvæg búbót.

 

Hannes bendir á að störfum fjölgi nánast ekki neitt, mikill flótti fólks sé frá landinu og fáar vísbendingar um að umtalsverðar fjárfestingar í atvinnulífinu séu framundan. Hagvöxturinn hvíli því á veikum grunni, en auka þurfi verðmætaframleiðslu atvinnulífsins, skapa ný störf og efla rekstur starfandi fyrirtækja með arðbærum fjárfestingum.

12.12.2011

Nýr skattur bitnar á almennu lífeyrissjóđunum

Nýr skattur gæti orðið til þess að lífeyrir þeirra sem fá greitt úr almennum lífeyrissjóðum lækki. Ríkisábyrgð tryggir hinsvegar að skatturinn hefur engin áhrif á þá sem fá greitt úr opinberum sjóðum. Þetta kemur fram í umfjöllun fréttastofu RÚV um áform ríkisstjórnarinnar að skattleggja lífeyrissjóðina til að fjármagna tímabundna vaxtaniðurgreiðslu. Áformin hafa verið gagnrýnd harðlega.

28.11.2011

Landsmenn borga reikninginn

Ef tekið er mið af nýjustu þjóðhagsspá Seðlabankans þá verður landsframleiðsla Íslands 105 milljörðum króna lægri við árslok 2013 en hagspá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gerði ráð fyrir í nóvember árið 2008, samkvæmt útreikningum Samtaka atvinnulífsins (SA).

 

„Landsmenn eru að borga reikninginn fyrir þessa ríkisstjórn, sem nýtir ekki þau tækifæri sem eru til staðar," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Vilhjálmur bendir á að sú upphæð sem þjóðarbúið verður af, sökum minni hagvaxtar en spáð hafði verið, nemi á þriðja hundrað milljarða króna á árunum 2011- 2013.

2.11.2011

Vaxtahćkkun Seđlabankans seinkar efnahagsbata

Samtök atvinnulífsins lýsa vonbrigðum með þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans að hækka stýrivexti um 0,25%. Vaxtahækkun við ríkjandi aðstæður sem einkennast af allt of lágu fjárfestingarstigi, miklum slaka í efnahagslífinu, stórfelldu atvinnuleysi og hóflegum vexti almennrar eftirspurnar er til þess fallin að draga úr og seinka þeim efnahagsbata sem nauðsynlegur er þannig að atvinnuleysi minnki í ásættanlegt horf og fyrirtækin fái lífvænleg starfsskilyrði.

 

Verðbólgan á skemmri tíma mælikvarða er á niðurleið og kostnaðaráhrif kjarasamninga annað hvort kominn fram eða bundin næstu árin og þar með utan áhrifasviðs peningastefnunnar. Lækkandi hrávörðuverðshækkanir á alþjóðamörkuðum, lakari efnahagshorfur erlendis og styrking krónunnar ættu að stuðla að því að verðbólgumarkmið bankans verði í sjónmáli innan fárra missera.

28.10.2011

Stefnukreppa á Íslandi

VÍB stóð í vikunni fyrir fræðslufundi undir yfirskriftinni Ísland - í endurreisn eða stefnukreppu? Martin Wolf, yfirhagfræðingur á Financial Times, ásamt Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, Katrínu Ólafsdóttur, lektor í Háskólanum í Reykjavík og Heiðari Má Guðjónssyni, fjárfesti, ræddu efnahagslega stöðu Íslands. Vilhjálmur velti upp þeirri spurningu hvort stjórnvöld væru fær um að skapa réttu aðstæðurnar fyrir kröftuga atvinnusköpun og umtalsverðar fjárfestingar í atvinnulífinu sem væri lykillinn að því að komast út úr kreppunni.

28.10.2011

Gjaldeyrishöftin dýr mistök og hamla hagvexti

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði á ráðstefnu stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Hörpu sem fram fór í gær, að gjaldeyrishöftin hefðu verið dýr mistök og væru í raun vantraustsyfirlýsing á gjaldmiðilinn. „Hver ætti að trúa á krónuna ef íslensk stjórnvöld gera það ekki?" spurði Vilhjálmur.

19.10.2011

Núverandi vinnumiđlun er ábótavant

Fimmta hvert (18%) aðildarfyrirtækja SA telja skort á ófaglærðu starfsfólki vera eitt af helstu vandamálum fyrirtækisins við núverandi aðstæður. Skortur á starfsfólki með starfs- og framhaldsmennun er eitt af helstu vandamálum 13% fyrirtækja og eitt af hverjum tíu fyrirtækjum nefna skort á háskólamenntuðu fólki. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA um vinnumarkaðinn og efnahagshorfur.

13.10.2011

Framkvćmdastjóri SA: Ryđjum hindrunum úr vegi

„Skortur á fjárfestingum, slakur hagvöxtur og viðvarandi atvinnuleysi eru stóru atriðin sem vantar í þá glæsimynd sem stjórnvöld draga upp af árangri sínum af samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þrátt fyrir að segjast í orði sem á borði vera sammála aðilum vinnumarkaðarins um nauðsyn fjárfestinga og hagvaxtar hafa hugmyndafræðileg vandamál og þörf fyrir blóraböggla staðið í vegi fyrir því að góð tækifæri hafi nýst og árangur lætur á sér standa." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, m.a. í leiðara fréttabréfs SA.


Vilhjálmur lítur yfir farinn veg í tilefni af því að þrjú ár eru liðin frá efnahagshruninu í október 2008. Hann segir árangur efnahagsáætlunarinnar með AGS fyrst og fremst hafa falist í auknum aga í efnahagsmálum en með óhóflegum skattahækkunum og niðurskurði hafi í stórum dráttum tekist að ná utan um hallarekstur ríkissjóðs. Hann segir að mistekist hafi að skapa stórum sem smáum fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum eðlilegt fjárfestingarumhverfi. Skapa þurfi aðstæður sem fyrst til að þau geti sótt fram, ráðið fólk í vinnu og skapað verðmæti.

10.10.2011

4-5% hagvöxtur nauđsynlegur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að fjögurra til fimm prósenta hagvöxtur sé nauðsynlegur ef Ísland eigi að ná fyrri styrk á árunum 2015 til 2016. Allt undir því sé stöðnun eða of hægur bati og því ekki boðlegt. Vilhjálmur var frummælandi á hádegisfundi Félags frjálslyndra jafnaðarmanna í liðinni viku þar sem hann lét ofantalin orð falla en fjallað var um fundinn í Fréttablaðinu.

6.10.2011

Veikleikar í fjárlagafrumvarpinu 2012

Ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til fjárlaga 2012. Heildartekjur ríkissjóðs á næsta ári eru áætlaðar 521,5 ma.kr., þar af skatttekjur 466,8 ma.kr. Heildargjöld eru áætluð 539,2 ma.kr., þar af eru vaxtagjöld ríkissjóðs 78,4 ma.kr.

 

Halli á ríkissjóði er því áætlaður 17,7 ma.kr., eða 1,0% af vergri landsframleiðslu (VLF). Frumjöfnuður (þ.e. án tillits til vaxtagjalda og vaxtatekna) er áætlaður verða jákvæður um 39,6 ma.kr., eða 2,2% af VLF. Markmiði um afgang á heildarjöfnuði er seinkað um eitt ár, til ársins 2014, auk þess sem hann verður minni en stefnt var að áður eða sem nemur 0,9% af VLF.

3.10.2011

Kreppa út áratuginn án aukinna fjárfestinga í atvinnulífinu

Íslendingar verða í kreppu út áratuginn ef ekki tekst að örva fjárfestingu í íslensku efnahagslífi. Þetta kom fram á þættinum Sprengisandi á Bylgjunni en rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, um stöðu og horfur í atvinnulífinu. Hann segir að hagvöxtur sé allt of lítill enn sem komið er og án uppsveiflu í efnahagslífinu verði það fastir liðir á hverju ári að hækka skatta og skera niður útgjöld til velferðarmála. Vilhjálmur benti á að fyrst eftir bankahrunið hefði verið sett það markmið að hagvöxtur færi upp í 4-5% á ári. En samkvæmt spá Seðlabankans væri einungis gert ráð fyrir 1,6% hagvexti á næsta ári. Hann segir að stjórnvöld verði að standa sig miklu betur í að skapa atvinnulífinu hagfelld rekstrarskilyrði og standa við gefin fyrirheit svo hjól atvinnulífsins geti farið að snúast af krafti á ný.

1.10.2011

46.000.000.000 krónur

„Íslendingar geta bætt þjóðarhag um 46 milljarða króna á ári með því að útrýma atvinnuleysinu auk hinna almennu jákvæðu áhrifa á samfélagið sem slíkur árangur mundi hafa í för með sér. Lausnin á efnahagsvanda Íslendinga blasir þannig við." Þetta segir Grímur Sæmundsen, varaformaður SA og forstjóri Bláa Lónsins í grein í Morgunblaðinu í dag.

30.9.2011

Fjölga ţarf störfum á íslenskum vinnumarkađi

Haustið 2008 voru um 185 þúsund manns með vinnu á íslenskum vinnumarkaði en eftir hrunið fór talan niður í um 165 þúsund. Síðan hefur fjöldi starfa verið að sveiflast milli 165 - 170 þúsund eftir árstíðum. Starfandi fólki hefur því ekki fjölgað svo heitið getur á þessum tíma. „Þetta er mjög alvarlegt en atvinnuleysistölurnar hafa verið að lækka vegna þess að fólk er að fara úr landi," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA en rætt var við hann í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þriðjudaginn 27. september.

29.9.2011

Formađur SA: Atvinnupólitík Samtaka atvinnulífsins

„Í Fréttablaðinu í gær sakar Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, mig um að hafa farið með ósannindi á fundi SA um atvinnumál í Hörpu á mánudaginn. Ekki vil ég sitja undir því en á fundinum lýsti ég hvernig ríkisstjórnin hefur ítrekað hvorki getað né viljað standa við eigin yfirlýsingar m.a. um málefni iðnaðarráðherra.

28.9.2011

Athugasemd vegna ummćla forsćtisráđherra

Á opnum fundi SA í Hörpu um atvinnumál á mánudaginn lýsti Vilmundur Jósefsson, formaður samtakanna, því hvernig reynsla SA af samstarfi við ríkisstjórnina hefur leitt til þess að nú er svo komið að hvorki væri hægt að taka mark á orðum ríkisstjórnarinnar né skriflegum yfirlýsingum, en allt frá því ríkisstjórnin var mynduð hafi Samtök atvinnulífsins reynt að fá hana til samstarfs um aðgerðir til að draga úr atvinnuleysi, fjölga störfum og efla hagvöxt til að bæta lífskjörin í landinu.

26.9.2011

Formađur SA: Samtök atvinnulífsins munu ekki hafa frumkvćđi ađ frekari samskiptum viđ ríkisstjórnina

Samtök atvinnulífsins efndu í dag til opins umræðufundar um atvinnumál undir yfirskriftinni „Ryðjum hindrunum úr vegi - atvinnulíf í uppnámi." Þar fóru fulltrúar stærstu atvinnugreina landsins yfir hvað megi betur fara í atvinnulífinu og hvaða sóknarfæri eru til staðar.

 

Vilmundur Jósefsson, formaður SA setti fundinn og vék að samskiptum við aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórn Íslands. Hann sagði samskipti við verkalýðshreyfinguna hafa gengið vel en nú væri svo komið að hvorki væri hægt að taka mark á orðum ríkisstjórnarinnar né skriflegum yfirlýsingum en allt frá því ríkisstjórnin hafi verið mynduð hafi Samtök atvinnulífsins reynt að fá hana til samstarfs um aðgerðir til að draga úr atvinnuleysi, fjölga störfum og efla hagvöxt til að bæta lífskjörin í landinu.

8.9.2011

Loforđakvóti ríkisstjórnarinnar búinn

Ríkisstjórnin sýnir hvorki forystu né vilja til að skapa samstöðu og koma landinu út úr kreppunni. Hún er að láta tækifærin til að koma atvinnulífinu á alvöru skrið og vera komin upp úr kreppunni árið 2015 renna sér úr greipum. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sem fjallar í leiðara nýs fréttabréfs SA um stöðu atvinnulífsins, forsendur kjarasamninga og nauðsynlegan viðsnúning í efnahagslífinu. Hann segir stórhættu á að núverandi kreppuástand vari út núverandi áratug.

 

 „Að sjálfsögðu gagnrýna forystumenn ríkisstjórnarinnar alla þá sem þeim virðast ekki sjá ljósið en skilja ekki að þeim, sem vanist hafa myrkrinu, verður minnsta skíma að skínandi leiftri." Vilhjálmur segir loforðakvóta ríkisstjórnarinnar búinn en hún hafi enn svigrúm til að skapa skilyrði fyrir nauðsynlegar fjárfestingar, aukna atvinnu og bætt lífskjör.

5.9.2011

Forsćtisráđuneytiđ klórar í bakkann

Síðastliðinn föstudag vöktu Samtök atvinnulífsins athygli á rangri hugtakanotkun og röngum niðurstöðum í ræðu forsætisráðherra á Alþingi  þann dag. Þessum athugasemdum SA vísaði forsætisráðuneytið á bug í fréttatilkynningu daginn eftir með tilvísun í gagnasafn Hagstofu Íslands. Svar forsætisráðuneytisins breytir engu um að í ræðunni sagði ranglega „að hlutur launa í landsframleiðslunni  hefði aldrei verið lægri en nú eða um 59% samanborið við yfir 72% árið 2007".

2.9.2011

Forsćtisráđherra fer rangt međ

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í ræðu á Alþingi í dag að hlutur launa í landsframleiðslu hafi aldrei verið lægri en nú eða um 59% samanborið við yfir 72% árið 2007. „Lækkunin svarar til 13%  af landsframleiðslu sem farið hafa frá launþegum til fyrirtækja, í krónum talið um 200 milljarðar króna," sagði Jóhanna.

 

Þetta er ekki rétt. Umrædd hlutföll, 59% og 72%, eru af hugtakinu vergum þáttatekjum, ekki landsframleiðslu. Vergar þáttatekjur eru mun lægri fjárhæð en verg landsframleiðsla. Árið 2010 er landsframleiðslan áætluð 1.539,5 milljarðar króna en þáttatekjurnar 1.338,3 milljarðar króna. Mismunurinn á þessum tveimur hugtökum felst aðallega í óbeinum sköttum.

24.8.2011

Sjávarútvegsfrumvarp stenst ekki stjórnarskrá og leiđir til fjöldagjaldţrota

Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Samtök fiskvinnslustöðva (SF) hafa sent sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis umsögn um sjávarútvegsfrumvarp ríkisstjórnarinnar sem er til umfjöllunar hjá Alþingi.

 

Í umsögninni er bent á að verði frumvarpið að lögum muni sjávarútvegsfyrirtækin gjaldfæra samstundis allar eignfærðar aflaheimildir. Þetta mun lækka eigið fé greinarinnar um 180 milljarða króna og leiða til fjöldagjaldþrota í greininni. Einnig hefur frumvarpið þau áhrif að lækka mögulegar skatttekjur ríkissjóðs um marga milljarða króna.

17.8.2011

Vaxtahćkkun verđi dregin til baka

Samtök atvinnulífsins mótmæla harðlega 0,25% vaxtahækkun Seðlabankans og hvetja bankann til þess að draga hana til baka við næstu vaxtaákvörðun. Vaxtahækkunin gengur þvert á viðleitni til þess að auka fjárfestingar og hagvöxt í landinu og gerir það erfiðara að ná niður atvinnuleysi og bæta lífskjör almennings.

17.8.2011

Hćkkun stýrivaxta Seđlabankans óhugguleg

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir í samtali við Vísi að vaxtahækkun Seðlabankans í morgun sé óhugguleg. Það sé eins og þeir sem ákváðu hækkunina séu að fást við efnahagsmál í einhverju allt öðru landi en Íslandi. Pengingastefnunefnd bankans ákvað að hækka stýrivexti í 4,5%.

16.8.2011

Bréf SA til forsćtis- og fjármálaráđherra: Aukin skattheimta felur í sér uppgjöf

Samtök atvinnulífsins mótmæla áformum um skattahækkanir á stóriðju, sjávarútveg og banka vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2012. Samtök atvinnulífsins telja áformin afar misráðin og benda á að allt kapp verði að leggja á að auka fjárfestingar og hagvöxt eins og stefnt var að við gerð kjarasamninga og fram kemur í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí sl.

 

Þetta kemur fram í upphafi bréfs Samtaka atvinnulífsins til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra en lesa má bréfið í heild á vef SA.

9.8.2011

Tími skattahćkkana er liđinn

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir tíma skattahækkana í landinu liðinn og SA muni berjast gegn frekari skattahækkunum. Þetta kemur fram á mbl.is en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fullyrti að rætt hafi verið innan ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á matvæli til að vinna á hallanum á rekstri ríkissjóðs.

8.8.2011

Án hagvaxtar verđur atvinnuleysiđ áfram mikiđ

Fjallað er um vaxandi svartsýni á horfur í efnahagsmálum árið 2012 í helgarútgáfu Morgunblaðsins. Þar kemur fram að tafir á framkvæmdum hafi sett markmið um aukinn hagvöxt í uppnám og útlit sé fyrir mikið atvinnuleysi áfram ef ekki verði brugðist snarlega við. Markmið um 4-5% hagvöxt þykja nú fjarlægari en við gerð kjarasamninganna.

14.7.2011

Nýjasta tćkni og vísindi nauđsynleg atvinnulífinu

Í nýrri viðhorfskönnun meðal aðildarfélaga BUSINESSEUROPE, samtaka atvinnulífsins í Evrópu, kemur fram með mjög skýrum hætti að skortur á vísinda- og tæknimenntuðu starfsfólki gæti orðið einn helsti dragbítur á hagvöxt í álfunni á komandi árum. Við fyrstu sýn mætti ætla að nokkur framför hefði orðið á þessu sviði þar sem fjöldi háskólanema á vísinda- og tæknibrautum hefur aukist nokkuð í heild. En í raun hefur hlutfall þeirra þó farið lækkandi. Á Íslandi vantar atvinnulífið sárlega iðn- og tæknimenntað fólk og útskrifa þarf mun fleiri úr framhaldsskólum sem geta lagt atvinnulífinu lið á fjölmörgum sviðum.

11.7.2011

Ţörf á varanlegum hagvexti

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið þörf á gífurlegu átaki í fjárfestingu hér á landi. Á síðasta ári var hlutfall hennar 13% af landsframleiðslu og hefur aldrei verið lægra. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við undirritun kjarasamninga, hinn 5. maí síðastliðinn, segir að stefnt skuli að því að hlutfallið verði komið upp í fimmtung landsframleiðslu í lok samningstímans. Hannes segir engin merki þessa sjást í nýrri Þjóðhagspá Hagstofunnar.

9.7.2011

Formađur SA: Ađ breyta dođa í dug

Undanfarin þrjú ár hefur fjárfesting á Íslandi dregist verulega saman og náði hún sögulegu lágmarki á síðasta ári. Undanfarna tvo áratugi hefur þetta hlutfall numið 20% af landsframleiðslu en var tæplega 13% árið 2010. Ekki eru horfur á því að þetta hlutfall hækki markvert á þessu ári.

7.7.2011

Ađhald Seđlabankans ađ hverju?

Áform í peningastefnunefnd Seðlabankans um hækkun vaxta valda áhyggjum. Þau áform geta ekki valdið heimilum og fyrirtækjum öðru en skaða. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA. Hann segir vissulega tilefni til að hafa áhyggjur af verðlagsþróun undanfarið en verðbólgan muni hjaðna á ný. Bent hefur verið á að verðbólgan er að mestu leyti innflutt og að hækkun vaxta við núverandi aðstæður muni magna skuldakreppu Íslendinga og fjölga gjaldþrotum.

 

Hannes segir vexti Seðlabankans bíta nú sem aldrei fyrr. Í ljósi þess mikla slaka sem er í efnahagslífinu og birtist í stöðnun einkaneyslu, fjárfestingum í sögulegu lágmarki, samdrætti opinberra umsvifa, fjöldaatvinnuleysi og fjöldagjaldþrotum séu margir forviða yfir áformum í Seðlabankanum um aukið aðhald með hækkun stýrivaxta.

1.6.2011

Á skjön viđ gefin loforđ

„Það er ótrúlegt að reynt sé að keyra þessi mál í gegnum þingið með offorsi, áður en skýrsla hagfræðinga er lögð fram og áður en reynt er að ná sátt við hagsmunaaðila. Þetta er algerlega á skjön við gefin loforð," segir Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið um áhrif kvótafrumvarpa ríkisstjórnarinnar á framlengingu kjarasamninga. Aðilar vinnumarkaðarins munu meta fyrir 22. júní hvort nauðsynlegar forsendur séu til staðar þannig að nýir kjarasamningar sem skrifað var undir 5. maí sl. gildi til þriggja ára. Margir fyrirvarar eru í samningunum en mögulega gilda þeir aðeins til loka janúar 2012.

20.5.2011

Frumvörp sjávarútvegsráđherra ávísun á áralangar deilur og skađa fyrir ţjóđfélagiđ

Frumvarpsdrög sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða ganga þvert á ítrekaðar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að skapa sjávarútveginum góð rekstrarskilyrði til langs tíma. Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin til samráðs og samvinnu við ráðherra þannig að unnt verði að ná sátt um rekstrargrunn þessarar mikilvægu atvinnugreinar.

 

Ljóst er að frumvarpsdrögin geta ekki orðið grundvöllur að sátt. Þau munu kalla fram áframhaldandi deilur og átök á komandi árum og verða tilefni stöðugra breytinga á fiskveiðistjórninni. Þessi átök geta ekki leitt til neins annars en þess að afkoma sjávarútvegsins verður verri en ella og um leið rýra þau hag fyrirtækjanna, fólksins sem hjá þeim starfar, þjónustuaðila, sveitarfélaga og um leið þjóðarinnar allrar.

19.5.2011

Íslendingar fari atvinnuleiđina út úr kreppunni

Hagsmunir allra Íslendinga eru miklir af því að fara atvinnuleiðina út úr kreppunni en margt þarf að ganga upp til þess að það gerist. Kjarasamningarnir sem slíkir með fyrirsjáanleika á vinnumarkaði fram á árið 2014 eru mikilvægt framlag til atvinnuleiðarinnar og vegferðarinnar út úr kreppunni. Kjarasamningarnir setja vissulega byrðar á atvinnulífið en atvinnuleiðin er fær og í raun eina skynsamlega leiðin fyrir land og þjóð. Því hljóta allir sem ábyrgð hafa að þurfa að leggja sig fram um að tryggja að atvinnuleiðin verði farin. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna sem kemur út í dag.

17.5.2011

Ríkisstjórnin standi viđ gefin fyrirheit í sjávarútvegsmálum

Nýtt kvótafrumvarp stjórnarflokkanna veikir rekstrarskilyrði sjávarútvegsins og er því ekki í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands sem gefin var út í tengslum við undirskrift kjarasamninga á almennum vinnumarkaði til næstu þriggja ára. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við fréttastofu RÚV. „Mér sýnist að í engu atriði sé verið að bæta rekstrarskilyrði sjávarútvegsins en í flestum atriðum verið að veikja þessi rekstrarskilyrði." Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí segir að sjávarútveginum verði tryggð góð rekstrarskilyrði.

16.5.2011

Endurskipulagning skulda fyrirtćkja hefur gengiđ of hćgt

Fjallað var um skuldamál fyrirtækja í fréttum Bylgjunnar um helgina og árangur af Beinu brautinni sem er átaksverkefni um endurskipulagningu skulda lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Aðspurður sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, endurskipulagningu skulda fyrirtækjanna hafa gengið of hægt m.v. upphaflegar væntingar og að staða fyrirtækjanna væri betri ef stjórnvöld hefðu greitt fyrir fjárfestingum í atvinnulífinu með tilheyrandi auknum umsvifum. SA eru meðal aðila sem koma að Beinu brautinni.

6.5.2011

Formađur SA: Hlutverk ríkisstjórnarinnar ađ koma hagkerfinu af stađ

Vilmundur Jósefsson, formaður SA, segir ánægjulegt að tekist hafi að tryggja nauðsynlegan frið á vinnumarkaðnum með undirritun nýrra kjarasamninga. Undanfarna mánuði hafi aðilar vinnumarkaðarins unnið að gerð þriggja ára kjarasamninga sem byggi á svokallaðri atvinnuleið, þar sem áhersla er lögð á hagvöxt, öruggt og tryggt starfsumhverfi fyrir allar atvinnugreinar, aukningu kaupmáttar og minna atvinnuleysi. Það sé nú hlutverk ríkisstjórnarinnar að tryggja að hagkerfið komist af stað og atvinnuvegirnir geti eflst þannig að forsendur samninganna standist.

3.5.2011

Aftur sest ađ samningaborđinu

Stjórn Samtaka atvinnulífsins ákvað á fundi nú í hádeginu að láta enn á ný reyna á vilja ASÍ og landssambanda þess til að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings á svipuðum forsendum og áður. SA munu því hitta viðsemjendur sína á fundi í dag kl. 15 hjá ríkissáttasemjara til að freista þess að ljúka gerð nýs kjarasamnings á almennum vinnumarkaði. Framkvæmdastjórn SA lýsti því yfir sl. föstudag að samtökin telji mikilvægt að skapa fyrirtækjum landsins starfsöryggi og frið.

28.4.2011

Atvinnuleysiđ minnkar ef atvinnuleiđin verđur farin

Samtök atvinnulífsins spá því að atvinnuleysið verði komið niður í 4,5% árið 2013 ef atvinnuleiðin verður farin og gerðir kjarasamningar til þriggja ára en í dag eru um 15 þúsund manns án vinnu, atvinnuleysið mælist 8,6% skv. Vinnumálastofnun og langtímaatvinnuleysi er á hraðri uppleið. „Við erum á fullri ferð að reyna að bjarga atvinnuleiðinni og teljum það okkar skyldu að reyna algjörlega til þrautar hvort ekki er hægt að fara þá leið. Það er það besta og skynsamlegasta í stöðunni að snúa bökum saman og reyna að komast út úr kreppunni," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í Morgunblaðinu í dag.

28.4.2011

Reynt til ţrautar ađ gera kjarasamninga til ţriggja ára

Í samtali við fréttastofu RÚV segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, að þeir kjarasamningur sem liggi fyrir í drögum séu mjög dýrir fyrir atvinnulífið. Það sé á mörkunum að fyrirtækin geti staðið við svona miklar launahækkanir nema útlit sé fyrir aukin umsvif og vöxt í efnahagslífinu þannig að Ísland komist út úr kreppunni. Vilmundur segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að reynt verði til þrautar að gera kjarasamninga til þriggja ára áður en skammtímasamningar verði skoðaðir.

26.4.2011

Yfirlýsing framkvćmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins telja að besti kosturinn fyrir þjóðina sé að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni og að sátt skapist um að atvinnulífið verði  tekið úr handbremsu. Mikilvægur þáttur í atvinnuleiðinni er gerð kjarasamninga til þriggja ára sem SA vinna enn að því að gera. Samningaviðræðum hefur ekki verið slitið og hafa aðilar rætt saman þótt tímabundið hlé hafi verið gert á formlegum fundum fyrir páska.

26.4.2011

Samtök atvinnulífsins skipa sjálf eigin nefndir

„Atvinnurekendur hafa aldrei gert athugasemdir við hverjir skipi samninganefndir stéttarfélaga. Ég vænti því að fulltrúar launamanna séu ekki með slíka íhlutun í okkar mál," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið í dag. Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands krafðist þess í fréttum RÚV í gærkvöldi að fulltrúar LÍÚ vikju frá samningaborði aðila vinnumarkaðarins.

26.4.2011

Ekki forsendur fyrir eins árs kjarasamningi

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, útilokar að gengið verði að tilboði Starfsgreinasambandsins um kjarasamning til eins árs og hækkun lágmarkslauna í tvö hundruð þúsund krónur. Vilhjálmur segir að ekki sé hægt að taka tölur úr þriggja ára samningum sem rætt hefur verið um að gera og setja í samning til eins árs án þess að atvinnuleiðin verði farin. Til þess að geta réttlætt þessar launahækkanir verði að tryggja meiri fjárfestingar og hagvöxt en spár gera ráð fyrir.

20.4.2011

Atvinnuleiđin er besti kosturinn

Nú hafa aðilar vinnumarkaðarins verið að hugsa sinn gang varðandi atvinnuleiðina, þriggja ára kjarasamning sem byggir á auknum fjárfestingum til þess að koma Íslandi út úr kreppunni. Þegar horfið var frá verki sl. föstudagskvöld var ljóst að hvorki var unnt að ná samstöðu um atvinnuleiðina né samkomulagi til skamms tíma. Atvinnuleiðin strandar á ríkisstjórninni segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA sem kemur út í dag.

 

„Skammtímasamningur strandar á því að SA vilja að í honum felist að aðilar vinni áfram saman að atvinnuleiðinni meðan Alþýðusambandið vill að með honum sé ákveðið að hefja nýjar deilur og setja framhaldið á vinnumarkaðnum í enn meiri óvissu. Merkilegt er að hvorki í viðræðum um atvinnuleiðina né um skammtímasamkomulag strandaði svo teljandi væri á launatölum."

20.4.2011

Arđbćrar vegaframkvćmdir eru nauđsynlegar

Samtök atvinnulífsins hafa í tengslum við kjarasamninga lagt áherslu á að hefja sem fyrst átak um samgönguframkvæmdir. Til þess að það geti gengið eftir verður að móta sem fyrst nýja heildarstefnu um gjaldtöku á umferðina. Þar verður að horfa til þess að milda áhrif hækkunar á innkaupsverði eldsneytis og taka þess í stað upp innheimtu fyrir notkun tiltekinna mannvirkja.

19.4.2011

Best fyrir ţjóđina ađ fara atvinnuleiđina

Samtök atvinnulífsins telja það besta kost landsmanna að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni. Í atvinnuleiðinni felst að gerðir verði kjarasamningar til þriggja ára, fyrirtæki stór og smá hefji að fjárfesta á ný af krafti, störfum fjölgi, atvinnuleysi minnki og tekjur fólks, fyrirtækja og ríkisins aukist. SA telja löngu tímabært að bregðast við. 15 þúsund eru án vinnu, þriðja hvert heimili hefur orðið fyrir barðinu á atvinnuleysi frá hruni, langtímaatvinnuleysi hefur fjórfaldast milli ára og þúsundir hafa flúið land. Þetta þarf ekki að vera svona.

19.4.2011

Reyndir stjórnmálamenn leggi grunn ađ sátt um stjórn fiskveiđa

 „Ég held að svo reyndur stjórnmálamaður sem forsætisráðherra er hljóti að sjá að á endanum þarf að leysa þetta mál með sátt og samningum eins og önnur mál." Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær um deilur um breytingar á stjórn fiskveiða. SA hafa lagt fram tillögur að umfangsmiklum breytingum á fiskveiðikerfinu og óskað eftir viðræðum við ríkisstjórnina um farsæla langtímalausn sem þjóðin, stjórnmálamenn og atvinnugreinin geti sætt sig við. Vilhjálmur segir það sitt mat að lög um stjórnun fiskveiða henti illa til þjóðaratkvæðagreiðslu eins og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hafi ljáð máls á í vikunni. Vilhjálmur hvetur  utanríkisráðherra til að beita sér fyrir lausn deilunnar um framtíð sjávarútvegsins innan ríkisstjórnarinnar.

17.4.2011

Vonast til ađ kjaraviđrćđur hefjist á ný eftir páska

Formaður SA, Vilmundur Jósefsson, segist í samtali við fréttastofu RÚV, vonast til þess að kjaraviðræður á almennum vinnumarkaði hefjist á ný eftir páska en hlé varð á viðræðum á föstudaginn. Undir það tekur Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, en hann segist gera sér vonir um að aðilar vinnumarkaðarins geti sest niður aftur og gert aðra atlögu að því að ná kjarasamningi, helst samningi til þriggja ára. Hann segir stjórnvöld einnig verða að koma að samningaborðinu. Rætt var við Helga í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem fjallað var um stöðuna á vinnumarkaðnum og stjórnmálin.

16.4.2011

Yfirlýsing SA: Vilja stríđ ţegar friđur er í bođi

Á undanförnum mánuðum hafa Samtök atvinnulífsins barist fyrir því að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni sem felst í því að auka fjárfestingar, skapa störf, minnka atvinnuleysi og auka tekjur. Samhliða þessu yrðu gerðir kjarasamningar til þriggja ára til þess að tryggja vinnufrið, kaupmátt og eyða óvissu.

14.4.2011

Kjarasamningar í höndum ríkisstjórnarinnar

Ríkisstjórnin hefur það í höndum sér hvort gerðir verða kjarasamningar til lengri eða skemmri tíma. Þetta segja forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins sem funda með fulltrúum ríkisstjórnarinnar fyrir hádegi. Í umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að nokkuð hafi gengið í viðræðum en klára þurfi ýmis mál. Gangur komst í kjaraviðræðurnar á ný í gærmorgun eftir útspil frá ríkisstjórninni og verður farið í þær af fullum krafti í dag. Vonast er til að samningar liggi fyrir á föstudag.

13.4.2011

Kemur ríkisstjórnin Íslandi í gang?

Það besta sem gæti komið fyrir Ísland væri að gerðir yrðu kjarasamningar til þriggja ára og ríkisstjórnin tæki alvöru ákvarðanir um að setja Ísland í gang. Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu RÚV í gærkvöld. Ljóst er að senn dregur til tíðinda í yfirstandandi kjaraviðræðum en samninganefndir SA og ASÍ hittast hjá ríkissáttasemjara  í dag. Þar mun ráðast hvort hægt verði að gera kjarasamninga til þriggja ára en bæði SA og ASÍ hafa hafa lýst því yfir að aðkoma ríkisins að slíkum samningum sé nauðsynleg.

12.4.2011

Atvinnuleiđin út úr kreppunni er enn fćr

Aðilar vinnumarkaðarins funduðu um kjaramálin í gær en í dag eiga þeir fund með ríkisstjórninni. Þar verður farið yfir stöðu mála. Í samtali við Morgunblaðið segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, að hann fari með það veganesti inn á fundinn í dag að Íslendingar eigi ekki að sitja og bíða örlaga sinna vegna Icesave. Margt sé enn hægt að gera til að fara atvinnuleiðina út úr kreppunni.

8.4.2011

Sjávarútvegsfyrirtćki nýti fiskveiđiheimildir til veiđa

Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, segir í samtali við Fréttablaðið að SA vilji heimila kvótaframsal innan fiskveiðiárs en skattleggja „nettóframsal" hressilega. Sjávarútvegsfyrirtækin eigi að nýta fiskveiðiheimildir sínar til veiða. SA kynntu í vikunni tilllögur að útfærslu samningaleiðar í sjávarútvegi sem felur í sér grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða frá því sem nú er. SA telja með þeim sé komið verulega til móts við sjónarmið stjórnarflokkana í þessum efnum og í raun sé nú einstakt tækifæri til að ná nauðsynlegri sátt um málefni sjávarútvegsins.

5.4.2011

Sáttatillaga SA í sjávarútvegsmálum felur í sér viđamiklar breytingar

Samtök atvinnulífsins hafa  kynnt ríkisstjórninni og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tillögu til sátta um efnislega útfærslu samningaleiðar í sjávarútvegi. Tillagan felur í sér grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða frá því sem nú er og komið er verulega til móts við sjónarmið stjórnarflokkana í þessum efnum. SA telja að nú sé  einstakt tækifæri til að ná nauðsynlegri sátt um málefni sjávarútvegsins. Samtök atvinnulífsins hafa fulla trú á að ríkisstjórnin muni taka í útrétta sáttahönd atvinnulífsins í þessum efnum.

4.4.2011

Berjast fyrir ţví ađ atvinnuleiđin verđi farin

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segist spyrja sig hvort menn séu tilbúnir til að gera það sem gera þarf svo hægt sé að fara þá atvinnuleið sem Samtök atvinnulífsins hvetja til að farin verði.  „Við höfum miklar áhyggjur af því hvernig mál eru að þróast hér á landi. Við erum að berjast fyrir því að fjárfestingar komist í gang og hægt verði að auka atvinnu. Við erum ekkert að gefast upp við það verkefni því við teljum að það sé sú leið sem eigi að fara," sagði Vilhjálmur í samtali við mbl.is.

1.4.2011

Viđrćđur halda áfram í dag

Aðilar vinnumarkaðarins munu hittast í dag til að meta stöðuna í kjaraviðræðunum, en ríkisstjórnin kynnti í gær drög að yfirlýsingu í tengslum við viðræðurnar til að liðka fyrir gerð kjarasamninga til þriggja ára. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, segir drögin ágætis byrjun og undir það tekur Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri samtakanna, sem segir drögin mikilvægan fyrsta áfanga. SA hafa bent á að skýra þurfi m.a. umfjöllun um stórar fjárfestingar og að ná sanngjarnri sátt um málefni sjávarútvegsins. Ekki sé hægt að skilja þá grein eftir þegar rætt er um almenna stefnumörkun og sókn í atvinnumálum. Þá sé ríkisstjórnin að leggja af stað í ferðalag með þrjú hjól undir bílnum.

29.3.2011

Ţolinmćđi ađila vinnumarkađarins á ţrotum - fundur međ ríkisstjórn á morgun

Kjaraviðræður á almennum vinnumarkaði eru nú í biðstöðu. Samtök atvinnulífsins greindu ríkisstjórn Íslands frá því í gærkvöld að ekki yrði hafin lokaatlaga að því að ljúka kjarasamningum í vikunni eins og til stóð þar sem svo mörg stór mál standi út af í viðræðum við ríkisstjórnina að slíkt væri ekki mögulegt. Þolinmæði aðila vinnumarkaðarins er nú á þrotum og kalla bæði SA og ASÍ eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar. SA og ASÍ funda með ríkisstjórninni á morgun til að meta næstu skref.

29.3.2011

Umhverfisráđherra fer rangt međ

Umhverfisráðherra hefur á Alþingi og víðar kvartað yfir því að Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins sýni ekki nægan metnað í umhverfismálum fyrir hönd fyrirtækja landsins. Þessi staðhæfing ráðherra er röng. Samtökin hafa lagt áherslu á að hér gildi sambærilegar reglur og rekstrarskilyrði og hjá öðrum Evrópuþjóðum og hafa hvatt fyrirtækin til að sýna fulla ábyrgð í umhverfismálum.

28.3.2011

Metnađarlítil áćtlun um afnám gjaldeyrishafta

„Þessi metnaðarlitla áætlun slær mig illa. Gjaldeyrishöftin eru skaðleg nútímafyrirtækjum og svo lengi sem þau gilda eru starfsskilyrði atvinnulífsins lík því sem var fyrir fjöldamörgum árum," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Morgunblaðið. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði á föstudag að stefnt væri að því að afnema gjaldeyrishöft árið 2015. Ráðherrann mun leggja fram tillögu á Alþingi í næstu viku til þess að fá heimild til að fá að framlengja höftin til 2015.

11.3.2011

Vonin ein dugir ekki

Landsframleiðsla síðustu tvö árin hefur dregist saman um  tæp 11%. Einkaneysla hefur dregist verulega saman, fjárfestingar hafa hrunið, samneyslan minnkað lítillega og því miður eru horfurnar ekki vænlegar fyrir þetta ár. Sérstaklega er eftirtektarvert að verðmæti vöruútflutnings dróst saman á síðasta ári um 2% og er nánast óbreytt frá árinu 2008 og það þrátt fyrir að raungengi krónunnar sé nú lægra en verið hefur um áratuga skeið. Atvinnulausir í lok febrúar voru 14.873 talsins og í nýlegri könnun SA kom fram að atvinnuleysi hefur hrjáð þriðjung heimila í landinu frá bankahruninu. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA.

10.3.2011

Engin framtíđ međ gjaldeyrishöft og lokađan fjármagnsmarkađ

„Við sjáum enga framtíð fyrir nútímaatvinnulíf hér með gjaldeyrishöft og lokaðan fjármagnsmarkað. Það er eitt af lykilatriðum til að efla trú á landinu og efla fjárfestingar að höftin hverfi og að íslenskur fjármagnsmarkaður tengist útlöndum á eðlilegan hátt." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í Fréttablaðinu í dag, sem greinir frá því á forsíðu að íslenskum fyrirtækjum standi ekki erlend lánsfjármögnun til boða á hagstæðum kjörum nema í gegnum erlend dótturfélög og veðum í erlendri starfsemi.

10.3.2011

Viđrćđur viđ stjórnvöld ganga afar hćgt

Líkur hafa minnkað á að takist að ljúka kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins og ASÍ um miðjan mars eins og stefnt hefur verið að. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segist í samtali við mbl.is ekki bjartsýnn á að niðurstaða fáist í næstu viku eins og staðan er. Viðræður standa nú yfir og eru viðsemjendur lítillega byrjaðir að ræða launalið væntanlegra samninga. Vilhjálmur segir að viðræðurnar að undaförnu við ASÍ og sérsamböndin um sérmál og sameiginleg mál hafi gengið ágætlega en viðræður við stjórnvöld gangi afar hægt fyrir sig.

1.3.2011

Öflugt atvinnulíf forsenda aukins kaupmáttar

Þróun launa og kaupmáttar byggist vexti og viðgangi atvinnulífsins.Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. á Íslenska þekkingardeginum sem fram fór í síðustu viku en Félag viðskipta- og hagfræðinga stóð að deginum í samstarfi við Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins. Leitað var svara um áhrif mögulegrar aðildar Evrópusambandsins á vinnumarkaðinn og atvinnulíf á Íslandi. Vilhjálmur birti m.a. yfirlit yfir þróun hagvaxtar og kaupmáttar á Íslandi og í nágrannalöndunum en mesta kaupmáttaraukningin á Íslandi frá 1990 varð á árunum 1996-2000 að undangengnum miklum kerfisbreytingum.

28.2.2011

Viđrćđur um launaliđ hefjast í vikunni - stjórnvöld komi ađ málum

Samninganefndir SA og ASÍ funduðu fyrir hádegið hjá Ríkissáttasemjara um stöðu kjaraviðræðna en þær halda áfram af fullum krafti í vikunni. Undanfarið hefur verið rætt við sérsambönd ASÍ um ýmis sérmál en viðræður um sameiginleg mál SA og ASÍ eru einnig hafnar, s.s. lífeyrismál og menntamál.  Áætlað er að á fimmtudag hefjist viðræður um launalið komandi kjarasamninga en enn er stefnt að því að gerðir verði samningar til þriggja ára sem taki gildi í júní. Vonast er til að niðurstaða liggi fyrir um miðjan mars.

25.2.2011

Kjaraviđrćđum ljúki um miđjan mars

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is að viðræður um gerð nýs kjarasamnings gangi vel. Hann vonast eftir að niðurstaða liggi fyrir um miðjan mars. Í febrúar náðist samkomulag á milli Samtaka atvinnulífsins og landssambanda ASÍ um að hefja vinnu við gerð langtímasamnings til þriggja ára sem hefði það að markmiði að auka kaupmátt og viðhalda stöðugleika í hagkerfinu. Sú vinna er nú í fullum gangi en samninganefndir SA og ASÍ munu hittast á mánudaginn til að meta stöðuna.

25.2.2011

Orkustefna fyrir Ísland byggđ á veikum grunni

Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins hafa skilað til iðnaðarráðuneytisins umsögn um drög að orkustefnu fyrir Ísland. Fram kemur að samtökin telja drögunum verulega áfátt. Greiningar skorti, umfjöllun sé ómarkviss, engin tilraun gerð til að meta árangur þeirrar stefnu sem fylgt hefur verið og ályktanir byggðar á veikum grunni.

21.2.2011

Samrćmd launastefna nauđsynleg

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, vísar því á bug í samtali við fréttastofu RÚV að hagsmunum starfsmanna í útflutningsgreinum sé fórnað með samræmdri launastefnu. Ef starfsmenn útflutningsgreina eigi nú að njóta góðs af gengisfalli krónunnar hefði allt eins átt að berjast fyrir því að laun starfsmanna þeirra lækkuðu þegar staðan var erfiðari.

18.2.2011

Allt of langan tíma tekur ađ fá svör um skipulags- og byggingarmál

Athugun SA á úrskurðum úrskurðarnefndar um skipulags- og byggingarmál sem kveðnir voru upp á árinu 2010 gefur til kynna að það taki að jafnaði meira en 15 mánuði að fá úrskurð nefndarinnar. Samkvæmt reglugerð á nefndin að kveða upp úrskurð innan tveggja mánaða nema málið sé umfangsmikið en þá skal kveða upp úrskurð innan þriggja mánaða. Ljóst er að sigið hefur á ógæfuhliðina í þessum efnum en í athugun umboðsmanns Alþingis árið 2004 kom fram að meðalafgreiðslutími úrskurðarnefndar um skipulags- og byggingarmál var þá tæpir 8 mánuðir þrátt fyrir fyrrgreind tímamörk.

14.2.2011

Kjaraviđrćđur halda áfram í dag

Samtök atvinnulífsins og ASÍ hafa orðið ásátt um að hefja á nýjan leik viðræður um nýjan kjarasamning til þriggja ára sem taka myndi gildi í júní 2011. Aðilar vinnumarkaðarins munu funda í dag hjá ríkissáttasemjara en stefnt er að því að viðræðum verði lokið á næstu vikum og á þeim tíma verði  unnið að  samkomulagi um laun og aðra þætti samningsins. Á sama tíma verður rætt við ríkisstjórn og Alþingi um starfsskilyrði atvinnulífsins og áherslumál verkalýðshreyfingarinnar. SA vilja fara atvinnuleiðina út úr kreppunni og eru þriggja ára kjarasamningar einn lykilþáttur í þeirri leið.

11.2.2011

Hćstiréttur dćmir umhverfisráđherra

Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað bent á það á vef SA að neitun umhverfisráðherra á að staðfesta skipulag hreppana við Þjórsá væri bæði ómálefnaleg, andstæð lögum og einungis til þess fallin að tefja fyrir mikilvægri uppbyggingu og fjárfestingum hér á landi. Með framferði sínu væri hún einungis að þóknast þröngum pólitískum hagsmunum Vinstri grænna.

10.2.2011

Atvinnuleiđin er fćr

Það veldur erfiðleikum í yfirstandandi kjaraviðræðum að einstök verkalýðsfélög krefjast þess að sérstök stefna um launahækkanir verði mótuð fyrir útflutningsgreinar vegna lágs gengis krónunnar og önnur stefna fyrir aðrar atvinnugreinar. Að mati SA er þetta óframkvæmanlegt þar sem umsamdar hækkanir í útflutningsgreinum myndu óhjákvæmilega flæða yfir aðrar greinar. Þegar gengi krónunnar hefur verið sterkt, eins og raunin var áratuginn fyrir efnahagshrunið 2008 lutu útflutningsgreinarnar hinni almennu launastefnu sem mótuð var í kjarasamningum á hverjum tíma og engum datt annað í hug. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna.

10.2.2011

Mikil tćkifćri í vetrarferđamennsku

Hægt væri að skapa 1.000 störf og auka gjaldeyristekjur um 10-15 milljarða með sérstöku markaðsátaki til að fjölga ferðamönnum til Íslands yfir vetrartímann. Með því að ráðast í  sambærilegt markaðsátak og Inspired by Iceland væri hægt að fjölga ferðamönnum um 50.000 strax næsta vetur. Þetta kom m.a. fram í máli Birkis Hólm Guðnasonar, framkvæmdastjóra Icelandair, á fundi SA um atvinnuleiðina - sýn SA á leiðina út úr kreppunni. Birkir segir að að fjölgun vetrarferðamanna sé ódýrasta og fljótvirkasta leiðin til atvinnusköpunar en markaðssetning Íslands sem ferðamannalands yfir vetrartímann er einn af lykilþáttunum í atvinnuleið SA.

9.2.2011

Óviđunandi ađ 14.000 séu án vinnu

Samtök atvinnulífsins kynntu í morgun atvinnuleiðina, sýn SA á leiðina út úr kreppunni á opnum fundi á Grand Hótel Reykjavík. Yfir 200 manns úr íslensku atvinnulífi mættu til fundarins. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sagði tímabært að hefja nýja atvinnusókn og kveða atvinnuleysið niður sem hafi verið mikið frá hruni. Vilhjálmur sagði jafnfamt áhyggjuefni að svo virðist eins og atvinnuleysið sé að gleymast og landsmenn að dofna fyrir þeirri staðreynd að 14.000 manns eru án vinnu. Þessu verði að breyta hið fyrsta og því vilji SA fara atvinnuleiðina, skapa ný stöf og bæta hag fólks með aukinni vinnu og tekjum.

9.2.2011

Formađur SA: Vinna skapar velferđ

„Það vekur óneitanlega undrun að í nýlegri stefnumörkun ríkisstjórnarinnar eru engin markmið um hagvöxt til lengri tíma, engin stefna mörkuð um hvernig skuli hvetja til fjárfestinga og lítið fjallað um atvinnuleysið. Það er nánast látið að því liggja að ástandið sé nú harla gott og enginn ástæða til sérstakra viðbragða. Það getur aldrei orðið ásættanlegt að 14 þúsund manns séu atvinnulausir og að Íslendingar flytjist þúsundum saman úr landi." Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. á fundi SA um atvinnumál sem nú stendur yfir á Grand Hótel Reykjavík.

6.2.2011

Lođnubrestur af mannavöldum yfirvofandi

Komi til verkfalls starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum verða landsmenn að kljást við alvarlegar afleiðingar loðnubrests af mannavöldum. Þjóðfélagið mun verða af miklum verðmætum, fyrirtæki verða fyrir umtalsverðu tjóni og starfsmenn þeirra tapa launagreiðslum. Þetta var meðal þess sem kom fram á opnum fundi SA um atvinnumálin í Vestmannaeyjum á föstudaginn þar sem Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdasjóri SA kynntu atvinnuleiðina - sýn Samtaka atvinnulífsins á leiðina út úr kreppunni.

3.2.2011

Alţingi ljúki Icesave-málinu sem fyrst

Samtök atvinnulífsins fagna því  að breiður meirihluti hefur myndast á Alþingi um samþykkt Icesave-samkomulagsins frá því í desember síðastliðnum. Samtök atvinnulífsins telja hagsmunum atvinnulífsins og alls samfélagsins best borgið með því að ljúka málinu á þeim forsendum sem nú liggja fyrir. Samtökin hvetja Alþingi til þess að ljúka málinu sem fyrst því að fjölmörg önnur mikilvæg og brýn viðfangsefni bíða úrlausnar.

2.2.2011

Yfirlýsing frá Samtökum atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins vilja koma eftirfarandi á framfæri og leiðrétta misskilning, sem fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga. Samtök atvinnulífsins eru fylgjandi þeirri sáttastefnu, sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir markaði og hrinti í framkvæmd með stofnun og starfi endurskoðunarnefndar um stjórn fiskveiða.

1.2.2011

ATVINNULEIĐIN: Samhljóđa ályktun stjórnar SA

Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur eindregið til samstöðu milli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar og Alþingis um að marka ATVINNULEIÐ út úr því kreppuástandi sem nú ríkir í atvinnulífinu og samfélaginu öllu og birtist í slæmri stöðu fjölda fyrirtækja og atvinnuleysi 14000 manns.

 

ATVINNULEIÐ byggir á kjarasamningum til þriggja ára með samræmdri launastefnu og launahækkunum í takt við nágrannalöndin með áherslu á kaupmáttaraukningu samfara lágri verðbólgu og aukinni atvinnu.  Skynsamlegir kjarasamningar til þriggja ára eru ein meginforsenda stöðugleika og tiltrúar á batnandi tíð.

31.1.2011

Hćkkun launa í sjávarútvegi um tugi prósenta hefđi áhrif á allar atvinnugreinar

Samtök atvinnulífsins hugsa um atvinnulífið í heild í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir. Í samtali við Fréttablaðið segir formaður SA, Vilmundur Jósefsson, að sjávarútvegurinn hafi fengið hörðustu kröfurnar í upphafi samningalotunnar, kröfur um 20 til 30 prósenta launahækkanir fyrir ákveðinn hóp fólks. „Við vitum alveg hvað gerist ef það verður gengið að þessu. Það leiðir út í allt samfélagið í formi verðbólgu og þar af leiðandi atvinnuleysi."

30.1.2011

Áhugaleysi ríkisstjórnar og ASÍ á atvinnuleysinu áhyggjuefni

„Við teljum að það sé útlátalaust fyrir ríkisstjórnina að girða sig í brók og fara að klára einhver mál svo við getum farið að koma okkur upp úr þessari djúpu holu sem við erum í en ekki halda áfram að moka á botninum." Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, í ítarlegu viðtali í helgarútgáfu Fréttablaðsins um atvinnumálin, yfirstandandi kjaraviðræður og stjórnmálin. Vilmundur segir að það hafi komið SA á óvart hvað ASÍ og ríkisstjórnin hafi litlar áhyggjur af atvinnuleysinu. „Það er eins og það sé bara sjálfsagt mál að það séu hér fjórtán þúsund manns atvinnulausir."

26.1.2011

Félagsdómur mun úrskurđa um lögmćti verkfallsbođunar

Samtök atvinnulífsins munu láta reyna á lögmæti verkfallsboðunar sem starfsmenn í fiskimjölsverksmiðjum í starfsgreinasambandsfélögunum Afli á Austurlandi og Drífanda í Vestmannaeyjum hafa samþykkt. Málinu verður vísað til félagsdóms. SA líta svo á að samningur við félögin sé ekki sjálfstæður kjarasamningur sem fylgi verkfallsheimild heldur sé hann hluti af aðalkjarasamningi við viðkomandi félög.

21.1.2011

Vögguvísa yfir erlendum fjárfestingum og atvinnulífinu

Á síðasta ári var samdráttur á vinnumarkaði samkvæmt nýrri skýrslu Hagstofunnar. Það voru fleiri atvinnulausir en árið áður og vinnutíminn styttri. Um áramótin voru svo um 14.000 atvinnulausir samkvæmt Vinnumálastofnun. Fjárfestingar í hagkerfinu eru um þessar mundir minni en nokkru sinni síðustu 70 árin.

 

Samtök atvinnulífsins leggja á það megináherslu nú þegar unnið er að gerð nýrra kjarasamninga að stjórnvöld grípi til allra nauðsynlegra ráðstafana til að skapa skilyrði fyrir nýjar fjárfestingar og þá sérstaklega í útflutningsgreinum. Þar er átt við greinar sem nýta orku til framleiðslu sinnar, sjávarútveg, sprotafyrirtæki, ferðaþjónustu og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.

17.1.2011

Mikiđ atvinnuleysi áhyggjuefni

Um áramótin voru 13.972 án atvinnu og fjöldi þeirra sem hefur verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur fer vaxandi. Nýjar tölur Vinnumálastofnunar um þróun atvinnuleysis eru ekki uppörvandi og ef ný hagvaxtarspá AGS gengur eftir verður hér áfram mikið atvinnuleysi og áframhaldandi stöðunun. AGS hefur nú lækkað hagvaxtarspá sína fyrir Ísland úr 3% í 2% fyrir 2011 og segir eitt helsta verkefni þjóðarinnar að ná niður atvinnuleysinu þar sem fólk án atvinnu muni búa áfram við kreppu. Samtök atvinnulífsins taka undir þessi orð AGS en lágmarkshagvöxtur á árunum 2011-2015 þarf að vera 3,5% að meðaltali til þess að núverandi þróun snúist við.

14.1.2011

Stöđnun ekki bođleg

Samtök atvinnulífsins telja þá leið vænlegasta frá núverandi stöðnun að fjárfestingar og útflutningur aukist og þannig skapist atvinna í bráð og lengd. Slík leið er líklegri til árangurs en tímabundinn vöxtur byggður á aukinni einkaneyslu eða hallarekstri ríkissjóðs.

 

Óhugsandi er að hefja sókn þjóðarinnar til framfara og aukins útflutnings og fjárfestinga án þess að sjávarútvegurinn, ein helsta útflutningsgreinin og um leið ein helsta stoð samfélagsins, eigi þar öflugan hlut að máli.

13.1.2011

Samstađa um atvinnusókn

Skynsamlegir kjarasamningar eru ein af lykilforsendum fyrir hækkun á gengi íslensku krónunnar á næstu árum og þar með lágri verðbólgu og auknum kaupmætti. Kaupmáttur á næstu árum vex ekki aðeins með lágri verðbólgu heldur ekki síður vegna þess að ný störf skapast, meiri atvinna verður í boði og atvinnuleysi dregst saman. Nauðsynlegt er að ríkisstjórn og Alþingi komi að nokkrum mikilvægum málum til þess að ná fjárfestingum á skrið og styðji við stefnumörkun um framleiðsludrifinn hagvöxt sem leiðina út úr kreppunni.

 

Í leiðara nýs fréttabréfs SA fjallar Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA um kjarasamningana framundan og þá leið sem fara verði. Hann segir tvær leiðir hugsanlegar til að koma Íslandi út úr kreppunni.  „Annars vegar er að reikna með takmörkuðum hagvexti sem byggir á einkaneyslu og samneyslu. Hins vegar er að reiða sig á öflugan hagvöxt sem er drifinn áfram af framleiðsluhlið efnahagslífsins, þ.e.a.s. með fjárfestingum og auknum útflutningi."

12.1.2011

Meginmarkmiđ ađ ţjóđin nái fyrri styrk

Viðræður aðila vinnumarkaðarins um nýja kjarasamninga eru nú komnar á skrið eftir að hafa legið niðri yfir jól og áramót. Í gær áttu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins fund með samninganefnd Alþýðusambands Íslands og í hádeginu í dag funduðu SA með leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Á fundum Samtaka atvinnulífsins með ASÍ og ríkisstjórninni lögðu SA fram samantekt vegna kjaraviðræðnanna þar sem sett eru fram meginmarkmið SA og yfirlit um þau mál sem samtökin vilja að ríkisstjórn og Alþingi taki til umfjöllunar og afgreiðslu samhliða gerð nýrra kjarasamninga.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english