Beint á leiđarkerfi vefsins

Skođun SA

27.9.2009

Ný lög um Seđlabankann ef vextirnir lćkka ekki

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að ef ekki verði hagvöxtur á Íslandi strax á næsta ári verði það í boði Seðlabankans. Vaxtastefna bankans haldi samfélaginu í heljargreipum. Hann vill ný lög um bankann ef vextir lækka ekki fljótlega. Þetta kom fram á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva sem fram fór á föstudag.

27.9.2009

Seđlabankinn framlengir kreppuna

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að Seðlabankinn hafi framlengt kreppuna með ákvörðun sinni um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12%. Hann segist líta svo á að um ögrun sé að ræða við aðila stöðugleikasáttmálans - ríkisstjórnina, sveitarfélögin og aðila vinnumarkaðarins.

22.9.2009

Stýrivextir ógna stöđugleikasáttmála

Samkvæmt stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins eiga stýrivextir að vera í eins stafs tölu fyrir 1. nóvember en þeir eru nú 12%. Eina auglýsta vaxtaákvörðun fyrir þann tíma er á fimmtudag. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Fréttablaðið í dag miður að lækkun vaxta sé ekki á áætlun. Þá hafi áætlun Seðlabankans um afnám gjaldeyrishafta valdið vonbrigðum, hún hafi verið allt of varfærin. Hannes segir að menn muni meta stöðuna í október og skoða hvort sáttmálinn muni halda.

21.9.2009

Lífeyrissjóđakerfiđ hefur reynst vel

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir að núverandi lífeyrissjóðakerfi hafi reynst vel þrátt fyrir að lífeyrissjóðirnir orðið fyrir áfalli. Hann hafnar því í samtali við fréttastofu RÚV að seta fulltrúa atvinnurekenda í stjórnum sjóðanna hafi valdið þeim skaða og segir stjórnirnar ekki taka ákvarðarnir um einstaka fjárfestingar heldur marki þær stefnuna. Atvinnurekendur hafi hagsmuni af því að afkoma sjóðanna sé sem best.

18.9.2009

Virđi rekstrarhćfra fyrirtćkja verđi hámarkađ

Bankasýsla ríkisins tekur til starfa í næstu viku en henni er ætlað að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Samtök atvinnulífsins hafa gert fjölmargar athugasemdir við stofnun bankasýslunnar og einnig stofnun opinbers eignaumsýslufélags sem er ætlað að stuðla að endurskipulagningu rekstrarhæfra fyrirtækja. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir að samtökin hafi efasemdir um að ríkið eigi að reka stærri fyrirtæki um langan tíma. Eðlilegast væri að koma þeim í hendur nýrra eigenda til að hámarka virði þeirra.

10.9.2009

Hefjum sókn í orkumálum

Komandi vetur verður landsmönnum mjög erfiður efnahagslega og því er brýnt að hefja nú þegar þær aðgerðir sem kveðið er á um í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, ríkisvaldsins og sveitarfélaga frá því í sumar. Í aðdraganda samkomulagsins var sett fram sú sameiginlega sýn að skapa 15.000 störf  fram til ársins 2013 en sá árangur næst ekki nema hagvöxtur verði óvenju mikill, eða 4-4,5% á hverju ári. Til að hagvöxtur hefjist á ný liggja fjárfestingar í orkugeiranum og tengdum iðju- og gagnaverum beinast við. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara fréttabréfs SA.

9.9.2009

Tal um vaxtahćkkun ögrun

Vilmundur Jósefsson, starfandi formaður SA, segir að það setji að mönnum hroll í atvinnulífinu við að hlýða á orð seðlabankastjóra um að til greina komi að hækka vexti. Það sé tvímælalaust ögrun gagnvart stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera. Launalið kjarasamninga hafi verið frestað fram í október meðal annars til að gefa Seðlabankanum tíma til að lækka vexti niður fyrir tíu prósent. Atvinnulífið sé á heljarþröm og ljóst sé að taka verði til hendinni þar sem 15 þúsund manns eru nú án atvinnu.

7.9.2009

Gjaldeyrishöft grafa undan krónunni

"Gjaldeyrishöftin eru einfaldlega yfirlýsing um að íslenska krónan sé ekki í lagi, þau virka eins og stórt viðvörunarskilti," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Fréttablaðið. Vilhjálmur segir að fyrirtæki kjósi því að halda erlendum gjaldeyri á gjaldeyrisreikningum frekar en að skipta honum í krónur. Í umfjöllun blaðsins kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum áttu íslensk fyrirtæki um 173,5 milljarða króna í erlendum gjaldeyri á svokölluðum gjaldeyrisreikningum í íslenskum fjármálastofnunum í maí síðastliðnum.

3.9.2009

Ekkert lát á stofnun nýrra fyrirtćkja

Það sem af er þessu ári hafa verið stofnuð 216 ný fyrirtæki á mánuði sem er sambærilegur fjöldi fyrirtækja og var stofnaður fyrir efnahagshrunið í fyrra. Átta fyrstu mánuði ársins voru stofnuð 1.731 fyrirtæki, aðeins 38 fyrirtækjum færra en á sama tímabili árið 2008. Þetta sýnir ítarleg úttekt sem CreditInfo vann fyrir Fréttablaðið um stofnun nýrra fyrirtækja frá árinu 2005 og fjallað er um í blaðinu í dag.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english