Skoðun SA
17.12.2009
Óásættanleg vinnubrögð ríkisstjórnarinnar
Samtök atvinnulífsins eru aðilar að stöðugleikasáttmála við ríkisstjórnina sem undirritaður var 25. júní og ennfremur gaf ríkisstjórnin út sérstaka yfirlýsingu 28. október í tengslum við framlengingu kjarasamninga. Bæði í stöðugleikasáttmálanum og yfirlýsingunni er tekið fram að deilumál vegna stjórnar fiskveiða eigi að reyna að leysa í svokallaðri sáttanefnd sem nú er að störfum. Frumvarp um breytingu á stjórn fiskveiða sem nú hefur verið lagt fram gengur þvert á fyrirheit ríkisstjórnarinnar og slík vinnubrögð eru á engan hátt ásættanleg gagnvart Samtökum atvinnulífsins.
16.12.2009
SA mótmæla rökum fyrir nýju þrepi í VSK
Margir standa í þeirri trú að lækkun virðisaukaskatts á matvæli feli í sér lífskjarajöfnun þrátt fyrir að opinber gögn sýni fram á allt annað. Með lækkun svokallaðs „matarskatts" árið 2007 var ráðist í eina dýrustu og óskilvirkustu aðferð sem hægt er að hugsa sér til lífskjarajöfnunar. Lægra þrep virðisaukaskatts var þá lækkað úr 14% í 7% en það jákvæða við þá breytingu sem þá var gerð var að öll matvæli og drykkjarvörur voru skattlagðar í sama þrepi.
10.12.2009
SA vísað frá stöðugleikasáttmálanum?
„Samtök atvinnulífsins hafa leitast við að halda góðum samskiptum við ríkisstjórnina og talið að hún væri að vinna í góðri trú að sameiginlegum hagsmunamálum. En frumvarp sjávarútvegsráðherra, þvert á yfirlýsingar um sáttavilja, og tillögur um afdrifaríkar breytingar í skattaumhverfi atvinnulífsins sem ekki eru kynntar eða ræddar á meðan viðræður um skattamál atvinnulífsins standa yfir vikum saman vekja óneitanlega upp mikla tortryggni um heilindi ríkisstjórnarinnar í því samstarfi sem markað var með stöðugleikasáttmálanum." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA.
10.12.2009
Alvarlegar athugasemdir atvinnulífsins við boðaðar skattabreytingar
Samtök atvinnulífsins ásamt Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Samtökum atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fiskvinnslustöðva, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum iðnaðarins og Samtökum verslunar og þjónustu, hafa sent Alþingi ítarlega umsögn um fyrirhugaðar skattabreytingar ríkisstjórnarinnar þar sem gerðar eru fjölmargar alvarlegar athugasemdir og þau vinnubrögð sem viðhöfð eru gagnrýnd harðlega. Hagsmunaaðilar fengu aðeins örfáa daga til að kynna sér efni frumvarpsins sem hefur að geyma mjög róttækar breytingar á íslenska skattkerfinu.
10.12.2009
Misráðið að fjölga skattþrepum í virðisaukaskatti
Ríkisstjórnin áformar að almenna virðisaukaskattþrepið hækki úr 24,5% í 25% frá 1. janúar 2010 og nýtt 14% þrep verði tekið upp frá 1. mars 2010, en undir það falli sykurvörur og óáfengar drykkjarvörur ásamt sölu veitingahúsa og kaffihúsa. Samtök atvinnulífsins telja misráðið að fjölga skattþrepum í virðisaukaskatti. Aukið flækjustig í skattkerfinu auki kostnað fyrirtækja við innheimtu skattsins, bjóði heim hættu á undanskotum og auki kostnað skattyfirvalda við eftirlit. Samtökin telja eðlilegra að hækka neðra þrepið í staðinn til þess að ná þeim tekjumarkmiðum sem að er stefnt.
3.12.2009
Opinber embættismaður með dylgjur um tiltekið fyrirtæki
Í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi var viðtal við Aðalstein Hákonarson, forstöðumann eftirlitssviðs Ríkisskattstjóra, þar sem hann gerði málefni eins fyrirtækis að umtalsefni og fjallaði um það með niðrandi hætti. Ef þessi málsmeðferð er ný stefna af hálfu embættisins markar það þáttaskil í opinberri umræðu hér á landi.









