Skoðun SA
29.1.2009
Óskiljanleg ákvörðun að halda stýrivöxtum í 18%
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is það óskiljanlega ákvörðun að halda stýrivöxtum Seðlabankans óbreyttum í 18%. Hann segir það aum rök að lækka þá ekki og greinilegt að það vanti eitthvað upp á að menn tali saman. Eins veki það athygli að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, sem segist ekki hafa afskipti af stjórnmálum, vilji ekki lækka stýrivexti vegna ótryggs stjórnmálaástands á Íslandi.
28.1.2009
Góð starfsskilyrði atvinnulífs verði tryggð
Góð starfsskilyrði skipta atvinnulífið mestu máli óháð því hverjir eða hvaða stjórnmálaflokkar sitja í ríkisstjórn. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sem segir miklu máli skipta að koma hér á varanlegum stöðugleika fyrir rekstur fyrirtækja og heimila. Rætt var við Vilhjálm á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun ásamt Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur, varaforseta ASÍ, um aðgerðir til að bjarga hag heimila og fyrirtækja. Aðspurður sagði Vilhjálmur hækkandi matvælaverð eina birtingarmynd af því hvernig lækkun á gengi krónunnar hafi reytt af okkur lífskjörin.
26.1.2009
Atvinnulífið kallar eftir sterkri ríkisstjórn
„Það er verulegt áhyggjuefni að landið skuli vera ríkisstjórnarlaust," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við mbl.is. Atvinnulífið kalli eftir sterkri ríkisstjórn sem geti búið því starfsskilyrði sem hægt sé að vinna við. Brýnt sé að greiða úr þeim bráðavanda sem við sé að glíma og síðan að byggja upp til lengri tíma. Vilhjálmur segir að brýnustu viðfangsefnin felist í lækkun vaxta, afnámi gjaldeyrishafta, nauðsyn á starfhæfum bönkum og ýmsum aðgerðum til að draga úr atvinnuleysi.
25.1.2009
Opnir fundir SA um atvinnustefnu til framtíðar
Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda á mánudag og þriðjudag á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjanesbæ. Þar verður ný atvinnustefna samtakanna kynnt ásamt tillögum sem SA hafa sett fram í aðdraganda viðræðna vegna framlengingar kjarasamninga fyrir 15. febrúar næstkomandi. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.
23.1.2009
Hendur atvinnulífsins eru bundnar
Ekkert fyrirtæki getur þrifist í starfsumhverfi þar sem stýrivextir eru 18% og útlánsvextir banka á bilinu 20-30%. Þetta kom fram á fjölmennum fundi stjórnenda í atvinnulífinu á Grand Hótel Reykjavík í morgun. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að lækka verði stýrivexti strax í 12% og síðan mjög hratt í kjölfarið. Æskilegt sé að þeir stýrivextir verði ekki nema 2-3% yfir því sem gerist á evrusvæðinu innan 12 mánaða. Með 18% stýrivexti sé viðbúið að fjöldi fólks og fyrirtækja lendi í þroti og ekki síður hinir nýju ríkisbankar. Rekstrarform þeirra gangi ekki upp og hið háa vaxtastig geti á endanum leitt til falls þeirra.
22.1.2009
Tuttugu þúsund störf
Sá efnahagsskellur sem Íslendingar hafa orðið fyrir er af nánast áður óþekktri stærðargráðu í nútímasögunni. Bankakerfið hrundi nánast eins og það lagði sig á einni viku og gengi íslensku krónunnar lækkaði meira en nokkurn gat órað fyrir. Afleiðingarnar eru rekstrarerfiðleikar fyrirtækja og vaxandi atvinnuleysi. Það er í senn megin áhyggjuefnið og viðfangsefnið á næstunni. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA. Skapa verði tuttugu þúsund ný störf til ársins 2015 og vinna til baka þau störf sem hafi tapast. Nauðsynlegt sé að marka leið út úr þeim ógöngum sem íslenska þjóðarbúið hafi ratað í.
22.1.2009
Hagsýn, framsýn og áræðin atvinnustefna SA
Samtök atvinnulífsins hafa markað hagsýna, framsýna og áræðna atvinnustefnu sem innlegg í umræðu um hvernig hægt er að snúa vörn í sókn. Í núverandi ástandi verður að bregðast rétt við þegar í stað, lágmarka skaðann og auðvelda nýja uppbyggingu. Nauðsynlegt er að grípa til ráðstafana og taka ákvarðanir sem skapa grunn að nýrri framfarasókn.
15.1.2009
Háir vextir uppskrift að nýju hruni
Enginn eðlilegur rekstur stendur undir 25% vöxtum eða þaðan af hærri né heldur tveggja stafa vaxtatölum á verðtryggðum lánum. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA. Lækka verði vextina ef ekki eigi illa að fara. Vandamál hrannist nú upp í bönkunum í stóran afskriftahaug sem einhvern tímann þurfi að moka burt. „Fyrirsjáanleg útlánatöp með þessum háu vöxtum er ekkert annað en uppskrift að hruni nýju bankanna þá loksins þegar og ef þeir komast af stað," segir Vilhjálmur.









