Beint á leiđarkerfi vefsins

Skođun SA

31.12.2008

Skýrar línur á nýju ári

Ef alþjóðlegu efnahagslægðinni lýkur upp úr miðju næsta ári munu Íslendingar njóta góðs af því og komast í kraftmikinn vöxt á ný. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA, í áramótagrein í Markaðnum. „Til þess þurfum við að viðhalda lausnadrifnu hugarfari en gera um leið kröfu til þess að ríkisstjórnin bregðist skjótar við aðsteðjandi vanda og setji skýra stefnu. Lausn á vandanum er augljós: strax þarf að afnema gjaldeyrishöft, lækka stýrivexti, beita meiri ráðdeild í ríkisrekstri og endurreisa bankakerfið í samstarfi við lánadrottna. Loks þarf ríkisstjórnin að setja skýrar línur um stefnuna í peningamálum þjóðarinnar og undirbúa það teymi í ríkisstjórn og í stjórnkerfinu sem skapar trúverðugleika," segir Þór.

30.12.2008

Samstađa gegn atvinnuleysi

Þór Sigfússon, formaður SA, hvetur til samstöðu gegn atvinnuleysi á nýju ári í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir íslensk fyrirtæki hafa náð nú þegar samstöðu með starfsfólki um aðrar leiðir en uppsagnir til að mæta samdrætti og þannig hafi tekist að koma í veg fyrir umtalsvert meira atvinnuleysi en raunin er eftir eitt mesta hrun fjármálakerfis sem um getur í Evrópu. Þór hvetur stjórnvöld til að bregðast skjótt við og lækka stýrivexti. Færra fólki verði sagt upp hjá fyrirtækjum ef stýrivextir verði lækkaðir með skjótum hætti.

18.12.2008

Lćkka verđur stýrivexti strax

Lækkun stýrivaxta á Íslandi er forgangsmál og þá verður að lækka verulega nú þegar til að eigið fé fyrirtækja í landinu brenni ekki endanlega upp. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA, en rætt var við hann í Reykjavík síðdegis. Þór segir óskiljanlegt að stýrivextir á Íslandi séu nú 18% og að einhver komist að þeirri niðurstöðu að það skili einhverju við núverandi aðstæður. Á sama tíma hafi Norðmenn lækkað stýrivexti í 3% og stýrivextir í Bandaríkjunum og Bretlandi séu mun lægri. „Það er eins og einhver vilji okkur illt," sagði Þór. Stýrivaxtapólitíkin sem iðkuð hafi verið á Íslandi sé eitt stærsta vandamál atvinnulífsins.

16.12.2008

Ályktun stjórnar SA um stöđu efnahagsmála

Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins í dag var ítrekuð hvatning til stjórnvalda um að lækka vexti, m.a. í ljósi þess að vextir lækka hvarvetna í löndum heims og vaxtamunur gagnvart útlöndum eykst. Vandséð er hvaða markmiðum hinum háu vöxtum er ætlað að ná við ríkjandi aðstæður takmarkana á fjármagnsviðskiptum við útlönd. Stjórnin hvetur ríkisstjórnina og Seðlabankann til þess að afnema nýsettar reglur um gjaldeyrishömlur. Þá hvetur stjórn SA Alþingi til þess að gæta ráðdeildar í ákvörðunum sínum um fjárlög næsta árs og draga eins mikið úr fyrirsjáanlegum fjárlagahalla og frekast er unnt við núverandi aðstæður.

16.12.2008

Skiptar skođanir innan SA um ESB og evru

Niðurstöður skoðanakönnunar meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins um afstöðu þeirra til þess hvort samtökin eigi að beita sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru liggja nú fyrir. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi stjórnar SA í dag. Meirihluti er í fimm aðildarsamtökum SA fyrir því að SA beiti sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru en meirihluti í þremur er því andvígur. Skoðanir eru mjög skiptar í þessu máli innan samtakanna og á grundvelli niðurstaðna könnunarinnar er staðfest að SA muni ekki beita sér fyrir aðild Íslands að ESB og upptöku evru á Íslandi. SA verða áfram virkur þátttakandi í Evrópuumræðunni og munu gæta hagsmuna allra félagsmanna á grundvelli þess að skoðanir eru skiptar um hvort sækja eigi um aðild að ESB eða ekki.

11.12.2008

Baráttuár framundan í atvinnulífinu

Næsta ár verður mikið baráttuár í öllum skilningi fyrir íslenskt atvinnulíf. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í leiðara fréttabréfs samtakanna. Takast verði á við mikla og margvíslega erfiðleika en réttar ákvarðanir í lykilmálum ráði því hvernig gangi. Ef vel takist til verði kreppan ekki eins djúp og óttast hefur verið. Vilhjálmur segir að aðilar vinnumarkaðarins séu sammála um að reyna að ná almennri samstöðu á vinnumarkaði um þróun kjaramála næstu tvö árin og á það verði látið reyna í byrjun nýs árs.

11.12.2008

Ekki verđi gengiđ á rétt smáríkja í loftslagsmálum

Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Poznan í Póllandi lýkur á morgun. Íslenska sendinefndin leggur á það áherslu að ekki verði gengið á rétt smáríkja og að árangur Íslands í loftslagsmálum og sérstaða njóti áfram viðurkenningar. Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, situr ráðstefnuna. Hann segir að samstaða sé um að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda en mikill vandi sé fyrir höndum. Öll ríki verði að grípa til aðgerða ef raunverulegur árangur eigi að nást. Auka verði nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, bæta orkunýtingu, auka notkun kjarnorku og binda verði koltvísýring í jarðlög. Aðeins með gríðarlegu átaki á öllum þessum sviðum megi vænta árangurs.

11.12.2008

Ţakkarkveđjur til atvinnulífs í Fćreyjum

Samtök atvinnulífsins hafa sent Føroya Arbeiðsgevarafelag - samtökum atvinnulífsins í Færeyjum - þakkarkveðjur fyrir stuðning á erfiðum tímum í efnahagslífi Íslands. Þór Sigfússon, formaður SA, segir í bréfi til Jóhans Páls Joensen, fomanns FA, að það sé íslensku atvinnulífi mikilvægt að finna stuðning frá frændum okkar þegar á móti blæs. Samskipti íslensks og færeysks atvinnulífs hafi verið ánægjuleg í gegnum tíðina og þau megi vonandi efla enn frekar í framtíðinni.

3.12.2008

Framtíđarlandiđ Ísland

Mikilvægt er að stjórnvöld taki réttar ákvarðanir varðandi framtíð íslensks atvinnulífs. Þetta sagði Þór Sigfússon, formaður SA, á ráðstefnu Útflutningsráðs sem fram fór á fullveldisdaginn. Þór sagði grundvallaratriði að standa vörð um fyrirtækin í landinu til að þau geti haldið áfram rekstri. Stefna skuli að því að hér á landi verði rekstrarumhverfi þar sem hægt sé að gera áætlanir til minnst tveggja ára sem ómögulegt sé í dag, verðbólga verði ekki hærri en 3% og stýrivextir ekki hærri en 4%.

3.12.2008

Afnema á gjaldeyrishöft

Þór Sigfússon, formaður SA, telur að afnema eigi höft á gjaldeyrismarkaði þar sem núverandi fyrirkomulag færi okkur 30-40 ár aftur í tímann. Stjórnvöld lögðu til í gær að samráð yrði haft við aðila vinnumarkaðarins um endurskoðun nýrra reglna um gjaldeyrisviðskipti. Þór segir í morgunfréttum RÚV það mikilvægt en mistök hafi verið gerð sem verði að leiðrétta.

2.12.2008

Bregđast verđur skjótt viđ vanda atvinnulífsins

Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu RÚV að sér lítist vel á aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar til handa fyrirtækjum og segir að hann sé skynsamlegur. Það skipti þó miklu að útfærsla þeirra hugmynda sem settar hafi verið fram taki ekki of langan tíma. Í stórum dráttum sé verið að stíga þarna skynsamleg skref.

2.12.2008

Mikilvćg stefnumörkun stjórnvalda

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir stefnumörkun stjórnvalda um aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja mjög mikilvæga og skref í rétta átt. Samkvæmt henni verði réttar ákvarðanir teknar varðandi starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja en vinna þurfi frekar að þeim. Vilhjálmur segir mjög ánægjulegt að ríkisstjórnin lýsi yfir vilja til að hverfa frá gjaldeyrishöftum og að semja eigi við erlenda lánadrottna til að koma  bankaviðskiptum í eðlilegt horf. Aðrar aðgerðir sem kynntar voru í morgun séu einnig mikilvægar sem vinna þurfi að.

2.12.2008

Unniđ ađ stofnun Endurreisnarsjóđs atvinnulífsins

Nokkrir stórir lífeyrissjóðir vinna nú að stofnun sérstaks fjárfestingasjóðs í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins. Sjóðurinn, sem hefur verið nefndur Endurreisnarsjóður atvinnulífsins, verður stofnaður þannig að lífeyrissjóðirnir leggja honum til fjármagn sem fjárfestar. Endanleg upphæð liggur ekki fyrir en stofnféð gæti numið tugum milljarða króna. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english