Beint á leiðarkerfi vefsins

Skoðun SA

6.9.2007

Nýtt fyrirkomulag áfallatrygginga

SA og ASÍ hafa á undanförnum mánuðum rætt ítarlega um nýtt fyrirkomulag áfallatrygginga en það er eðlilegt að Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin snúi bökum saman og leiti samstöðu um nýtt og betra fyrirkomulag en hefur tíðkast til þessa, segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. „Hvatinn að þessum umræðum er sívaxandi fjöldi öryrkja og alltof há örorkutíðni sem kemur fram í hækkandi kostnaði samfélagsins og brotthvarfs af vinnumarkaði. Aukinn kostnaður samfélagsins hefur m.a. komið niður á lífeyrissjóðunum sem hafa þurft hærri iðgjöld til þess að rísa undir auknum kostnaði vegna örorku,” segir Vilhjálmur og bendir á að alltof oft hafi núverandi fyrirkomulag reynst vera einstefnugata til örorku og fólk hafi alltof sjaldan átt afturkvæmt inn á vinnumarkaðinn. Rætt hefur verið um að framfærslugreiðslur í hinu nýja fyrirkomulagi verði heldur hærri en nú og vinnugeta fólks verði skilgreind fremur en örorka og ekki er gert ráð fyrir sérstökum tekjutengingum á greiðslum. Takist að lækka örorkutíðni um 30% verður hið nýja fyrirkomulag kostnaðarminna fyrir atvinnulífið og samfélagið auk þess að vera meira hvetjandi fyrir fólk sem hefur þurft að hverfa af vinnumarkaði.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english