Skoðun SA
31.12.2007
Brýnt að ná jafnvægi á næsta ári
Þróun atvinnulífsins og efnahagsmála hefur sett mestan svip á starf Samtaka atvinnulífsins á árinu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið í dag inntur eftir því hvað hæst hafi borið á árinu. „Rekstur margra fyrirtækja hefur gengið vel. Þau hafa ráðið til sín fólk og kaupmáttur hefur farið vaxandi. Þá hefur atvinnuleysi verið sáralítið. Annað hefur hins vegar ekki gengið jafnvel. Verðbólgan hefur aukist og veldur því fyrst og fremst hækkun íbúðaverðs. Við höfum horft á Seðlabankann hækka vexti án þess að það hefði nokkur áhrif á verðbólguna. Ýmis útflutningsfyrirtæki hafa síðan lent í vandræðum vegna aðgerða bankans. Þótt árið hafi að flestu leyti verið uppgangsár hefur það verið á ýmsan hátt erfitt. Það ber brýna nauðsyn til að ná betra jafnvægi á næsta ári.“
28.12.2007
Hjöðnun verðbólgu forgangsmál
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í grein í Fréttablaðinu í dag að hjöðnun verðbólgu hljóti að vera forgangsmál fyrir
27.12.2007
Mikilvægt að verja lífskjörin
Á síðasta einum og hálfa áratug hefur Íslendingum farnast vel. Á árunum 2000-2007 jókst kaupmáttur launa samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar um 20% til viðbótar við 22% aukningu á árunum 1990-2000. Sé litið til umsaminna lágmarkslauna þá jókst kaupmáttur þeirra um 45% frá 1990-2000 og um rúm 18% á árunum 2000-2007. Samtals jókst kaupmáttur umsaminna lágmarkslauna um 71% milli áranna 1990 og 2007. Launahækkanir á Íslandi hafa verið mun meiri undanfarin ár en gerist meðal nálægra þjóða. Það þarf öflugt atvinnulíf til að greiða há laun og ástæða til að óska Íslendingum til hamingju með árangur liðinna ára.
21.12.2007
Hækkar Alþingi rafmagnsreikninginn?
Þingmenn úr öllum flokkum Alþingis hafa sameinast um að leggja til að ríkisstjórn Íslands skipi nefnd til að móta stefnu um hvernig leggja megi á næstu árum og áratugum raflínur í jörð sem nú eru ofan jarðar. Þingsályktunartillaga þessa efnis var lögð fram skömmu fyrir jólafrí þingmanna en koma verður í ljós hvort jólagjöf þeirra verði á endanum metin til fjár. Þó er ljóst er að verðmiði hennar, m.v. núverandi aðstæður og fyrirliggjandi tækni, gæti hlaupið á yfir þrjú hundruð milljörðum króna. Verði það almenn stefna að leggja skuli raflínur í jörð mun flutningskostnaður raforku á Íslandi margfaldast og reikningurinn sendur til íslenskra fyrirtækja og heimila. Það mun hindra stofnun nýrra fyrirtækja og draga úr hvata til nýsköpunar auk þess að draga úr lífsgæðum landsmanna. Flutningskostnaður raforku er nú þegar tvöfalt hærri á Íslandi en á Norðurlöndunum, samkvæmt upplýsingum Landsnets, sem skýrist af miklum fjárfestingum og uppbyggingu á undanförnum árum.
6.12.2007
Almennar launahækkanir verðbólgufóður
„Að undanförnu hafa verið settar fram kröfur um miklar samningsbundnar launahækkanir frá ýmsum hópum sem ekki byggja á neinu faglegu mati á þróun á vinnumarkaði eða stöðu atvinnulífsins. Það leysir engin vandamál að nálgast kjarasamninga eins og einhvers konar kröfukeppni milli einstakra hópa.” Þetta segir
6.12.2007
Ályktun stjórnar SA um kjarasamninga og efnahagsmál
Kaupmáttur launa hefur aukist mjög á núverandi samningstímabili og meira en gerist meðal nálægra þjóða. Laun hafa hækkað mikið og verðbólga verið allt of mikil. Nú er tími til kominn að hægja á launa- og verðbreytingum. Þetta segir stjórn Samtaka atvinnulífsins í ályktun sem samþykkt var þann 4. desember. Í ályktuninni segir ennfremur að nýta eigi svigrúm í komandi kjarasamningum til að hækka lægstu laun og færa kauptaxta nær greiddum launum. Stjórnin telur ekki svigrúm til almennra launahækkana og að þær yrðu beinlínis skaðlegar íslensku efnahagslífi. Stjórnin styður áform um stofnun áfallatryggingasjóðs og hvetur stjórnvöld til ábyrgðar í hagstjórn. Varað er við nýrri og íþyngjandi lagasetningu sem dragi úr samkeppnishæfni atvinnulífsins án sýnilegs ávinnings s.s. á sviði jafnréttismála og samkeppnismála. Stjórn SA telur ekki svigrúm til nýrra kjarasamninga með auknum tilkostnaði atvinnulífsins verði umgjörð hagstjórnarinnar ekki bætt, aðhalds gætt í opinberum útgjöldum og verðbólgumarkmiði Seðlabankans breytt. Stjórn SA leggur áherslu á að launakostnaður opinberra aðila aukist ekki umfram það sem gerist í samningum SA á almennum vinnumarkaði.
6.12.2007
Veiðigjald verði fellt niður
Stjórn Samtaka atvinnulífsins lýsir eindregnum stuðningi við það sjónarmið Landssambands íslenskra útvegsmanna að fella að fullu niður veiðigjald á sjávarútveginn. Mjög illa horfir með afkomu sjávarútvegsins og því eru engin rök fyrir sérstakri skattlagningu á þá atvinnugrein umfram aðrar. Samtök atvinnulífsins hvetja ríkisstjórn og Alþingi til þess að breyta fyrirliggjandi frumvarpi um niðurfellingu veiðigjalds að hluta til þannig að gengið verði alla leið og að sjávarútvegurinn losni alfarið við þetta sérstaka gjald.
4.12.2007
Atvinnulífið er hluti af lausn loftslagsvandans
Samtök atvinnulífsins á Norðurlöndunum sendu í dag bréf til forsætisráðherra Norðurlanda og umhverfisráðherra auk forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem hvatt er til þess að stjórnvöld og atvinnulíf vinni saman að því að finna lausnir á loftslagsvandanum.









