Beint á leiðarkerfi vefsins

Skoðun SA

31.12.2005

Nýtum tækifærin

Undanfarin ár hafa Íslendingar verið að ná glæstum árangri í efnalegu tilliti, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. í áramótaviðtali við Morgunblaðið. Hann segir vonir standa til að framhald verði á þessari þróun, en til að svo megi verða þurfi að halda vel um efnahagsstjórnina. Ingimundur fjallar um leiðir til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar sem ekki síst séu í því fólgnar að skapa skilyrði til aukinnar hagræðingar, og nefnir m.a. aukið viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur í því sambandi með tilheyrandi verulegri lækkun á matvælaverði til neytenda. „Ekkert eitt atriði annað er nú líklegra til þess að stuðla að bættum lífskjörum hér á landi,“ segir Ingimundur.

28.12.2005

Skýr skilaboð

Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segir í samtali við Morgunblaðið, að SA séu sátt við viðbrögð forsætisráðherra við úrskurði Kjaradóms. „Í þessu felast skýr skilaboð um að stjórnvöld vilji sporna gegn þeirri keðjuverkun sem augljóslega var að byggjast upp að undanförnu í sambandi við launabreytingar. Ég vona að þetta verði skýr skilaboð inn í þá umræðu sem verður á vettvangi sveitarfélaganna um miðjan næsta mánuð," segir Ingimundur ennfremur.

22.12.2005

Fjarvistarsönnun fyrir hvaða ábyrgðarleysi sem er

Samtök atvinnulífsins lýsa furðu sinni á ákvörðun Kjaradóms um launahækkanir til æðstu embættismanna. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að ekkert það hafi gerst á almennum vinnumarkaði sem skapi forsendur fyrir þessari prósentuhækkun. „Við teljum að þetta sé um tvöföld hækkun á við það sem þar hefur verið að gerast,“ segir Ari og segir að þessi dómur verði ein allsherjar fjarvistarsönnun fyrir hvaða ábyrgðarleysi sem er í launaákvörðunum hjá hinu opinbera. Þá geti Kjaradómur geti ekki vikið sér undan ábyrgð á því að hann sé segja að hér eigi að vera 10% verðbólga.

19.12.2005

Pennastriksaðferð borgarstjóra

Innistæðulítil pennastrik stjórnmálamanna bæta ekki lífskjör almennings, segir í grein Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, í Morgunblaðinu. Þar fjallar hann m.a. um þá þróun að sveitarfélögin í landinu geri kostnaðarsamari kjarasamninga en bæði ríkið og almenni markaðurinn á meðan sveitarfélögin í heild séu rekin með tapi. Ari segir um viðbrögð borgarstjórans í Reykjavík við gagnrýni SA á þessa þróun að það sé dapurlegt að borgarstjóri treysti sér ekki í málefnalegar umræður um kjaraþróun og efnahagsmál, en haldi sig þess í stað við gamalkunnar lýðskrumsaðferðir.

19.12.2005

Er 30% launahækkun í lagi?

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í grein í Fréttablaðinu að meginástæður verðbólgunnar um þessar mundir séu miklar launahækkanir. Hann spyr því hvort 30% launahækkun, eins og Reykjavíkurborg samdi um í byrjun mánaðarins, sé í lagi. Hannes bendir á að ekki séu mörg dæmi um slíkar hækkanir í þróuðum ríkjum og segir að hörmungar verðbólguáranna á Íslandi virðist því miður vera gleymdar.

16.12.2005

Nauðsynlegt að auka viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur

Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað lýst vonbrigðum sínum með að Ísland skipar sér í hóp þeirra ríkja sem skemmst vilja ganga í átt til aukins viðskiptafrelsis með landbúnaðarvörur. Samtökin telja nauðsynlegt að auka viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur og auka þannig fjölbreytni í vöruframboði, samkeppni og aðhald markaðarins. Með þessu yrði stuðlað að lækkun á matvælaverði til neytenda sem er alltof hátt hér á landi. Þá þarf að draga úr opinberum stuðningi við landbúnað, gera hann gagnsærri og draga úr markaðstruflandi áhrifum hans. Ennfremur vilja SA að felld verði niður vörugjöld af matvælum og þau öll sett í sama þrep virðisaukaskatts, samtímis því sem lægra þrep hans yrði lækkað í 12%.

1.12.2005

Atvinnulífið græðir á jafnrétti

Í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, að jafnréttismál hafi lengi verið knýjandi umræðuefni í samfélaginu, en það sé þó ekki fyrr en á allra síðustu árum að sjónir hafi beinst meira að stöðu karla í þessu sambandi og að jafnrétti í ákvörðunum og skyldum á heimilunum sé jafn mikilvægt og þurfi að haldast í hendur við jafnrétti í stjórnarherbergjunum og atvinnulífinu almennt.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english