Beint á leiðarkerfi vefsins

Skoðun SA

31.12.2005

Nýtum tækifærin

Undanfarin ár hafa Íslendingar verið að ná glæstum árangri í efnalegu tilliti, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. í áramótaviðtali við Morgunblaðið. Hann segir vonir standa til að framhald verði á þessari þróun, en til að svo megi verða þurfi að halda vel um efnahagsstjórnina. Ingimundur fjallar um leiðir til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar sem ekki síst séu í því fólgnar að skapa skilyrði til aukinnar hagræðingar, og nefnir m.a. aukið viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur í því sambandi með tilheyrandi verulegri lækkun á matvælaverði til neytenda. „Ekkert eitt atriði annað er nú líklegra til þess að stuðla að bættum lífskjörum hér á landi,“ segir Ingimundur.

28.12.2005

Skýr skilaboð

Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segir í samtali við Morgunblaðið, að SA séu sátt við viðbrögð forsætisráðherra við úrskurði Kjaradóms. „Í þessu felast skýr skilaboð um að stjórnvöld vilji sporna gegn þeirri keðjuverkun sem augljóslega var að byggjast upp að undanförnu í sambandi við launabreytingar. Ég vona að þetta verði skýr skilaboð inn í þá umræðu sem verður á vettvangi sveitarfélaganna um miðjan næsta mánuð," segir Ingimundur ennfremur.

22.12.2005

Fjarvistarsönnun fyrir hvaða ábyrgðarleysi sem er

Samtök atvinnulífsins lýsa furðu sinni á ákvörðun Kjaradóms um launahækkanir til æðstu embættismanna. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að ekkert það hafi gerst á almennum vinnumarkaði sem skapi forsendur fyrir þessari prósentuhækkun. „Við teljum að þetta sé um tvöföld hækkun á við það sem þar hefur verið að gerast,“ segir Ari og segir að þessi dómur verði ein allsherjar fjarvistarsönnun fyrir hvaða ábyrgðarleysi sem er í launaákvörðunum hjá hinu opinbera. Þá geti Kjaradómur geti ekki vikið sér undan ábyrgð á því að hann sé segja að hér eigi að vera 10% verðbólga.

19.12.2005

Pennastriksaðferð borgarstjóra

Innistæðulítil pennastrik stjórnmálamanna bæta ekki lífskjör almennings, segir í grein Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, í Morgunblaðinu. Þar fjallar hann m.a. um þá þróun að sveitarfélögin í landinu geri kostnaðarsamari kjarasamninga en bæði ríkið og almenni markaðurinn á meðan sveitarfélögin í heild séu rekin með tapi. Ari segir um viðbrögð borgarstjórans í Reykjavík við gagnrýni SA á þessa þróun að það sé dapurlegt að borgarstjóri treysti sér ekki í málefnalegar umræður um kjaraþróun og efnahagsmál, en haldi sig þess í stað við gamalkunnar lýðskrumsaðferðir.

19.12.2005

Er 30% launahækkun í lagi?

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í grein í Fréttablaðinu að meginástæður verðbólgunnar um þessar mundir séu miklar launahækkanir. Hann spyr því hvort 30% launahækkun, eins og Reykjavíkurborg samdi um í byrjun mánaðarins, sé í lagi. Hannes bendir á að ekki séu mörg dæmi um slíkar hækkanir í þróuðum ríkjum og segir að hörmungar verðbólguáranna á Íslandi virðist því miður vera gleymdar.

16.12.2005

Nauðsynlegt að auka viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur

Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað lýst vonbrigðum sínum með að Ísland skipar sér í hóp þeirra ríkja sem skemmst vilja ganga í átt til aukins viðskiptafrelsis með landbúnaðarvörur. Samtökin telja nauðsynlegt að auka viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur og auka þannig fjölbreytni í vöruframboði, samkeppni og aðhald markaðarins. Með þessu yrði stuðlað að lækkun á matvælaverði til neytenda sem er alltof hátt hér á landi. Þá þarf að draga úr opinberum stuðningi við landbúnað, gera hann gagnsærri og draga úr markaðstruflandi áhrifum hans. Ennfremur vilja SA að felld verði niður vörugjöld af matvælum og þau öll sett í sama þrep virðisaukaskatts, samtímis því sem lægra þrep hans yrði lækkað í 12%.

1.12.2005

Atvinnulífið græðir á jafnrétti

Í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, að jafnréttismál hafi lengi verið knýjandi umræðuefni í samfélaginu, en það sé þó ekki fyrr en á allra síðustu árum að sjónir hafi beinst meira að stöðu karla í þessu sambandi og að jafnrétti í ákvörðunum og skyldum á heimilunum sé jafn mikilvægt og þurfi að haldast í hendur við jafnrétti í stjórnarherbergjunum og atvinnulífinu almennt.

18.11.2005

Hagnaður fyrirtækja undirstaða betra umhverfis

Hagnaður í atvinnulífinu er undirstaða alls hagvaxtar og allrar sjálbærrar þróunar. Þetta sagði Þorgeir Baldursson, varaformaður SA, m.a. í ræðu sem hann flutti við upphaf Umhverfisþings. Þorgeir sagði ekki nóg að horfa á málefnið með gleraugum umhverfisráðuneytisins, einstakra stofnana eða umhverfisverndarsamtaka, heldur yrði að horfa á málin heildstætt. Þorgeir skoraði á umhverfisráðuneytið að grisja reglugerðarskóg sinn í samræmi við átak forsætisráðherra einfaldara Ísland og hvatti jafnframt til að eftirlitskerfi með starfsemi fyrirtækja yrði fært til nútímans. Hann sagði engin skynsemisrök fyrir því að takmarka nýtingu á orkulindum Íslands með alþjóðlegum samningum – slíkt leiddi einungis til tjóns fyrir umhverfið.

10.11.2005

Sveitarfélögin axla ekki hagstjórnarábyrgð

Sveitarfélögin hafa í heild ekki axlað hagstjórnarábyrgð með viðunandi hætti og að óbreyttu væri beinlínis óæskilegt frá sjónarhorni hagstjórnar að auka vægi sveitarfélaga í þjóðarbúskapnum, sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. í ræðu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga. Hann sagði tímabært að stefna að því að gera íslenskan vinnumarkað einsleitari með því að fella niður lögbundin forréttindi opinberra starfsmanna. Þá fjallaði Ingimundur m.a. um kosti einkaframkvæmdar á opinberri þjónustu og sagði mikil tækifæri vannýtt á því sviði af hálfu íslenskra sveitarfélaga.

8.11.2005

Færri ár í framhaldsskóla

Fjöldi framhaldsskólakennara mótmælir um þessar mundir fyrirhugaðri fækkun ára í framhaldsskóla. Í grein í Morgunblaðinu spyr Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs SA, m.a. hvers vegna íslenskir nemendur þurfi að ljúka framhaldsskólastigi einu til tveimur árum síðar en nemendur í nágrannalöndunum, og hvort auknar ævitekjur nemenda og aukin þjóðarframleiðsla upp á milljarða króna skipti ekki máli í þessu samhengi.

3.11.2005

Uppsögn kjarasamninga?

Yfirlýsing miðstjórnar ASÍ, þess efnis að einsýnt þyki að koma muni til uppsagnar kjarasamninga, hlýtur að teljast með miklum ólíkindum ef horft er til stöðu viðræðna milli aðila og þróunar kaupmáttar í landinu, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir ekki um það deilt að forsenduákvæði kjarasamninga séu virk, en fjallar jafnframt m.a. um 60% hækkun á kaupmætti ráðstöfunartekna sl. 10 ár, erfiða stöðu samkeppnisgreina vegna firnasterks gengis krónunnar og ábyrgð stjórnvalda á því ástandi sem skapast hefur á íbúðalánamarkaði. Ari segir þær raddir nú heyrast meðal fyrirtækja að réttast væri að SA segðu upp kjarasamningum.

24.10.2005

Gæðavottun á launajöfnuð kynja?

Í Fréttablaðinu, á 30 ára afmæli kvennafrídagsins, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að það feli í sér sóun að mismuna konum og körlum með launagreiðslum og samtökin leggi áherslu á að fyrirtæki greiði laun á grundvelli frammistöðu og framlags. Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, hefur sett fram hugmyndir um að taka upp sérstaka gæðavottun sem fyrirtæki geti nýtt sér til að sýna fram á að þau greiði konum og körlum jöfn laun. Ari segist aðspurður að það geti vel komið til greina að fara þá leið. „… má vel vera að ganga megi lengra í að beita aðferðum gæðastjórnunar á þessu sviði.“ Sjá  Fréttablaðið 24.október.

12.10.2005

Menntun og aftur menntun

Í vaxandi alþjóðlegri samkeppni verða samkeppnishæf almenn starfsskilyrði fyrir atvinnulífið stöðugt mikilvægari. Þá verður menntun og aftur menntun ásamt með ræktun frumkvöðlaanda lykilatriði í áframhaldandi árangri. Þetta kom fram í erindi Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga um hræringar á vinnumarkaði.

12.10.2005

Öll matvæli í sama skattþrep og vörugjöld felld niður

SA leggja til að öll matvæli verði sett í sama þrep virðisaukaskatts og felld af þeim vörugjöld, samtímis því sem ákvörðun yrði tekin um  lækkun á lægra þrepi virðisaukaskatts í 12%. Þau matvæli sem bera vörugjöld og skattlögð eru í hærra þrepi virðisaukaskatts bera stjórnlyndri neyslustýringu vitni sem ekki verður réttlætt með skírskotun til manneldisstefnu. Með framangreindum breytingum yrðu alvarlegir agnúar sniðnir af skattkerfinu og það fært nær því sem tíðkast hjá þjóðum sem við berum okkur saman við.

6.10.2005

Framhald kjarasamninga krefst samstarfs stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar

Stjórn Samtaka atvinnulífsins kallar eftir samstarfi við verkalýðshreyfinguna og aðkomu stjórnvalda að lausn sem geti komið í veg fyrir yfirvofandi uppsögn kjarasamninga. Stjórn SA segir í ályktun að stjórnvöld verði að horfast í augu við ábyrgð sína á vaxandi verðbólgu, metviðskiptahalla, útlánaþenslu og skuldaaukningu heimilanna í landinu. Það verði að taka á því jafnvægisleysi sem einkenni íslenskan þjóðarbúskap um þessar mundir og auka aðhald opinberra fjármála. Kaupmáttur launa landsmanna sé nú hærri en nokkru sinni fyrr og við blasi að frekari hækkanir launa en þegar hefur verið samið um að taki gildi um næstu áramót myndu valda tjóni sem íslenskt efnahagslíf þurfi síst á að halda.

26.9.2005

Leyfa á frjálsa för fólks nú þegar

Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, að hann telji rétt að afnema þegar í stað takmarkanir á frjálsri för fólks frá tíu aðildarríkjum ESB. Ríkin gerðust aðilar að ESB og EES þann 1. maí 2004 og að óbreyttu rennur út frestun á frjálsri för fólks frá þessum ríkjum þann 1. maí 2006. „Í ljósi aðstæðna sem nú blasa við, að ekkert er í spilunum um að spennuástand í samfélaginu breytist fram til 1. maí 2006 þegar frestuninni lýkur, sé ég engin efnisleg rök sem mæla með því að frestuninni sé við haldið,“ segir Ari.

1.9.2005

Samkeppnisstaða fyrirtækja aldrei verið verri

Raungengi krónunnar á mælikvarða verðlags er um þessar mundir hærra en nokkru sinni og er samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja verri en hún hefur verið frá upphafi þessara mælinga. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-framkvæmdastjóri SA, segir í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi að því fari fjarri að hagkerfið geti staðið undir núverandi gengi krónunnar. Gríðarlegur viðskiptahalli beri því órækt vitni. Hagnaður atvinnulífsins í heild hafi farið minnkandi samhliða hækkandi raungengi. Vissulega finnist ánægjulegar undantekningar í Kauphöllinni, en sá hagnaður eigi að stórum hluta rætur að rekja til starfsemi erlendis.

6.8.2005

Vaxtabótakerfið engin heilög kýr

„Ég held að það hljóti að koma til álita að endurskoða þetta kerfi [vaxtabótakerfið]. Það má ekki vera nein heilög kýr,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA í samtali við Morgun-blaðið. „Fólk er hvatt til þess að skulda sem mest. Ég held að það sé nú kannski ekki það sem við þurfum á Íslandi,“ segir Ari m.a. en undirstrikar að SA séu ekki með þessu að leggja til að horfið sé frá stuðningi við þá sem höllustum fæti standa á íbúðamarkaði.

7.7.2005

Opinber fjármálastjórn og fækkun starfa í atvinnulífinu

Störfum fækkar í gengisháðum greinum í alþjóðlegri samkeppni og miklu meira aðhald opinberra fjármála er nauðsynlegt til að sporna gegn þeirri öfugþróun sem hátt gengi krónunnar hefur í för með sér, segir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir stjórnmálamenn bera litla virðingu fyrir þeim fjárlögum sem þeir samþykkja og að núverandi starfshættir Íbúðalánasjóðs séu bein ógnun við þann verðstöðugleika sem óumdeilanlega sé helsta forsenda vinnufriðar í landinu. Sveitarfélög auka á vandann.

3.5.2005

Hagsmunir atvinnulífsins eru almannahagsmunir

Í ræðu sinni á aðalfundi SA fjallaði Ingimundur Sigurpálsson, formaður samtakanna, m.a. um mikilvægi samkeppnishæfs starfsumhverfis og lagði hann áherslu á að hagsmunir atvinnulífsins væru almannahagsmunir. Gjöld og álögur á fyrirtæki væru á endanum borin af neytendum. Þá sagði hann einungis fjórðung hækkunar verðlags stafa af hækkun á verði vöru og þjónustu. Einsýnt væri að ekki yrði litið framhjá þessu við mat á verðlagsþróun og eðlilegum viðbrögðum hennar vegna.

7.4.2005

Mikil kaupmáttaraukning

Fyrir liggur að aðilar að kjarasamningum hafa valið vísitölu neysluverðs sem grundvöll skoðunar á framvindu kjara-samninga, segir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir þó m.a. að vegna mikillar verðhækkunar fasteigna undanfarin ár gefi vísitala neysluverðs án húsnæðisliðar betri mynd þegar kaupmáttur launa er skoðaður, en þannig reiknaður hefur hann aukist um 4,3% á einu ári.

6.3.2005

Starfsmenn í sama liði oft misverðmætir

Eðlilegar ástæður eru oftast fyrir launamun milli kvenna og karla í sambærilegu starfi segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í viðtali við Fréttablaðið. Í nýlegum fyrir-lestri notaði hún launamun atvinnumanna í knattspyrnu til að sýna fram á einstaklingsbundin viðmið við launaákvarðanir.

5.3.2005

Atriði í frumvarpinu sem eru til bóta frá því sem áður var

Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgun-blaðið að atriði í frumvarpi til nýrra samkeppnislaga séu til bóta frá því sem áður hafi verið. Til dæmis hefði heimild til að brjóta upp starfsemi fyrirtækja verið of óljós í fyrri drögum sem og forsendur fyrir svo afdrifaríkum viðurlögum, en að þetta virtist nú vera talsvert skýrara.

4.3.2005

Rangfærslur um ójöfnuð

Engin innistæða er fyrir fullyrðingum um vaxandi ójöfnuð á Íslandi yfir tíma og í alþjóðlegum samanburði, segir Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri SA í grein í Frétta-blaðinu. Í greininni skoðar Hannes gögn um tekjuskiptingu á Íslandi en í umræðu um efnahags- og kjaramál er iðulega staðhæft að ójöfnuður sé mikill í landinu og aukist stöðugt.

3.3.2005

Af erlendu starfsfólki og svartri atvinnustarfsemi

Það er að sjálfsögðu með öllu óþolandi fyrir heiðarleg fyrirtæki að þurfa að keppa við aðila sem fara framhjá lögum og reglum, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hún segir slíka starfsemi ekki eiga neinn rétt á sér og að hana beri að uppræta. Slík starfsemi megi hins vegar ekki verða til þess að kasta rýrð á þá útlendinga sem hér starfa á eðlilegum forsendum og þá vinnuveitendur sem nýta sér krafta erlends starfsfólks eftir löglegum leiðum.

3.3.2005

Almenn ánægja með breytingar á stjórnsýsluþætti

Í samtali við Fréttablaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, samtökin almennt vera ánægð þær breytingar sem gert er ráð fyrir á stjórnsýslu samkeppnismála í frumvarpi viðskiptaráðherra. Hann gagnrýnir hins vegar ákvæði um heimild nýrrar stofnunar til að brjóta upp fyrirtæki og fleiri ákvæði frumvarpsins.

3.2.2005

Sporna þarf gegn ofþenslu

Uppsagnir á Stöðvarfirði og í Þorlákshöfn vitna um almenna þróun starfsskilyrða segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir að staðan sé alvarleg og að huga þurfi vandlega að öllum leiðum til að draga úr þenslu.

13.1.2005

Breytingar á skattaumhverfi – áherslur SA

Þróun skattumhverfis fyrirtækja hefur verið afar jákvæð undanfarin ár, en brýnustu verkefnin framundan eru m.a. afnám stimpilgjalds á viðskiptabréf, endurskoðun vörugjalda og virðisaukaskatts og frekari lækkun tekjuskatts fyrirtækja. Þetta kom fram í erindi Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, á skattadegi Deloitte, SA, VÍ og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins.

6.1.2005

Erlent starfsfólk nauðsynlegt við stórframkvæmdir

Um það ríkir enginn ágreiningur að öllum fyrirtækjum sem hér starfa, innlendum sem erlendum, ber að virða íslensk lög og íslenska kjarasamninga, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir umræðuna að undanförnu hafa verið með ólíkindum á köflum og minnir á að framboð af hæfu fólki til ýmissa verkframkvæmda sé einfaldlega ekki nægjanlegt í landinu um þessar mundir.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english