Beint á leiðarkerfi vefsins

Skoðun SA

31.12.2004

Ár landvinninga í atvinnulífinu

Árið 2004 einkennist af góðum árangri íslensks atvinnulífs og samfélagsins alls í efnalegu tilliti og eftirtektarverðum land-vinningum einstakra fyrirtækja, segir Ingimundur Sigurpáls-son, formaður SA, m.a. í áramótaviðtali Morgunblaðsins. Hann segir samkeppnishæf starfsskilyrði íslenskra fyrirtækja mikil-vægari en nokkru sinni fyrr á tímum hnattvæðingar. Náum við enn frekari árangri á þeim sviðum höfum við alla burði til þess að vera áfram í fremstu röð meðal þjóða.

11.12.2004

Gengi sem ekki fær staðist

Núverandi gengi íslensku krónunnar fær ekki staðist og samræmist ekki raunstærðum í hagkerfinu, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Segir hann samtökin telja um klárt yfirskot að ræða, sem sjá megi af gríðarlegum viðskiptahalla enda sverfi að samkeppnis-atvinnuvegunum.

8.12.2004

Áhyggjur af þróun verðlags – ályktun stjórnar SA

Stjórn Samtaka atvinnulífsins lýsir áhyggjum af verðbólgu og gengi krónunnar og horfum um þróunina á næstunni. 5% hækkun á gengi krónunnar á nokkrum dögum jafngildir 15 milljarða króna tekjulækkun útflutningsgreina á ársgrundvelli. Í ályktuninni er m.a. fjallað um ónógt aðhald í ríkisfjármálum, launaþróun hjá hinu opinbera og samkeppni Íbúðalánasjóðs á lánamarkaði.

2.12.2004

Af samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja

SA fagna umræðu um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja hér á landi, en hún hefur verið nokkuð fyrirferðarmikil á Evrópu-vettvangi. Í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi minnir Ari Edwald framkvæmdastjóri samtakanna þó á að meginhlutverk fyrirtækja sé að skapa verðmæti og bera arð, en það er jú forsenda almennrar velferðar. Samkeppnishæf starfsskilyrði atvinnulífsins séu mikilvægari en nokkru sinni fyrr nú á tímum hnattvæðingar.

20.11.2004

Skattbreytingar í samræmi við gefin fyrirheit

Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við frétta-stofu Ríkisútvarpsins að þær skattbreytingar sem ríkisstjórnin hefur kynnt séu eðlilegar skipulagsbreytingar á skattkerfinu og í samræmi við gefin fyrirheit. Breytingunum sé stefnt gegn jaðaráhrifum sem séu mikil í skattkerfinu og jafnframt séu skattleysismörk aukin sem og stuðningur við barnafólk.

4.11.2004

Þungar refsingar vegna skattalagabrota – breytinga þörf

Gera verður kröfu um lágmarkssamræmi milli skattalagabrota og refsiviðurlaga, segir Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Lágmarkssekt vegna virðisaukaskattsskulda er þannig tvöföld fjárhæð á gjalddaga, án tillits til aðstæðna hverju sinni. Nýlega var forsvarsmaður fyrirtækis sektaður um 121 milljón króna, þótt einungis 8,5 milljónir stæðu eftir af skatt-skuld. Þá segir Ragnar óviðunandi þá mismunun ríkinu í hag sem í þessu felst gagnvart öðrum kröfuhöfum.

7.10.2004

Fjárlagafrumvarp og stöðugleiki

Fjárlagafrumvarp ársins 2005 hljóðar upp á 8% aukningu ríkisútgjalda frá frumvarpi síðasta árs, eða 3,5% raunvöxt, og ekki að sjá að frumvarpið markist af miklu átaki til að sporna gegn ofþenslu sem það þyrfti að gera, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara frétta-bréfsins Af vettvangi. Hann segir greiðan aðgang erlends starfsfólks að íslenskum vinnumarkaði gríðarlega mikilvægan á næstu misserum í þessu sama skyni.

28.9.2004

Ábyrgt atvinnulíf

Áherslur SA í umfjöllun sinni um samkeppnismál og stjórnar-hætti fyrirtækja hafa í öllum megindráttum verið þær nákvæm-lega sömu og systursamtaka SA í Svíþjóð, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í Morgunblaðsgrein. Hann segir það að sjálfsögðu markmið SA að vinna með stjórnvöldum að jákvæðri þróun mála á þessu sviði.

2.9.2004

„Stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis“

Skýrsla nefndar um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis er vandað og yfirgripsmikið plagg og margar tillögur nefnd-arinnar eru til bóta, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann leggur áherslu á að samráð sé haft við atvinnulífið áður en frumvörp verði unnin í viðskiptaráðuneytinu. Þá svarar Ari leiðara Morgunblaðsins þar sem hann segir grundvallarmisskilning á ferð.

31.8.2004

Stimpilgjald úreltur skattur

Í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, stimpilgjald úreltan skatt sem skekki samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja á alþjóðlegum markaði. Ari segir samtökin lengi hafa talað fyrir því að þessi skattur yrði afnuminn.

11.8.2004

Skattaumræða á villigötum

Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir skattaumræðuna að hluta til á villigötum og segir í samtali við fréttastofu Ríkis-útvarpsins að munurinn á skattgreiðslum almennings og þeirra sem taka sér laun í gegnum arðgreiðslur eignarhalds-félaga sé ekki eins mikill og menn vilji vera láta.

9.8.2004

Ekki sérlega raunhæfar hugmyndir

Forstjóri Samkeppnisstofnunar hefur varpað fram þeirri hugmynd að eftirlitsskyldir aðilar greiði að hluta eða öllu leyti kostnað við samkeppniseftirlitið. Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, þessar hugmyndir ekki sérlega raunhæfar við fyrstu sýn. Erfitt sé að afmarka umræddan hóp og eðlilegra að slík starfsemi sé fjármögnuð með almennu skattfé.

1.7.2004

Samanburðarfræði kennara

Fái aðrir það sama og kennarar krefjast verður afleiðingin neikvæð kaupmáttarþróun fyrir kennara sjálfa eins og aðra hópa launamanna, þótt prósentuhækkanir verði háar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Kennarar ætlist því til að aðrir semji um minna en þeir sjálfir.

12.6.2004

Verðbólgan meiri en hægt er að sætta sig við

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir verðbólguna miklu meiri en hægt sé að sætta sig við, í samtali við Morgunblaðið. Hún ógni þó ekki kjarasamningum eins og er en forsendur samninganna koma til skoðunar í nóvember 2005. Hannes segir eðlilegt að endurskoða áform um stórauknar lánveitingar til húsnæðiskaupa og húsnæðis-bygginga.

3.6.2004

Skattalækkanir

Mikill stuðningur er við stefnumörkun stjórnvalda um lækkun skatta, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir þó nauðsynlegt að samhliða verði haldið þétt um taumana í opinberum fjármálum á næstu misserum og að þar gegni lykilhlutverki að launaþróun opinberra starfsmanna verði í samræmi við þær hækkanir sem atvinnulífið hefur samið um.

13.5.2004

Olíugjaldsfrumvarpi mótmælt

Einhugur ríkir meðal þeirra sem reka atvinnubíla um að frumvarp um olíugjald og kílómetragjald o.fl. sé meingallað og feli í sér bæði aukna og flóknari skattheimtu sem ekkert tengist markmiðum frumvarpsins um að gera rekstur smærri dísilbifreiða hagkvæmari. Samtök í atvinnulífi mótmæla frumvarpinu.

6.5.2004

Samspil aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda

Þríhliða samskipti aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda eru enn mjög mikilvæg, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Eðlisbreyting hafi þó orðið á samskiptum þessara aðila. Kúvending efnahagsstefnu eða íhlutun í stjórn efnahagsmála séu sem betur fer ekki umræðuefni lengur í tengslum við gerð kjarasamninga.

4.5.2004

Víða má hagræða í opinberu eftirliti

Víða er svigrúm til hagræðingar á sviði eftirlits með atvinnustarfsemi, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, þegar hann kynnti nýja skýrslu samtakanna um eftirlit með atvinnustarfsemi og tillögur til úrbóta. Sameina mætti eftirlit, samræma framkvæmd, sameina leyfisveitingar, auka umbun fyrir virkt innra eftirlit fyrirtækja og lækka kostnað.

4.5.2004

Stöðugleiki mikilvægasta framlagið

Mikilvægasta framlag stjórnvalda til kjarasamningagerðar hefur undanfarinn rúman áratug verið fólgið í stöðugleika, sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna. Sagði hann áherslur í samskiptum aðila vinnumarkaðar við stjórnvöld hafa tekið miklum breytingum frá því árið 1990, þegar forsenda fyrir gerð kjarasamninga var, að aðilar vinnumarkaðarins tækju höndum saman við stjórnvöld um mótun nýrrar efnahagsstefnu.

1.4.2004

Vímuefnapróf og öryggi á vinnustað

Það getur ekki verið markmiðið að sjónarmið varðandi persónufrelsi einstakra starfsmanna vegi alltaf þyngra en heilbrigði og öryggi annarra starfsmanna, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Tilgangur vímuefnaprófa sé fyrst og fremst að standa vörð um öryggi starfsmanna en ekki áhugi fyrirtækja á persónulegum högum manna.

20.2.2004

Löng leið erlends starfsfólks

Á málþingi Alþjóðahúss, SA o.fl. um mannauð innflytjenda fjallaði Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, um mikilvægi jákvæðrar umræðu um málefni innflytjenda, langa leið starfsfólks frá löndum utan EES til Íslands, efnahagslegt mikilvægi sæmilega greiðs aðgangs að íslenskum vinnumarkaði o.fl. Ferlið við öflun dvalar- og atvinnuleyfa hér tekur oft um þrjá mánuði.

5.2.2004

Enn af fjölgun opinberra starfsmanna

Í ýmsum nágrannaríkjum okkar setur vöxtur opinbera geirans samhliða hækkandi meðalaldri sívaxandi þrýsting á efnahagslífið sem líkja má við krísu, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Gústaf segir að ætla megi að Ísland verði í þessari stöðu eftir um áratug, verði engin breyting á þróuninni.

14.1.2004

Endurskoða þarf starfsaðferðir Samkeppnisstofnunar

Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Viðskiptablaðið að taka þurfi starfsaðferðir Samkeppnis-stofnunar til endurskoðunar. Hann segir það vægt til orða tekið að vinnubrögð stofnunarinnar, áherslur starfsmanna og nálgun þeirra að viðfangsefnum stofnunarinnar hafi vakið mikla undrun.

13.1.2004

Stimpilgjöld og vörugjöld tímaskekkja

Í setningarræðu á skattadegi Deloitte, Mbl og SA fjallaði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. um þær jákvæðu breytingar sem orðið hafa á skattalegu umhverfi íslenskra fyrirtækja. Hann sagði verkinu þó ekki lokið, m.a. þyrfti að afnema hinn nánast séríslenska eignarskatt, stimpilgjöld og vörugjöld, sem hlytu að teljast tímaskekkja í nútímaefnahagskerfi.

8.1.2004

Árangur atvinnulífsins

Samkeppni hefur almennt stóraukist í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum samfara auknu frelsi, þar sem „klasarnir“ eru nú margir sem hafa afl til að láta til sín taka, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir atvinnulífið hafa skilað stórkostlegum árangri til samfélagsins undanfarin ár og bendir m.a. á þriðjungs hækkun kaupmáttar og margföldun á fjölda eignafólks. Ávallt sé sjálfsagt að skoða regluumhverfi atvinnulífsins, en aðalatriðið sé að íslenskt atvinnulíf fái að búa við sambærilegar reglur og gildi í helstu samkeppnislöndum.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english