Beint á leiðarkerfi vefsins

Skoðun SA

31.12.2003

Kjarasamningar ættu að nást án átaka

Það kæmi á óvart ef menn sæju ástæðu til þess að efna til kjaradeilna nú, þegar höfð er í huga hin mikla aukning kaupmáttar undanfarin ár, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í áramótasamtali við Morgunblaðið. Hann segir mestu skipta að andrúmsloftið er jákvætt og að almenn ánægja ríkir með árangur af yfirstandandi samningum, sem hafa skilað launafólki meiri raunhækkun launa en dæmi eru um áður.

16.12.2003

Lagi sig að leikreglum á almennum vinnumarkaði

Starfsgreinasambandið hefur kynnt SA nýja kröfugerð í lífeyrismálum, þar sem farið er fram á sambærileg lífeyrisréttindi og ríkisstarfsmenn búa við. Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, eðlilegt að lífeyrisréttindi verði samræmd, en sú samræming verði að vera þannig að opinberir launa-greiðendur lagi sig að þeim leikreglum sem gildi á almennum vinnumarkaði.

4.12.2003

Skref í átt til einsleitari vinnumarkaðar

Sérstaða og sérkjör opinberra starfsmanna hafa skaðleg áhrif á frjálst flæði fólks milli almenns og opinbers vinnu-markaðar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir fjármálaráðherra eiga hrós skilið fyrir að stíga skref í átt til einsleitari vinnumarkaðar á Íslandi.

4.12.2003

Prósentuhækkanir og kaupmáttur

Háar prósentuhækkanir launa búa ekki til kjarabætur, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi, og bendir á að kaupmáttur dróst saman um 14% á tímabilinu 1980-1990, þegar laun hækkuðu um 1450%. Vinnufriður og efnahagslegur stöðugleiki stuðla að framleiðniaukningu sem bætir lífskjör.

25.11.2003

Brýnt að samkeppnislög verði endurskoðuð í heild

SA telja brýna nauðsyn á heildarendurskoðun samkeppnis-laga og hafa gert ítarlegar tillögur um breytingar á einstökum ákvæðum laganna. Samtökin mæla hins vegar gegn samþykkt fyrirliggjandi lagafrumvarps um afmarkaðar breytingar á samkeppnislögum.

12.11.2003

Íslenska menntakerfið samkeppnishæfara

Stytting námstíma í framhaldsskóla hefur sem slík ekki mikil bein áhrif atvinnulífið, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í samtali við Viðskiptablaðið. Hún mun hins vegar hafa ýmis jákvæð samfélagsleg áhrif og auka samkeppnishæfni íslenska menntakerfisins.

6.11.2003

Kröfur á forsendum fortíðarinnar

Kröfur um gjaldfrjálst háskólanám byggja á forsendum fortíðarinnar en eru ekki í sambandi við það umhverfi óþrjótandi eftirspurnar sem þróast hefur og fagna ber, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Þá verði ekki skilið hvers vegna háskólanám ætti að vera mun ódýrara en t.d. vörubifreiðaréttindi, endurmenntunarnámskeið og leikskóladvöl.

6.11.2003

Heilbrigð viðhorf

Ánægjuleg tíðindi eru fólgin í stjórnmálaályktun lands-fundar Samfylkingarinnar um heilbrigðismálin, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann vonar að ályktunin reynist innlegg í að skapa breiða pólitíska samstöðu um gagngera endur-skoðun heilbrigðiskerfisins. Gríðarlegir hagsmunir séu í húfi.

15.10.2003

Skilar hagræðing verðhækkun?

Viðskiptablaðið fjallar nýlega um lokaritgerð nemenda í rekstrar- og viðskiptafræðum, þar sem fram kemur að matvörur hafi hækkað meira en aðrar vörur hérlendis og meira en matvörur erlendis, og orsakir síðan raktar til meintrar fákeppni. Þetta eru áhugaverðar spurningar, en skv. könnun SA er enginn marktækur munur á þeim verðbreytingum sem fjallað er um í ritgerðinni og kenningar um orsakir því án tilefnis.

13.10.2003

Full samstaða um að samningar séu virtir

Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að full samstaða sé um það á íslenskum vinnumarkaði að það eigi ekki að líða nein undanbrögð frá því að kjarasamningar séu virtir.

2.10.2003

Í aðdraganda samningalotu

Lítið svigrúm er til launahækkana í miðlægum samningum segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara frétta-bréfsins Af vettvangi. Hlutur launa í verðmætasköpuninni sé hærri en fái staðist til lengdar og hljóti að lækka fyrr en síðar, með hægari launabreytingum hér á landi en í viðskiptalöndunum eða með lækkun gengis krónunnar. Sú fyrri sé leið stöðugleikans en hin síðari hafi oftast verið kennd við kollsteypur.

4.9.2003

Lifi samkeppnin

„Loksins, loksins er að myndast almennur skilningur á þeirri brýnu nauðsyn sem er á endurskoðun samkeppnislaga,“ segir Ari Edwald, framkvæmda- stjóri SA. Mikilvægt sé þó að betur verði vandað til verka en við síðustu endurskoðun laganna. Ari segir samkeppni hafa stóraukist í íslensku viðskiptalífi og að mikil tækifæri séu til lífskjarabóta með því að ljúka upp fyrir samkeppni þar sem hún er nú lítil eða engin.

4.9.2003

Lifi samkeppnin

„Loksins, loksins er að myndast almennur skilningur á þeirri brýnu nauðsyn sem er á endurskoðun samkeppnislaga,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara frétta-bréfsins Af vettvangi. Mikilvægt sé þó að betur verði vandað til verka en við síðustu endurskoðun laganna. Ari segir samkeppni hafa stóraukist í íslensku viðskiptalífi og að mikil tækifæri séu til lífskjarabóta með því að ljúka upp fyrir samkeppni þar sem hún er nú lítil eða engin.

15.8.2003

Réttmæt ábending SA, skoðist í víðara samhengi

SA bentu á í skýrslu á sínum tíma að skoða þyrfti betur tengsl stjórnsýslusekta og refsiviðurlaga í samkeppnis-lögum, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir réttmæti þessarar ábendingar nú orðið skýrt en telur að þetta þurfi líka að skoða í víðara samhengi.

14.8.2003

Þörf á hagræðingu í heilbrigðiskerfinu

Hægt er að nýta kosti samkeppni og einkarekstrar til hagræðingar í heilbrigðiskerfinu, án þess að hlutur hins opinbera í kostnaði við hvern sjúkling minnki, né heldur gæði þjónustunnar, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, m.a. í erindi á málþingi LSH um rekstur sjúkrahúsa o.fl.

12.8.2003

Áhugi að vakna á endurskoðun samkeppnislaga

Í samtali við DV segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, það sérkennilegt að þurfa aftur og aftur að leiðrétta afflutning forstöðumanns Samkeppnisstofnunar á málflutningi og tillögugerð SA um breytingar á samkeppnislögunum. Hann segir það hins vegar fagnaðarefni að svo virðist sem áhugi sé að vakna á endurskoðun laganna.

16.7.2003

Óhagkvæmt fyrirkomulag frítöku

Í Morgunblaðsgrein fjallar Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, um þá röskun sem fylgir löngum sumarleyfistíma á Íslandi, fimmtudagsfrídaga o.fl. Hann hvetur til fækkunar skólaára og lengingar skólaársins, sem m.a. myndi stuðla að hagkvæmara fyrirkomulagi orlofstöku hérlendis.

3.7.2003

Greiðari leið fyrir erlent starfsfólk

Nauðsynlegt er að greiða leið erlends starfsfólks hingað eins og hægt er í tengslum við stóriðjuframkvæmdir, m.a. með því að stytta ferla hjá Vinnumálastofnun og Útlendingastofnun, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir ferlið nú alltof tímafrekt.

24.6.2003

Mjög brýnt að samkeppnislögin verði endurskoðuð

SA telja það mjög brýnt að samkeppnislögin verði endurskoðuð, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir m.a. að viðmiðunarmörk vegna samruna séu hér alltof lág og að verulegir ágallar hafi komið fram á réttarfari samkeppnis-mála.

7.6.2003

Mæla með auknum hlut einkaaðila

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir gagnlegt að auka hlut einkaaðila við að veita almannaþjónustu og efla tengsl þjónustugjalda og raunverulegs kostnaðar við þjónustuna. Í samtali við Fréttablaðið segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, þetta að mestu í anda þess sem SA hafi boðað, en undanskilur þjónustugjöld í heilbrigðiskerfinu.

1.6.2003

Á ekki og getur ekki stýrt uppbyggingu atvinnulífsins

SA vilja efla Samkeppnisstofnun til góðra verka og hafa stutt breytingar sem gera stofnuninni betur kleift að vinna gegn ólögmætu samráði fyrirtækja, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir það hins vegar ekki hlutverk Samkeppnisstofnunar að stýra uppbyggingu atvinnulífsins.

21.5.2003

Brýn nauðsyn aðhalds í opinberum fjármálum - ályktun stjórnar SA

Núverandi gengi krónunnar fær ekki staðist til lengdar, segir í ályktun stjórnar SA, en Seðlabankinn spáir því að raungengi hækki um 10% á þessu ári og að samkeppnis-staðan versni sem því nemur. Til mótvægis við stóriðjuframkvæmdir er afar brýnt að skýr aðhaldsstefna í opinberum fjármálum verði mótuð og þurfa stærstu sveitarfélögin einnig að koma að þeirri stefnumótun.

19.5.2003

Veikindarétturinn bundinn í lög

Rétturinn til launa í veikinda- og slysaforföllum er bundinn í lög og það er ekki á valdi samningsaðilanna að breyta því, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann telur núverandi sjúkrasjóðakerfi hins vegar þarfnast endurskoðunar, algerlega óháð öllu öðru.

13.5.2003

Opinberir aðilar spenna upp launaþróunina

Samtök atvinnulífsins hafi lengi gagnrýnt að launahækkanir á opinberum vinnumarkaði hafi verið meiri en á almennum vinnumarkaði, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA í viðtali við DV og segir engin efni til annars í kjarasamningum en að taka tillit til þess raunveruleika sem við búum við.

8.5.2003

Um tjáningarfrelsi forsvarsmanna fyrirtækja

Verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir setningu löggjafar um rétt starfsfólks til upplýsinga um líklega þróun í rekstri fyrirtækja og því vekur afstaða ASÍ furðu, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi, og minnir á stjórnarskrár-bundið tjáningarfrelsi.

8.5.2003

Jafnréttismálin og atvinnulífið

Að velja ekki þann hæfasta eru einfaldlega slakir stjórnunarhættir, sem ekki skila árangri á samkeppnis-markaði, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir tækifæri til breytinga sem stuðla myndu að jöfnun á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og horfir m.a. til starfs- og vetrarfrísdaga í skólum.

3.4.2003

Átak á sviði starfsmennta

Víðtækt samkomulag hefur náðst um starfsfræðslu- og menntaátak Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins ehf. Mjög miklu máli skiptir, bæði fyrir einstaklingana og allt atvinnulífið, að góður árangur náist, segir Jón Sigurðsson, verkefnisstjóri hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

14.3.2003

Tekjuskatturinn er stighækkandi

Tekjuskattur er stighækkandi. Á átta árum hækkaði t.d. kaupmáttur lægstu mánaðarlauna um 65%. Þau báru ekki tekjuskatt árið 1995 en bera nú 10,5% skatt, vegna aukins kaupmáttar. Eftir skatt hefur hann vaxið um 47%. Þetta kemur fram í innleggi Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, í skattaumfjöllun Fréttablaðsins.

6.3.2003

Langir samningar bera ávöxt

Innsiglað hefur verið lengsta samningstímabil í samskiptasögu á vinnumarkaði og ávinningur almennings hefur verið mikill, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann varar hins vegar við blikum á lofti í efnahagsmálum og bendir á að meginverkefni nýrrar ríkisstjórnar verði sveiflujöfnun vegna stóriðjuframkvæmda.

25.2.2003

SA styðja tillögu um samstarf

Á fundi SA um áhrif hágengis á þjóðarhag lagði fram-kvæmdastjóri ASÍ til að komið yrði á formlegu samstarfi stjórnvalda, Seðlabanka Íslands og aðila vinnumarkaðarins til að samræma viðbrögð hagstjórnar. Í samtali við Morgunblaðið tekur Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-framkvæmdastjóri SA, heilshugar undir með Gylfa.

15.2.2003

Huga verður að samkeppnishæfni

Brýnast er að lækka og afnema skatta sem skekkja samkeppnishæfni gagnvart viðskiptalöndum eins og eignaskatta og stimpilgjöld, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Fréttablaðið.

11.2.2003

SA fagna útspili ríkisstjórnarinnar

SA fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar um flýtingu ýmissa opinberra framkvæmda og fjármögnun þeirra með frekari einkavæðingu. Flýting sumra þessara framkvæmda er liður í að skapa rými fyrir væntanlegar virkjunar- og álversframkvæmdir. Áhersla er þó lögð á mikilvægi aðhalds í opinberum útgjöldum þegar stóriðjuframkvæmdirnar verða í hámarki.

6.2.2003

„Óvænta“ vaxtalækkun!

Það sem þörf er fyrir núna er því ekki „vænt“ vaxtalækkun heldur einmitt „óvænt,“ segir Ari Edwald, framkvæmda-stjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir ekki verjandi að stuðla að háu gengi með margfalt hærri raunstýrivöxtum en eru í Evrópu, í því umhverfi verðlækkana og samdráttar sem hér er.

5.2.2003

Ekki trú á frekari gengishækkun

Gengishækkun undanfarinna mánaða er byggð á væntingum sem ekki eru byggðar á nægilega traustum forsendum, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-framkvæmdastjóri SA, í samtali við Viðskiptablaðið. Hann hefur ekki trú á að gengið hækki frekar, nema þá sem tímabundið flökt.

23.1.2003

Vaxandi áhyggjur af þróun peningamála

SA hafa vaxandi áhyggjur af þróun peningamála í landinu. Gengi krónunnar hefur hækkað það mikið að verulega þrengir að samkeppnisstöðu atvinnulífsins, stefnan er í átt til verðhjöðnunar og mikill slaki á vinnumarkaði. Nauðsyn-legt er að stuðla að lækkun gengis með lækkun stýrivaxta.

9.1.2003

Stóriðjuframkvæmdir

Umræður um umhverfismál virðast í ákaflega einlitum farvegi á Íslandi, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir óeðlilegt að erlend samtök blandi sér um of í ákvarðanir fullvalda þjóðar um þessi málefni. Það kunni ekki góðri lukku að stýra eins og reynslan kenni.

3.1.2003

Mikilvægt að samkeppni ríki milli háskóla

Æskilegt er að nám mótist á grundvelli framboðs og eftirspurnar og mikilvægt að samkeppni ríki á milli aðila, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í erindi um þróun háskólanáms. Hann sagði kostnaðarþátttöku nemenda vinna á móti offjárfestingu á háskólasviðinu.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english